Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 17

Börn og menning - 01.04.2011, Blaðsíða 17
Dansað í Múmindal eru margar svipaðar lýsingar á hreyfingum í snöggum takti. ( inngangsmynd að sögunni sem ber nafn hennar hleypur Fillífjonkan með útrétta arma, úfið hár og pilsaþyt. Veiðistöng Snúðs og állinn sem er á önglinum fljúga f boga yfir stöðugri mynd hans sjálfs og í smásögunni „Granen" æða verur í jólaös áfram með hreyfingum sem eru dæmigerðar fyrir nútímadans. ( skissum að myndskreytingunum eru myndir með hreyfingum oft enn líflegri, með grófgerðum línum sem skarast þvers og kruss. Vinnuaðferðir Tove Jansson voru að því leyti sérstakar að hún gerði margar útgáfur og valdi síðan þá sem henni fannst best.2 Skissurnar fyrir myndskreytingar múmínálfabókanna innihalda meiri hreyfingar en lokaútgáfurnar. ÞaðerljóstaðToveJansson hefur ákveðið að birta myndir með rólegra yfirbragði. Stundum virðist markmiðið hafa verið jafnvægi milli texta og myndar. Þannig lýkur til dæmis Vetrarundrum í Múmíndal með teikningu þar sem Múmínsnáðinn situr efst í baðhúströppunum og horfir út í bláinn. Upphaflega teikningin, sem Tove Jansson ætlaði að hafa þarna, sýnir aðra útgáfu, af hlaupandi Múmínálfi en hann er búið að krota yfir. Aftur á móti segir í textanum frá hreyfingu, hvatvíslegum spretti alla leið að tröppum baðhússins. Og þegar enginn sá lengur til hans, tók hann á rás. Hann hentist gegnum snjóbráðina með sólina í bakið, hann þaut eins og sending bara af því að hann var svo yfir sig hamingjusamur og hugsði ekki um nokkurn skapaðan hlut. (Vetrarundur í Múmíndal 1969 s. 127-128) ( múmínálfabókunum á Morrinn þyngstu og mest titrandi hreyfingamynstrið. Þar sem ekki sést í bol verunnar og fætur eru hreyfingarnar erfiðar eða ómögulegar 2 Bréf Tove Jansson til greinarhöfundar í janúar 2000. Áhrifin af hreyfingum á myndunum í smásagnasafninu eru i ætt við myndlýsingarnar i Hobbitanum. Bækurnar komu báðar út árið 1962. 3 Hér er vert að benda á að í islenskri þýðingu Steinunnar Briem á múmínátfabókunum er Morrinn karlkyns. og þess vegna ótvíræðar: Dansandi fjall sem breikkar ofan frá og niður. Morrinn dansar aðeins í einni bókanna, Eyjunni hans Múminpabba, þar sem dansinum er einungis lýst með orðum. f upphafi sömu bókar sýnir Tove Jansson hana hins vegar í annarri kröftugri hreyfingu. Það er túlkunarspurning hvort Morrinn sigli áfram eða hvort hún3 fljúgi; myndin er mjög lítil en áhrifamikil engu að síður. ( þessari bók frelsar Tove Jansson Morann, sem áður hafði bara liðið áfram en fær nú að hreyfa sig með fjölbreytilegri hætti. Sönnun fyrir orkunni í hreyfingunni og kyrrstöðunni ásamt því hvernig þessi hugtök tengjast er einmitt að Morrinn byrjar að dansa og að Morri sem dansar muni aldrei sjást framar í múmínálfabók. Höfundur er kennari við Háskólann í Helsinki. t f Heimildir: Happonen, Sirke, Vilijonkka ikkunassa: Tove Janssonin muumiteosten kuva, sana ja liike, Helsinki, 2007 ("The Fillyjonk at the Window: Images, Words and the Depiction of Movement in Tove Jansson's Moomin Books"). Jansson, Lars, Moomin and the Comet, 1958. Jansson, Tove, Kometjakten, Helsingfors, 1946. Jansson, Tove, Mumintrollet och jordens undergáng, 1947^18. Jansson, Tove, Comet in Moominland, þýðing Elizabeth Portch, London, 1951. Jansson, Tove, Mumintrollet pá kometjakt, Norrköping, 1956. Jansson, Tove, Trollvinter, Helsingfors, 1957. Jansson, Tove, Pappan och havet, Helsingfors, 1965. Jansson, Tove, Kometen kommer, Helsingfors, 1968. Jansson, Tove, Sent i november, Helsingfors, 1970. Jansson, Tove, Meddelande. Smásögur í úrvali (Noveller i urval) 1971-1997, Stockholm, 1998. Jansson, Tove, skreytingar og skopteikningar I tímaritinu Garm, Helsingfors. Sendak, Maurice, "The Shape of Music", Caldecott & Co. Notes on Books & Pictures, New York, 1988 [1964], s. 3-9 (först publicerad i Book Week, The Sunday Herald Tribune, Novemberl, 1964). Tolkien, J.R.R., Bilbo - En hobbits áventyr, myndskreytt af Tove Jansson, þýðing Britt G. Hallqvist, 1962. Óprentaðar heimildir: Jansson, Tove, 1919-1920. Teikningar og myndskreytingar úr bernsku og frá némsárum. Úr einkasafni. Tove Janssons skissur og myndskreytingar, Ábo Akademi, handritadeild. Tove Janssons skissur að múmínmyndskreytingum. Listasafnið í Tampere. Múmíndals-safnið. Greinin er þýdd eftir sænskri þýðingu Janinu Orlof og birtist í ritinu / litteraturens underland. Ritstj.: Maria Andersson, Elina Druker og Kristin Hallberg. Útg. Makadam í Stokkhólmi og Gautaborg, 2011. íslensk þýðing: Þórdís Gísladóttir. Þar sem við á er vitnað í þýðingar Steinunnar Briem á bókunum um múmínálfana. Dr. Gunnar Hrafn Hrafnbjargarson fær þakkir fyrir yfirlestur og ábendingar.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.