Börn og menning - 01.04.2009, Blaðsíða 33
Barnabókaverðlaun 2009
33
Draugaslóð tilnefnd til Norrænu
barnabókaverðlaunanna 2009
Félag fagfólks á skólasöfnum hefur tilnefnt bókina Draugaslóð eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur til Norrænu barnabókaverðlaunanna
2009. Norrænu barnabókaverðlaunin eru veitt af Nordisk
skolebibliotekarforening, norrænum samtökum skólasafnskennara.
Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1985 en sú breyting hefur
orðið á að nú eru þau peningaverðlaun og veitt annað hvert ár.
Dómnefndin er skipuð fulltrúum allra Norðurlandanna og verðlaunin
verða afhent á ráðstefnu Nordisk skolebibliotekarforening í Finnlandi
næsta haust.
Fyrsta bók Kristínar Helgu, Elsku besta Blnna mín, kom út árið 1997
og síðan hefur komið út eftir hana fjöldi barnabóka. Hún hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar; Barnabókaverðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur árið 2001 fyrir bókina Mól hrekkjusvín,
Vorvinda, viðurkenningu IBBY á íslandi fyrir bókina Strandanornir
og á haustdögum 2008 fékk hún Barna- og unglingabókaverðlaun
Vestnorræna ráðsins fyrir Draugaslóð. Auk þess hefur Kristín Helga
fjórum sinnum fengið Bókaverðlaun barnanna en þar eru það
bækurnar um Fíusól sem notið hafa mestra vinsælda lesenda.
Draugaslóð kom út hjá Máli og menningu árið 2007. Hún segir
frá hinum þrettán ára Eyvindi Þórusyni sem býr með ömmu sinni
í gömlum bústað við Elliðavatn. Örlögin leiða Eyvind upp á öræfi
þar sem hann fetar dularfulla draugaslóð á vettvangi Fjalla-Eyvindar
og Reynistaðarbræðra. Inn í söguna fléttast síðan örlög tveggja
skoskra bræðra sem um margt eiga sér hliðstæður í frásögnum
af Reynistaðarbræðrum. Inn í söguþráðinn spinnur Kristín Helga
íslenskar þjóðsögur, örnefni og frásagnir af löngu liðnum atburðum,
íslensk náttúra og íslenskur sagnaarfur svífur yfir vötnunum f
Draugaslóð.
Norrænu barnabókaverðlaunin hafa fjórum sinnum komið í hlut
íslenskra höfunda. Árið 1992 hlaut Guðrún Helgadóttir þau, 2003
Kristín Steinsdóttir, 2005 Ragnheiður Gestsdóttir og 2007 Brynhildur
Þórarinsdóttir.