Börn og menning - 01.04.2011, Side 28

Börn og menning - 01.04.2011, Side 28
28 Börn og menning úr Gerður Kristný Drekar, draugar og dálítil prinsessa Diane var fögur kínversk stúlka sem sótti með mér taltíma í frönsku í Nice fyrir margt löngu síðan. Kínverska nafnið hennar var of óþjált fyrir okkur Vesturlandabúana að bera fram og þess vegna var hún kölluð Diane. Við vorum mörg hver orðin ágæt í frönsku. Skammlaust gátum við spjallað við sölumennina á blómamarkaðinum um gerberur og gladíólur og á fiskmarkaðinum báðum við hikstalaust um hnakkastykkið af þorskinum í stað styrtlunnar. Já, við vorum alveg orðin fær um að ræða heimspekinga og hönnuði svo heimamenn skildu okkur. Franskan hennar Díönu var af allt öðrum meiði. I hvert skipti sem hún opnaði munninn flugu rauðir drekar, litrík Ijósker og margra alda gamlir Ming-vasar um skólastofuna. Við máttum hafa okkur öll við að reyna að halda þræði. Samt var Diane óhrædd við að tjá sig og það virtist ekki snerta hana hið minnsta þótt kennarinn missti stundum þolinmæðina, gripi inn í miðja frásögn og segði hraðmæltur: „Já, já, þetta er komið gott. Næsti!" Hann var ekkert sérstaklega fint fölende, þessi maður, og hikaði ekki við að hrista mæðulega hausinn þegar Diane var komin á blússandi skrið án þess að nokkur áttaði sig á hvert hún stefndi eða hvaðan hún hefði lagt af stað. Alltaf mætti Diane samviskusamlega í tíma og hlustaði stillt á okkur hin spjalla þar til hún fékk færi á að renna sér inn í frásögnina. Samstundis komu drekarnir fljúgandi og horfðu glottuleitir á okkur af öxlum hennar. Með tímanum púslaðist saman mynd í huga mér af lífi þessarar kínversku stúlku. Eins og svo margir Kínverjar var hún einkabarn og höfðu foreldrar hennar kostað hana til tungumálanáms í Frakklandi. Þegar við ræddum um fjölmiðla sagði Diane frá því að þegar hún var lítil hefði hún haft það fyrir venju að hafa kveikt á öllum sjónvarpstækjunum heima hjá sér í einu þegar foreldrar hennar voru í vinnunni. „Af hverju?" spurði kennarinn. „Þá fannst mér ég ekki vera jafnein," svaraði Diane. Nokkru síðar ræddum við gæludýraástríðu Frakka og þá kom í Ijós að hún hafði einmitt eitt sinn átt gæludýr. „Pabbi og mamma gáfu mér apa til að leika mér við. Ég á jú engin systkini," sagði Diane og brosti við minninguna. Svo varð hún aftur alvarleg og bætti fjarræn við: „En hann dó úr kulda." Þótt ég skildi ekki alltaf mikið í sögunum hennar Diane eru þær mér minnisstæðari en margt annað sem ég hef heyrt um dagana. Mér hefur að minnsta kosti oft verið hugsað til einkabarnsins sem bjó við vellystingar - eins og fjöldi sjónvarpstækja og heill api hljóta að teljast til - en var samt svo ósköp einmana. Mörgum árum síðar dró ég því Diane fram til að skapa prinsessu sem leiðist. Hún er komin til íslands þar sem ætlast er til að hún fari í gönguferð upp um fjöll og firnindi með afa sínum og ömmu en hana langar það ekki. Það er ekki fyrr en hún kynnist öðrum einangruðum manni, sjálfum forseta íslands, að brúnin á henni tekur að lyftast. Þau halda saman á vit ævintýranna. með kransaköku í annarri og hönd hvors annars í hinni. Satt best að segja þarf fólk oft ekki meira til að sigrast á einmanaleikanum. Leikritið mitt er um það en líka draug, kú, ráðskonu og landnámshænu. Þeir sem mæta með fálkaorðuna sína fá að klappa landnámshænunni (hléinu.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.