Börn og menning - 01.04.2009, Page 24

Börn og menning - 01.04.2009, Page 24
Brynja Baldursdóttir m / ^ fLM vjrJ Þrumuguðinn Þórereinna vinsælasturguða í norrænni goðafræði. Hann er sagður sonur æðsta guðsins Óðins og konu að nafni Jörð. Allar heimildir um Þór, kvæði og frásagnir, kynna hann sem fullorðinn mann/goð - með hamarinn Mjölni í hendi og hafrana Tanngnjóstur og Tanngrisni fyrir kerrunni. Einnig kemur fram að hann á konuna Sif, soninn Móða og dótturina Þrúði. En hver er þá bakgrunnur þessa sterka guðs sem fær himininn til að loga af glóandi eldingum og titra af gríðarlegum hávaða þrumanna? Efnilegt unggoð Friðrik Erlingsson gefur lesendum innsýn f bernsku Þórs í bók sinni Þór i heljargreipum sem út kom á síðasta ári. Friðrik leikur sér að orðum í titlinum því í sögunni lendir hinn ungi Þór svo sannarlega í greipum Heljar, systur Loka. Sagan hefst þegar Þór er ungur maður enn í móðurhúsum. Honum er ókunnugt um faðerni sitt, móðir hans vill ekki gefa það upp en minnist fundar síns og Óðins með eftirsjá. Þór er mjög sterkur en veit ekki alveg hvers hann er megnugur. Hann vinnur sem járnsmiður en hefur miklar væntingar um framtíðina, hann langar til að verða stríðsmaður og berjast til frægðar. ( byrjun sögunnar eiga þau mæðginin orðaskipti sem túlka má á nokkra vegu en orð móðurinnar gefa til kynna hvað um drenginn hennar verður: „Þú ert alltaf með höfuðið í skýjunum þegar verkefnin blasa við þér hér á jörðinni."(bls.26) Þau mæðgin eiga tvo hafra, alræmd letiblóð, sem vilja helst af öllu eyða tíma sínum við beit út í haga. Mjölnir magnar þá svo þeir öðlast hæfileika til að skjótast um himinblámann á æsilegum hraða. Með Mjölni í hönd og hafra við kerru er Þór til í hvað sem er, jafnvel að sigra konung jötna. Talandi hamar Friðrik kennir lesandanum sitt hvað um norræna goðafræði um leið og hann skrifar áhugaverða sögu um þrekvirki þrumuguðsins. Sannir aðdáendur goða- fræðinnar eru kannski ekki á eitt sáttir um meðferð höfundar á hamrinum Mjölni en hann er gerður að lifandi veru sem spjallar við eiganda sinn. í goðafræðinni eru það dvergabræðurnir Sindri og Brokki sem smíða hamarinn ásamt öðrum hlutum og hlaða hann töfrum. Með því að gera Mjölni að litlum reiðum karli sem neitar að haga sér sem aðrir hamrar tekur höfundur stórt skref inn í fantasíuna en vissulega má segja að margt í norrænni goðafræði sé töfrum líkast. Hamarinn er þeim eiginleikum búinn að sé honum kastað flýgur hann aftur í útrétta hönd eiganda síns. Hið ástralska kastvopn, búmerang, hefur sömu eiginleika, hefur kannski fengið þá frá Mjölni. í sögunni fær

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.