Börn og menning - 01.04.2009, Page 28
28
Börn og menning
Guðni Eiríksson
„ Guðni, ertu góður pabbi?" spurði Brynja Baidursdóttir samkennari minn að loknum hádegisverði fyrir stuttu. „Já mjög," svaraði ég strax
án þess að hika. „Svo þú testþá fyrir börnin þín?" spurði hún þá til baka. „Já á hverju einasta kvöldi," svaraði ég. „Frábært," sagði Brynja
og spurði mig hvort ég vildi þá ekki skrifa smá grein sem kallast „Pabbi les". Ég játti því og lagðist í kjölfarið í miklar hugrenningar um
þessa athöfn mína með börnunum sem mér hefur alltaf þótt svo sjálfsögð og velti mér í raun lítið upp úr. Eftir þvi sem ég hugsaði meira
um lestrarstundirnar, þvi betur áttaði ég mig á því hversu yndisteg athöfn það er í raun og veru að lesa fyrir börnin.
Mismunandi lestrarbækur
Ég er svo lukkulegur að eiga þrjú börn,
þar af tvo stjúpsyni. Litla stelpan mín er að
verða tveggja ára, yngri sonurinn nýorðinn
sjö ára og eldri sonurinn er að verða ttu
ára. Það segir sig því sjálft að börnin hafa
mismunandi skoðanir á því hvaða bækur
þeim þykja skemmtilegar sem eykur ánægju
mína til muna þar sem fjölbreytnin er mikil.
Við foreldrarnir höfum verið dugleg að kaupa
bækur í gegnum tíðina og eru barnabækur
þar engin undantekning. ásamt því að gömlu
barnabækurnar okkar fylgdu okkur úr æsku.
Af þeim sökum eru barnaherbergin þrjú
ríkulega skreytt barnabókum og er úrvalið
mikið. Engu að síður verða ákveðnar bækur
fyrir valinu aftur og aftur.
Ódauðlegu smábarnabækurnar og
undarlegar furðuverur
Við tókum þá ákvörðun snemma að til
þess að hvert barn fengi sem mest út úr
lestrinum og næðum sem mestri tengingu
við hvert og eitt þeirra yrði lesið fyrir börnin
sitt í hvoru lagi og alltaf fyrir svefninn hjá
hverju og einu. Þá fær hvert barn einnig
„einkastund" með pabba. Fjórar bækur
eru í algjöru uppáhaldi hjá litla örverpinu.
Fyrst ber að nefna eina úr bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurnar sem ég
þarf að lesa aftur og aftur og hún heitir
Dýrin á bænum. Þar fáum við að kynnast
Kötu sem býr á bóndabæ og sýnir okkur
öll skemmtilegu dýrin á bænum. Dýr hafa
alltaf náð vel til barna og með hjálp Kötu
lærði dóttir mín fjölmörg orð og kom það
annarri ömmunni t.a.m. mikið á óvart þegar
sú stutta benti á salernisvegginn og sagði
„fillildi" og það tók þá gömlu nokkra stund
að átta sig á að þarna var verið að bera
kennsl á fiðrildi sem hékk á veggnum.
Önnur bók sem er f miklu uppáhaldi og
er í bókaseríunni Lífsspeki Bangsímons og
heitir Föt fjallar um hinn síunga Bangsímon
og vini hans sem eiga í mesta basli með
að klæða sig rétt. Þau eru ófá skiptin sem
stelpan hefur hlegið að vitleysunni í Gúra
litla sem leikur sér í drullupolli í sparifötunum
og þessi vinalegu dýr virðast alltaf eiga
upp á pallborðið kynslóð eftir kynslóð. Að
lokum þarf ég að nefna tvær bækur sem
eru alltaf lesnar saman enda náskyldar.
Þær eru nýkomnar út hér á landi og fjalla
um undarlegar furðuverur í svokölluðum
Næturgarði og heita þær Iggul Piggul; Allir
um borð í Ninký Nonk! og Opsý Deisí; Fína
blómiðl Þessar bækur tengjast samnefndum
sjónvarpsþáttum sem sýndir eru klukkan
08:00 á sunnudagsmorgnum og er eina
barnaefnið sem stelpan nennir að horfa á.
Hún var ekki lengi að læra öll skringilegu
nöfnin á þessum kynjaverum enda skilst
mér að það sé jú einmitt tilgangur höfundar
við nafnavalið. Einfaldur söguþráður hverrar
sögu og sífelldar endurtekningar skila sér
algjörlega til þessa aldurshóps.
Leikrit og ævintýri.
Eftir að hafa boðið örverpinu góða nótt er