Börn og menning - 01.04.2011, Qupperneq 26

Börn og menning - 01.04.2011, Qupperneq 26
26 Börn og menning Boð um að skrifa pistil með nafninu Pabbi les kom á hárréttum tíma. Ég var þá um nokkra hríð búinn að vera að gera lestrarfræðilegar tilraunir á miðbarninu, sex ára strák sem er sjálfur farinn að stauta sig gegnum bækur en vill samt enn láta lesa fyrir sig eftir háttur uppi í rúmi. Tilraunirnar fólust í því prófa gamlar eftirlætisbækur úr æsku minni á piltinum. Niðurstöðurnar voru óvæntar en varpa kannski Ijósi hvað hægt er að bjóða börnum upp á af lesefni. Hallgrímur J. Ámundason Mö þýðir halló, Svartnasi og ævintýrin sem entust ekki Allmörgum árum fyrr hafði ég gert svipaða tilraun á frumburðinum, dóttur minni. Hún hefur þá verið á aldrinum 4-6 ára. Ég sannreyndi þá að margar vinsælustu bækurnar úr mínum uppvexti höfðu lítt eða ekki látið á sjá: Pípuhattur galdrakarlsins, Bróðir minn Ijónshjarta, Fúsi froskagleypir. Tove Jansson, Astrid Lindgren og Ole Lund Kirkegaard slógu sjaldan feilnótu. Bækurnar sem nú stóð til að reyna á drengnum voru t.d. bækur Enidar Blytons, Hughs Loftings og Saint-Exupéry. Þá þegar höfðu staðist prófanir bækurnar um Snúð og Snældu, Palla sem var einn ( heiminum, Stubb, Tralla, Láka, Einar Áskel, Jón Odd og Jón Bjarna og margar fleiri. Þær hlutu allar náð fyrir eyrum hins krítíska hlustanda. Ævintýrabækurnar eftir Blyton eru á baksíðu kynntar sem vinsælustu barnabækur sem hafi komið út á íslensku, „enda afburða skemmtilegar og spennandi". Ævintýraeyjan reis síður en svo undir öllu lofinu. Miðbarnið baðst undan frekari lestri strax eftir um 20 blaðsíður. Þá hafði lítið gerst annað en að páfagaukur ruddi út úr sér svívirðingum (sem hafa kannski þótt særandi um miðja síðustu öld („Geturðu ekki lokað dyrunum, flónið þitt?") en enginn kippir sér upp við núna, allra síst börn). Myndskreytingarnar höfðu ekki elst mikið betur. Litli prinsinn eftir Saint-Exupéry var uppistaðan í næstu tilraun. Strax eftir lýsinguna á hattinum sem var ekki hattur heldur slanga með fíl í maganum fór að halla undan fæti. Þessi saga er á bls. 1-2. Það kom semsé fljótt í Ijós að prinsinn lifði á fornri frægð. Þráðurinn I sögunni reyndist býsna gisinn þegar maður kynntist henni aftur á miðjum aldri. Einstaka skondin athugasemd breytti litlu um það. Þessi bók var ekki kláruð frekar sú næsta á undan. Dagfinnur dýralæknir var ein af gömlu hetjunum. Kall sem skildi dýramál gat ekki klikkað. Hann gerði það heldur ekki þótt miðbarnið sýni annars dýraríkinu takmarkaðan áhuga. Konungsríkið Jolliginki og rófulausi tvíhöfðinn sáu til þess. Þessi bók var lesin spjaldanna á millí og kom ekki að sök þótt næstsíðustu tvær blaðsíðurnar væru glataðar úr bókinni. Það rifjaðist líka upp fyrir mér við

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.