Börn og menning - 01.04.2011, Qupperneq 32

Börn og menning - 01.04.2011, Qupperneq 32
32 Börn og menning lesandanum við hana, allt til enda? Það er gaman að fylgjast með krökkunum og því sem þau taka sér fyrir hendur. Sagan miðast öll við að snúa frá því neikvæða til hins jákvæða. Bæta samfélagið, hjálpa þeim sem minna mega sín eða bara að læra heima. í byrjun er áhugi sögupersóna á námi í algeru lágmarki en áður en Óli veit af hefur hann skrifað ritgerð upp á níu komma fimm og er stoltur af því. Kannski á sagan að sýna hvað það getur verið gaman í skólanum ef maður sinnir náminu. En það sem sagan klárlega sýnir er að það er langskemmtilegast að vera vinur, eiga vini en lang-langskemmtilegast að eiga kærustu/kærasta. Það er toppurinn á tilverunni. Þessum unglingum liggur ekkert á að reyna sig í brjáluðum ástarleikjum - kærustupörin kyssast af miklum móð og láta þar við sitja - þau sem eldri eru ganga lengra. Má þar nefna systur Óla, hana Öddu, hún er til dæmis farin að sofa hjá kærastanum þar sem þau eru trúlofuð og byrjuð að búa saman - þótt því sambandi Ijúki svo með hvelli. í umsögn um bók Þórðar sem birtist í Morgunblaðinu rétt fyrir jól 20101 má lesa að sagan fjalli öðrum þræði um einelti. Og vissulega má finna einelti í sögunni. Bekkjarsystir Óla, Súsanna, tælensk, fær nafnlaus hótunarbréf. Þessi aðferð til andlegs ofbeldis minnir helst á Dularfullu bækurnar eftir Enid Blyton. Stafirnir eru klipptir út úr ýmsum tímaritum, þeim raðað saman í Ijótar dylgjur um fólk sem hefur það eitt unnið til saka að hafa annan húðlit en hinn venjulegi íslendingur. Krakkarnir, með Össa í fararbroddi, leggjast yfir bréfin og leysa málið á einni kvöldstund. Höfundur notar tækifærið með sögu sinni að klípa í samfélagið því lögreglan gerir ekkert til að leysa gátuna um nafnlausu bréfin. Þessi leynilögguhugmynd hjá Þórði er sniðug og fellur örugglega einhverjum lesendum vel í geð en ólíklegt er að svona lagað gerist í raunveruleikanum. Allflestir skólar búa yfir einhvers konar verkferli sem fer í gang þegar vart verður við einelti. Sagan fjallar miklu meira um vináttu, sanna, fallega vináttu milli unglinga sem styðja hver annan. Öll setja þau sér göfug markmið og vinna að þeim leynt og Ijóst. Össi nær af sér kílóum og dregur fleiri með sér í það að léttast. Óli eyðir örlítið lengri tíma í heimalærdóm og finnur að það borgar sig. Svo mætti áfram telja. Vinur sonur bróðir er sannarlega Ijúf saga um unglinga og merkilegt nokk- foreldra, sem taka ríkan þátt í sögunni. Sagan er að vissu leyti raunsönn, en kjarninn er hið notalega samband sem ríkir á milli unglinganna en einnig innan fjölskyldunnar. Foreldrar og unglingar sem geta talað saman þannig að báðir hafi gagn og gaman af, getur það flokkast undir raunsæi? Vissulega! Það má líka segja sögur af því. Höfundur er framhaldsskólakennari 1 Hólmfríður Gisladóttir. (2010, 22. des.). Þjóðlífið fátæklegt án unglinga. Sótt 11.3. 2011 af http.H www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html7grein_ id= 1361388&searchid=d03bd-051 f

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.