Börn og menning - 01.04.2009, Síða 8

Börn og menning - 01.04.2009, Síða 8
8 Börn og menning runnið saman og að margar barnabækur sem skrifaðar séu í dag hafi í raun aðeins eina gerð lesenda í huga, reikni með einhverskonar samruna barnsins og hins fullorðna í markhópnum. Enda má færa rök fyrir því að við eigum sffellt erfiðara með að greina á milli þess hvað það er að vera fullorðinn og hvað það er að vera barn. Dæmi um það má ekki aðeins finna í bókaútgáfu, heldur einnig í kvikmyndabransanum þar sem sömu ævintýramyndir eiga að höfða *til allra aldurshópa, börn og fullorðnir leika sér með sömu tækin og leikföngin og tæknin gerir það að verkum að aðgengi barna að fullorðinsheimum er einnig mun greiðara en áður. Það er svo spurning hversu mikil meðvitundin um þessa skörun er og eins og komið hefur fram eru skoðanir á henni svo sannarlega skiptar. Hinir fullorðnu virðast hafa komið sér þægilega fyrir í Hvergilandi, sumum til mikillar hrellingar. Börn á flakki í fullorðinsveröld En landamæraflakkið er ekki einhliða, börn lesa líka bækur eftir fullorðna en það er kannski ekki alveg jafn mikið nýnæmi og lestur fullorðinna á barnabókum. Börn hafa í gegnum tíðina forvitnast um fullorðinsbækur, nægir að nefna bækur á borð við Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe og Ferðir Gúllivers eftir Jonathan Swift sem hafa lengi vakið áhuga barna. Ég fór að hugsa um þetta út frá eigin lestri í æsku og ég held satt best að segja að ég hafi ekki gert sérstaklega mikinn greinarmun á barnabókum og öðrum bókum. Skiptingin var auðvitað nokkuð skýr á bókasöfnum og í bókabúðum og maður hagaði sér svo sem eftir því. En varla var maður orðinn unglingur þegar ísfólksbækurnar góðkunnu voru lesnar og bækur Jean M Auel (t.d. Þjóð bjarnarins mikla og Mammútaþjóðin) voru einnig vinsælar á þessum tíma af nákvæmlega sömu ástæðu og ísfólksbækurnar, þær voru nefnilega klámfengnar í meira lagi. Einnig man ég eftir að hafa lesið Agöthu Christie, Þórberg Þórðarson og Arthur Conan Doyle án þess að velta því sérstaklega fyrir mér að ekki væri um Nancý-bækur að ræða. Sígildar sögur Það er líka áhugavert að hugsa um myndasögur í þessu samhengi. Ég fékk stundum að lesa myndasögublöð sem pabbi minn hafði eignast sem barn sem hétu Sígildar sögur. Einhverjir muna eflaust eftir þessum blöðum, þau voru sum hver endurútgefin fyrir áratug eða svo. Þetta voru myndasöguútgáfur af heimsbókmenntunum, þarna mátti til dæmis lesa Ódysseifskviðu og Móbý Dick og meira að segja félagarnir Hamlet og Macbeth Shakespearssynir voru fáanlegir í myndasöguformi. Ég man ekki betur en að ég hafi litið á þá félaga eins og hverja aðra Lukku-láka, það var nóg af morðum og draugum og allskyns skemmtilegheitum í þessum sögum. Þegar ég fékk Biblíuna í jólagjöf átta ára gömul settist ég líka niður með hana á aðfangadagskvöld og byrjaði að lesa eins og hverja aðra bók. Ég gafst að vísu upp í miðju Gamlatestamenti og fannst það frekar slappt af mér þar sem ég var vön að Ijúka við bækur. Biblían var semsagt bara bók sem ég fékk í jólagjöf. Mér fannst ég eiginlega ekki vera að lesa fullorðnisbækur fyrr en ég prófaði að lesa ástarsögurnar sem mamma las þegar ég var um fermingu. Og ég komst því miður að því að þær voru mun minna krassandi en bæði (sfólksbækurnar og Biblían, en það er önnur saga. Fullorðinsbækur voru semsagt bækur sem ég sá fullorðna lesa. Flokkun og markaðssetning Þetta hefur hinvegar örugglega breyst og þar kemur ekki sfsttil breyttmarkaðssetningbóka. Nú eru sumar bækur bæði markaðssettar fyrir börn og fullorðna, það er að segja í sitthvorri útgáfunni með sitthvorri kápunni og jafnvel sitthvorri auglýsingaherferðinni. Gott dæmi um það væri bókin The Curious Incident of a dog in the night-time eftir Mark Haddon sem kom út á íslensku fyrir einhverjum árum og kallast Furðulegt háttalag hunds um nótt í íslenskri þýðingu. (slenska þýðingin var reyndar gefin út í tveimur ólíkum útgáfum, bæði innbundin og í kilju en hinsvegar minnist ég þess ekki að hún hafi beinlínis verið markaðssett fyrir

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.