Börn og menning - 01.04.2009, Qupperneq 32
Börn og menmng
Bókakaffi í febrúar
Fimmtudaginn 26. febrúar hélt IBBY bókakaffi
í Te og Kaffi í bókabúð Máls og menningar á
LaugaveginumundiryfirskriftinnfBarnabækur
fyrir fullorðna eða fullorðinsbækur fyrir börn.
Þar héldu Þorgerður E. Sigurðardóttir, Arndís
Þórarinsdóttirog MaríannaClara Lúthersdóttir
glimrandi skemmtilega fyrirlestra sem eru nú
birtir hér í blaðinu lesendum til yndisauka og
upplyftingar. Góða skemmtun!
Bókaormaeldi í Gerðubergi
Laugardaginn 21. mars hélt
Menningarmiðstöðin í Gerðubergi elleftu
barnabókaráðstefnuna í samstarfi við
IBBY á íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð
Reykjavíkur, Upplýsingu - Félag bókasafns-
og upplýsingafræða og Félag fagfólks á
skólasöfnum.
Að þessu sinni var fjallað um
bókmenntauppeldi; hvað sé gert til að glæða
áhuga barna og unglinga á lestri, hvað
hafi tekist vel og hvað miður og hvað sé til
ráða nú á tímum dvínandi lestraráhuga og
lesskilnings.
Fluttir voru fjórir fyrirlestrar:
Halla Kjartansdóttir, kennslustjóri í
Menntaskólanum við Sund: Að vera læs eða
lens.
Guðlaug Richter, formaður IBBY: Hvernig
glæðum við áhuga barna á lestri? Um könnun
á vegum Samtaka um Barnabókastofu.
Ingibjörg Baldursdóttir, bókasafns- og
upplýsingafræðingur, Flataskóla í Garðabæ:
Lestrarkveikjur.
Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og
háskóla ken na ri: Lestra rhesta mót(u n)
- Gæðingaskeið, slaktaumatölt og fleiri
lestraríþróttir.
Silja Aða Istei nsdótti r, ritstjóri var
fundarstjóri. Um 140 manns sóttu
ráðstefnuna og hefur gestafjöldi aldrei verið
neitt í líkingu við þetta í sögu samkomunnar.
Var það mál manna að sennilega hefði
kreppan eitthvað jákvætt í för með sér þrátt
fyrir allt. Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér betur efni fyrirlestranna er bent á wvvw.
gerduberg.is
SÖGUSTEINN
Sögusteinn 2009
Sögusteinn, barnabókaverðlaun IBBY á
íslandi, voru veitt í þriðja sinn á alþjóðlega
barnabókadaginn 2. apríl. Frú Vigdís
Finnbogadóttir afhenti Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur verðlaunin við fjölmenna
athöfn í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í
Grófarhúsinu við Tryggvagötu.
í umsögn valnefndar segir meðal annars:
„Á þessum tólf árum sem rithöfundarferill
Kristínar Helgu spannar hefur hún skrifað
hátt á annan tug bóka, að minnsta kosti eina
á ári og stundum tvær. Oft hafa mikil afköst
vera talin skerða gæðin: að rithöfundur gefi
sér ekki tíma til að vanda til verka. Kristín
Helga hefur margsannað að það er bara
goðsögn.
Binna, Hekla, Mói hrekkjusvín, Silfurberg-
þríburarnir, og síðast en ekki síst Fíasól,
eru persónur sem barnið í okkar húsi og
barnabarnið í næsta húsi hafa alist upp
með, svipað og eldri kynslóðin á íslandi í
dag ólst upp með Línu Langsokk og Önnu
í Grænuhlíð. Mjög sennilega munu þau tala
um Ffusól með sérstakan glampa í augunum
eftir tíu, tuttugu eða þrjátíu ár. í Ffusól hefur
Kristín Helga skapað persónu sem er íslensk,
sjálfstæð, skapandi og frumleg en um leið
afar trúverðug.
Undirliggjandi boðskapur bóka Kristínar
Helgu er krafa um að hugsa sjálfstætt og
að vera góð og heilsteypt manneskja, en
þessi boðskapur kemur hvergi fram á of
opinskáan hátt. Kristín Helga hefur eingöngu
skrifað barnabækur og hún hefur sannað að
góður barnabókahöfundur getur skipað sér í
fremstu röð íslenskra rithöfunda."
Ouðlaug Richter