Börn og menning - 01.04.2009, Page 9

Börn og menning - 01.04.2009, Page 9
Upp og niður kanínuholuna 9 FURÐULEGT ^talag hunds UM NÓTT MARk HADDOn |eoooVerð,aunabófc 000 em*ök seld Stórkostleg og hrífandi bók. ~'he Scotsman börn. Sagan er sögð út frá sjónarhóli drengs með Asperger-heilkenni sem rannsakar sakamál, þ.e. hvarf hundsins í titlinum. í grunninn er sagan þannig spennusaga rétt eins og bækur Arnaldar Indriðasonar eða bækur Enid Blyton, það getur nefnilega verið flókið að flokka. Vöruna er svo hægt að markaðssetja með ákveðnum hætti fyrir ólíka hópa, og það var einnig gert með Harry Potter-bækurnar sem voru gefnar út í sérstökum fullorðinsútgáfum, að sögn til að bankamenn þyrftu ekki að skammast sín fyrir að lesa þær í neðanjarðarlestum. Það getur hreinlega verið spurning um markaðssetningu hjá hvaða lesendahópi bók lendir. Bókaþjófurinn eftir Mark Zusak hefur til dæmis víða verið markaðssett bæði fyrir fullorðna og börn en hérlendis virðist hún vera skilgreind fyrir fullorðna lesendur, að minnsta kosti enn sem komið er, enda er hún múrssteinsígildi að umfangi og þyngd en það ættu Harry Potter-aðdáendur svo sem ekki að láta á sig fá. Barnabækur eru alvöru „business" í dag, þær eru iðulega á toppum metsölulista og keppa þar við spennusögur, ástarsögur og sjálfshjálparbækur. Sumir vilja meina að lestur fullorðinna á barnabókum megi fyrst og fremst einmitt rekja til markaðssetningar og það er eflaust eitthvað til í því en þó veit maður ekki hvort eggið eða hænan kom á undan. Að einhverju leyti virðist flokkurinn sem hefur verið kallaður unglingabækur vera á undanhaldi, bilið á milli barnsins og hins fullorðna er brúað með bókum sem eiga að höfða til allra. Ekki verður dæmt um það hér hvort þessi tilhneiging leiði til vanþroskaflatneskju eða skapandi samruna. Þegar allt kemur til alls skiptir jú mestu máli hvort bókin er góð eða ekki. Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.