Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Síða 3
Velkomin
á Hinsegin
daga 2018
Welcome to
Reykjavik Pride
2018
Kæru vinir
Baráttugleðin er yfirskrift Hinsegin daga
2018. Með því er vísað til þeirrar þrotlausu
baráttu sem hinsegin fólk á Íslandi hefur
háð á síðustu árum og áratugum. Baráttu
fyrir sjálfsögðum réttindum í íslensku
samfélagi. Á þessum tímamótum munum
við því líta um öxl. Horfa yfir farinn veg
og minnast liðinna atburða, bæði erfiðra
og gleðilegra. Við munum þó ekki leyfa
okkur að festast í fortíðinni því það þýðir
ekkert. Þess í stað setjum við kúrsinn fram
á við, brýnum raust okkar og höldum
áfram baráttu á góðum grunni öflugra
brautryðjenda.
En baráttugleðin er lýsandi í fleiri en
einum skilningi. Orðið fangar nefnilega
ekki bara baráttuna heldur einnig gleðina.
Í tímarit Hinsegin daga 2013 skrifaði
rithöfundurinn Lilja Sigurðardóttir grein
og sagði: „Við erum alveg helvíti hress. Hjá
okkur ríkir stanslaust stuð, biturðinni er
skolað niður með regnbogalitum kokteil,
kröfugangan gerir einungis kröfu um
gleði, meira að segja baráttusöngvarnir
okkar eru diskó.“ Þar er meðal annars
vísað til samkenndarinnar og húmorsins
sem gjarnan hefur einkennt hinsegin
samfélagið okkar – að minnsta kosti utan
frá séð. „Þessi óforskammaði húmor,
gleðin sem einu sinni var aðferð til að
lifa af við óbærilegar aðstæður, hún er
núna bara til að njóta,“ sagði Lilja. Okkar
leið til að lifa af. Baráttan til að knýja
fram breytingar og gleðin til að brynja
okkur fyrir fjandsamlegum viðbrögðum.
Baráttugleðin.
Gleðin hefur samt ekki alltaf náð langt
undir yfirborðið. Í gegnum tíðina hefur
hinsegin samfélagið orðið fyrir mikilli og
sársaukafullri blóðtöku. Einstaklingar úr
okkar röðum hafa látist af völdum ofbeldis
og sjúkdóma. Enn í dag er okkar fólk
líklegra til að falla fyrir eigin hendi en aðrir.
Þó ekki væri fyrir aðrar sakir en þessar er
ljóst að sýnileiki okkar, fræðsla og góðar
fyrirmyndir skipta miklu og geta hreinlega
verið lífsspursmál. Barátta okkar er ekki
háð að ástæðulausu.
Fögnum þeim árangri sem náðst hefur.
Þökkum þeim sem ruddu brautina og
minnumst þeirra sem helst hafa úr lestinni
og geta ekki glaðst með okkur í dag.
Höldum svo áfram að sýna heiminum
hvað fjölbreytileikinn er fallegur – með
gleðina að vopni.
Gleðilega hátíð!
Dear friends
There’s a word in Icelandic that captures the
spirit of Reykjavík Pride 2018: baráttugleði.
It means joy of fighting. And it refers to the
tireless struggle that queer folk in Iceland
have pursued in recent years and decades.
A struggle for self-evident rights in Icelandic
society. On this occasion, we’ll take a
backwards glance. We’ll take a look at the
road we’ve travelled and remember bygones
both trying and joyful. But we won’t let
ourselves get stuck in the past because that
means nothing. Instead we set a forward
course, raise our voices, and advance the
struggle on a path blazed by brave pioneers.
But baráttugleði is descriptive in more than
one sense. The word embraces not only the
struggle but also the joy. In the 2013 Pride
magazine, editor Lilja Sigurðardóttir wrote,
“We are always in damn good spirits. A
constant fun rules our world, the bitterness
is washed down with rainbow cocktails,
the protest march is merely a demand for
joy, and all our battle songs are disco.” She’s
talking about the sympathy and humor
that has often characterized our queer
society – at least, as seen from outside.
“This impudent humor, the cheeriness that
once was a way to survive in unbearable
circumstances, now it’s just for enjoyment,”
wrote Lilja. Our way of survival. The struggle
to force change and the joy to armor
ourselves for hostile responses. The fun fight.
The joy of struggle. Baráttugleði.
Joy has, however, not always reached far
below the surface. Over the years queer
society has suffered severe and painful
bloodshed. Individuals from our ranks have
been killed by violence and disease. But
today our people are likelier than others
to die by their own hand. If for no other
reasons than these, it’s clear that our visibility,
education, and role models make a difference
and can plainly be of vast consequence. Our
struggle is not without cause.
So let’s embrace the successes which have
been won. Let’s thank the people who paved
the way, and let’s remember those who have
breathed their last and cannot celebrate with
us today. And then let’s show the world how
beautiful diversity is – with joy as our weapon.
Happy Pride!
Gunnlaugur Bragi, formaður Hinsegin daga / President of Reykjavik Pride:
Stjórn Hinsegin daga 2018 / Reykjavik
Pride’s team 2018:
Gunnlaugur Bragi Björnsson –
formaður / president
Helga Haraldsdóttir –
meðstjórnandi / board member
Karen Ósk Magnúsdóttir –
gjaldkeri / treasurer
Ragnar Veigar Guðmundsson –
meðstjórnandi / board member
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson –
ritari / secretary
3