Börn og menning - 01.04.2011, Side 18

Börn og menning - 01.04.2011, Side 18
 Elina Druker Breidd stíls og tækni í sænskum mynda- bókum samtímans mætti líta á sem einkenni á listgrein sem fer ört stækkandi. Þróunin er að sumu leyti tengd tækniframförum á sviði tölvugrafíkur á síðastliðnum fimmtán árum. Ein helsta nýbreytnin er að blanda saman þáttum úr ólíkum áttum stafrænt, og svo að endurheimta og endurvinna sjónræna stíla og áhrif. En samsíða hinni stafrænu þróun - og mögulega einnig sem andsvar við henni - er mikill áhugi á hefðbundnum aðferðum og hefðum í myndskreytingum. Leikur með hefðbundna tækni er undirstöðuatriði í bók Lisen Adbáges Kurt och Kio vill ha koja (2009). Sagan sjálf er einföld og látlaus. Aðalpersónurnar, vinirnir tveir Kurt og Kio, sjá að strákarnir í næsta húsi hafa byggt sér hús uppi í tré. Kurt og Kio vilja einnig eignast tréhús en þá vantar tré til að byggja í og fara því að leita að fullkomnum stað undir húsið. Þeir kanna skóginn, göturnar og garðinn, ströndina, rýmið undir stiganum og inní söluturni, en enginn af þessum stöðum virðist sá rétti. Þó að texti Adbáge sé bæði stuttur og án málalenginga eru myndirnar í bókinni málaðar skærum litum með ofgnótt skrautlegra smáatriða. Þó að þær líti út eins og samklipp (collage), þá eru myndskreytingarnar málaðar mjög nákvæmlega, með smáum pensli og aðallega notast við vatnsliti og lítið eitt af gvasslitum og þynntri akrílmálningu. Sú tækni, sem er notuð í mynd- skreytingunum, hefur mjög mikið að segja um stemmninguna sem skapast og það er augljóst í senunni þegar Kurt og Kio rannsaka skóginníleitaðmögulegumbyggingasvæðum fyrir tréhúsið sitt. Skógurinn hefur yfirleitt mikilvægu hlutverki að gegna I sænskum ævintýrum og barnabókum, þar sem John Bauer og Elsa Beskow eru áhrifavaldar í myndskreytingum. Honum er oft lýst sem ógnvekjandi eða ævintýralegum, en einnig sem draumkenndum stað. Það er samt á hreinu að í sögu Adbáge þá er skógurinn sýndur sem skrítinn og yfirþyrmandi. í myndinni úrskóginum þekja trén alla síðuna. Kio virðist hikandi, og andlitssvipurinn lýsir áhyggjum og ugg. Þetta hik kemur einnig fram í orðræðu persónanna, sem segja einfaldlega að það sé „úr of mörgum trjám að velja". Trjábolirnir eru sýndir sem flöt, samsíða lóðrétt form í mismunandi litum, en jörðin er hulin greninálum, maurum og litlum sveppum. Leikurinn með lóðrétt munstur trjábolanna minna á myndir Tove Janssons af skógi í myndabókum eins og Hur gick det sen? (1952) eða Vem ska trösta Knyttet? (1960). í myndabókum sínum kannar Jansson fjarvíddardýpt á ákaflega módernískan hátt og útfærir hefðbundinna framsetningu á náttúrunni með óvenjulegum litum. Með leiksviðslegum fjarvíddum og lagskiptum myndflötum er storkað hinni hefðbundnu hugmynd um myndrýmið sem raunsæislegan spegil veraldarinnar. Annað dæmi um samspil bókmenntalegra og listrænna hefða er bók Jöns Mellgrens

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.