Börn og menning - 01.04.2011, Qupperneq 22
Leikhús fyrir lítil börn - og líka þau stærri
Löng hefð er orð/'n fyrir leiksýningum
fyrir börn, allt frá 2ja-3ja ára aldri og
upp úr. Undanfarið hefur leikhúsum
í grannlöndunum fjölgað sem setja
upp leiksýningar fyrir lítil börn. Með
„lítil" á ég ekki aðeins við hressa
leikskólakrakka, heldur jafnvel ómálga
smábörn, bleyjubörn sem ekki eru farin
að stíga í fæturna. í fjórða tölublaði
sænska barnamenningartímaritsins
Opsis Kalopsis á síðasta ári er fróðieg
grein eftir Karin Helander, prófessor
í leikhúsfræðum og forstöðumann
miðstöðvar barnamenningarrannsókna
við Stokkhólmsháskóla, um leiksýningar
fyrir allra yngstu áhorfendurna, sýningar
sem ætlað er að veita börnunum listræna
upplifun alveg án nokkurra beinna
uppeldislegra formerkja.
Smábarnasýningar
[ Noregi var árið 2000 farið af stað með
verkefnið „Klangfugl" sem síðan var þróað
yfir í Evrópuverkefnið „Glitterbird", þriggja
ára samvinnuverkefni hópa frá nokkrum
Evrópulöndum um listsköpun fyrir allra
yngstu börnin. í Klangfugl-verkefninu fengu
sextán listamenn tækifæri til að skapa og
miðla list sinni til litlu krakkanna, þar á
meðal leiklist, tónlist og dansi og sýningum
þar sem þessu öllu var fléttað saman. Þetta
þótti takast vel og nú eru nokkur leikhús á
Norðurlöndunum með sýningar fyrir lítil börn.
Upphaf sýninga fyrir yngstu börnin í Svíþjóð
er líklega tilraunasýningin Babydrama, sem
sett var upp af leikstjóranum Suzanne Osten
og sálgreininum Ann-Sofie Bárány í Unga
Klara-leikhúsinu í Stokkhólmi árið 2006.
Þar var tekið á móti tólf börnum á aldrinum
sex mánaða til eins árs á hverja leiksýningu,
en um var að ræða stóra sýningu með sex
leikurum, tónlíst og miklu Ijósasjóvi. Þema