Börn og menning - 01.04.2009, Page 13

Börn og menning - 01.04.2009, Page 13
Þessa dagana eru allir að tala um vampírubækur Stephanie Meyer, Ljósaskipta-seríuna, en bækurnar hafa selst í bílförmum síðustu ár. Ekki er að vænta fleiri bóka á frummálinu en þeirra fjögurra sem nú þegar eru komnar út, en sú fyrsta í seríunni kom út i islenskri þýðingu Magneu J. Matthiasdóttur fyrir síðustu jól. Sagan hefur náð einhverju áður óþekktu tangarhaldi á iesendum, enda eru bækurnar mjög auðlesnar þó að þær séu kannski ekki beinlínis vel skrifaðar. Lesendur eru á öllum aldri, þó að fyrst og fremst séu þeir kvenkyns. Á ensku er talað um „the Twilight Phenomenon" þegar fjallað er um viðbrögðin við bókunum - umræður um þær eru fjörugar á netinu, og tilfinningarnar sem lesa má úr umræðum heitar. Umræðuhóparnir eru jafnfjölbreyttir og lesendurnir - einn af þeim sem hefur veríð hvað mest áberandi heitir „Twilight Moms" og þar spjalla giftar konur sem eru komnar af unglingsaldri af áfergju um þessar bráðsnotru vampírur. Þessi hópur er ekki miklu yfirvegaðari í umfjöllun sinni um bækurnar en unglingsstúlkurnar - t.d. komst það í fréttir í fyrra að þegar síðasta bókin í seríunni fékk vondan dóm hjá Entertainment Weekly-tímaritinu voru meðlimir spjallborðsins hvattir til að senda bréf á ritstjórnarskrifstofuna þar sem skorað væri á ritstjórnina að draga dóminn til baka. Hverju bréfi fylgdi ein hvít skákdrottning, en það er einmitt myndin sem er á kápunni á umræddri bók. Hið siðfágaða skrímsli Sagan segir af sautján ára bandarískri stúlku sem flytur við upphaf bókar landshorna á milli. Móðir hennar hefur nýlega gifst og langar að leggjast í flakk með bónda sínum, svo söguhetjan ákveður upp á eigin spýtur að veita móður sinni frelsi frá heimilinu og flytur til föður síns sem hún þekkir ekki mikið. Hún er ekki fyrr búin að koma sér fyrir í smábænum en hún fellur fyrir myndarlegasta piltinum í skólanum. Á undraskömmum tíma tekst henni að draga upp úr honum leyndarmál sem hann hefur varðveitt alla ævi - hann er fæddur upp úr þarsíðustu aldamótum og varð að vampíru sautján árum síðar. Pilturinn getur lesið hugsanir - allra nema hennar - og honum finnst ilmurinn af hörundi hennar svo ómótstæðilegur að hann má hafa sig allan víð að éta hana ekki. Á þessum grunni byggja þau ástarsamband sitt. Kauði er hluti af siðmenntaðri vampíru- fjölskyldu sem leggst ekki á menn, heldur kýs að hlaupa frekar uppi fjallaljón og skógarbirni til að svala blóðþorstanum, þó að löngunin í mennskt blóð sé mikil.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.