Börn og menning - 01.04.2011, Side 5
Frá ritstýrum
5
Vorhefti Barna og menningar árið 2011 er
nú komið út og undirritaðar eru býsna sáttar
við afraksturinn. Blaðið ber sterkan svip af
mannlifinu í Múmíndal því þrjár af greinunum
fjalla um viðkunnanlegu verurnar sem Tove
Jansson bjó til og veröld þeirra. Dagný
Kristjánsdóttir, prófessor við Háskóla Islands,
skrifar grein með yfirskriftina Múmínálfarnir
og hamskiptin, Erna Erlingsdóttir,
íslenskufræðingur, skrifar um smásagnasafnið
Seint í nóvemberog Sirke Happonen, kennari
við háskólann í Helsinki, fjallar um dansinn
í múmínálfabókunum en þess má geta að
hún varði fyrir nokkrum árum doktorsritgerð
um múmínálfabækurnar. Sirke var fyrirlesari
á barna- og unglingabókmenntahátíðinni
Myndir úti í mýri, sem haldin var í Norræna
húsinu í fyrra og það var einnig Elina Druker,
kennari við Stokkhólmsháskóla og doktor
í mynd- og textatengslum í norrænum
barnabókum. Elina fjallar í þessu blaði um
nýlega strauma, og þá sérstaklega áhrif
tölvugrafíkur, I myndskreytingum sænskra
barnabóka. Ýmislegt annað tengt bók-
menntum og barnaleikhúsi má að vanda
einnig finna í blaðinu, sem vonandi vekur
áhuga og hugnast lesendum.
Með þessu blaði kveður Þórdís Gísladóttir
sem hefur ritstýrt Börnum og menningu
frá 2006. Frá og með haustinu tekur Helga
Ferdinandsdóttir við ritstjórninni. Þórdís
þakkar lesendum fyrir sig og býður Helgu
velkomna, en hún var aðstoðarritstýra þessa
blaðs.
Að lokum óskum við öllum lesendum
gleðilegs sumars og sólríkra daga.
Þórdis Gisladóttir og Helga
Ferdinandsdóttir