Börn og menning - 01.04.2011, Page 33

Börn og menning - 01.04.2011, Page 33
IBBY fréttir 33 Hörpuslag sló í gegn Sögustund 42.000 grunnskólanema í boði IBBY I tilefni af alþjóðlegum degi barnabókarinnar var ný, íslensk smásaga frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins, fimmtudaginn 31. apríl. Sagan var jafnframt lesin á Rás 1 í sömu andrá svo að öll þjóðin gæti fylgst með. Kristín Helga Gunnarsdóttir, rithöfundur, skrifaði söguna Hörpuslag fyrir börn á aldrinum 6-16 ára að beiðni IBBY á íslandi. Tilgangurinn var að fagna degi barnabókarinnar með notalegri sögustund og vekja um leið athygli á sameiningarmætti skáldskaparins. Þessu frumkvæði var tekið fagnandi og heppnaðist sögustundin svo vel að líklegt má telja að hún verði endurtekin á næsta ári. Siggerður Ólöf Sigurðardóttir, forstöðumaður skólasafns Álfhólsskóla í Kópavogi var himinlifandi yfir sögustundinni. „Það var mjög gaman að vinna á skólasafni í morgun og upplifa algeran samhljóm í öllum stofum, hvort sem á stundaskrá stóð danska, smíði, textílmennt eða íslenska. Allir sátu og hlustuðu og það var ekki nokkur sála á göngum skólans. Dásamlegt! Sumir höfðu myrkur í stofunum og þar var hlustað af athygli; aðrir sátu og punktuðu hjá sér eins og reyndir blaðamenn; nýbúar nýttu tímann til að vinna að sögu í anda Þankagöngu og skrifuðu ævintýri á tveim tungumálum; einhverfir áttu góða sögustund saman í sófa. Allir tjáðu sig um söguna og áttu kennarar og nemendur gott og gefandi spjall."

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.