Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 14
VIÐBURÐUR / EVENT
VINNUSTOFA / WORKSHOP
VIÐBURÐUR / EVENT
MÁLUM GLEÐIRENDUR
LET’S PAINT A RAINBOW
Þriðjudaginn 7. ágúst
klukkan 12:00, en hvar?
Tuesday 7 August at
12 p.m., but where?
Það er orðin hefð að mála regnboga í Reykjavík á Hinsegin dögum
og málningarvinnan markar upphaf hátíðarinnar. Götumálunin er
unnin í samstarfi við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
og er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu í miðborg Reykjavíkur.
Sjálfboðaliðar sem vilja taka þátt eru hvattir til að mæta með eigin
pensla. Staðsetningin verður tilkynnt á samfélagsmiðlum og vefnum
hinsegindagar.is mánudaginn 6. ágúst.
Painting a rainbow is a Reykjavik Pride tradition which marks the
formal start of the six day rainbow festival. Some paintbrushes will
be available for interested volunteers but it is recommended that
you bring your own. The event is organised in cooperation with
Reykjavík City’s “Meanwhile projects”. Location will be revealed on
social media and reykjavikpride.is on Monday 6 August.
KVIKMYNDIR MEÐ MY GENDERATION
Stúdentakjallaranum, Sæmundargötu
4, þriðjudaginn 7. ágúst kl. 17:00.
Aðgangur ókeypis.
Stúdentakjallarinn, University of Iceland,
Tuesday 7 August at 5:00 p.m.
Free admission.
My Genderation býður í bíó! Ugla Stefanía og Fox Fisher sýna
nokkrar nýjustu stuttmyndir sínar og tvinna þær saman við
umræður um réttindabaráttu og líf trans fólks í Bretlandi og á
Íslandi.
My Genderation er kvikmyndaverkefni sem einblínir á reynslu og
líf trans fólks. Það sem gerir My Genderation sérstætt er að allar
kvikmyndirnar eru framleiddar af trans fólki og fjalla um trans fólk
en eru ætlaðar fyrir mun stærri áhorfendahóp. Viðburðurinn fer
fram á ensku.
My Genderation invites you to the movies! Owl and Fox Fisher host
a film night where they showcase some of their most recent work,
and tie that together with discussions about trans issues in the UK
and Iceland.
My Genderation is a film project that focuses on trans rights and
trans experiences. What makes My Genderation unique is that it's
films made by trans people, about trans people, but for a much
wider audience. Event in English.
MY GENDERATION FILM NIGHT
VINNUSTOFA UM KVIKMYNDAGERÐ MEÐ MY GENDERATION
FILM MAKING WORKSHOP WITH MY GENDERATION
Safnahúsinu, Hverfisgötu 15,
þriðjudaginn 7. ágúst kl. 14:00.
Aðgangseyrir: 1.000 kr.
Skráning og miðasala á hinsegindagar.is
Safnahúsið, Hverfisgata 15, Tuesday 7 August
at 2:00 p.m. Admission: 1.000 ISK. Ticket sale
and registration on reykjavikpride.is
Í þessari vinnustofu verður farið yfir helstu atriði
kvikmyndagerðar og þátttakendur læra um ferlið og hvernig
það virkar. Þeim gefst einnig tækifæri á að taka þátt í framleiðslu
á nokkrum stuttum myndböndum um réttindastöðu trans og
intersex fólks á Íslandi í tengslum við nýja löggjöf, hvort sem er
fyrir framan myndavélina eða við framleiðslu (upptökur, hljóð,
o.s.frv.). Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, læra um ferlið eða vera
fyrir framan myndavélina, endilega láttu sjá þig! Viðburðurinn fer
fram á ensku.
This workshop will focus on the basics of filmmaking and aims to
give participants some practical information about the process.
Participants will also be given the opportunity to be a part of a
few short films about the legal rights of trans and intersex people
in relation to new legislation, both as subjects of the films and in
production roles. So if you're interested in taking part, either as a
person in production or as a face in the videos, come along! Event
in English.
14