Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 22
ÁSTRÍKUR
ER STOLTUR
STYRKTARAÐILI
HINSEGIN DAGA
2018!
Borg Brugghús og aðstandendur Hinsegin daga fögnuðu
útkomu bjórsins Ástríks nr. 51 á Kiki á dögunum. Góð stemming
myndaðist á staðnum og fjörið náði hámarki þegar Miss Gloria
Hole steig á svið við gríðarlegan fögnuð gesta. Þá ávarpaði
Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga,
samkomuna auk þess sem Hlynur Árnason, bruggmeistari hjá
Borg, kynnti bjórinn og hugmyndina að baki honum.
Ástríkur var fyrst bruggaður í tilefni af Hinsegin dögum árið 2013.
Þegar hugmyndin kviknaði valt af stað mikil umræða hjá okkur um
vandaða útfærslu og framkvæmd. Markmiðið var ekki að skella
regnboganum á umbúðir til að selja meiri bjór heldur gera eitthvað
sem væri gott og gagnlegt innlegg í baráttuna.
Borg Brugghús var í raun lítið sprotaverkefni á þessum tíma og
markaðurinn fyrir sérbjóra var lítill; nokkur hundruð manna hópur
bjórnörda sem fagnaði ákaft í hvert skipti sem nýr bjór bættist í
flóruna. Þó gátum við engan veginn haldið í við eftirspurn þeirra.
Við ákváðum því að stíga skrefið og senda skilaboð inn í hópinn
með bjór sem væri dálítið hinsegin: Sterkur, litríkur og … já … með
hinsegin miða (á hvolfi).
Hinn upphaflegi Ástríkur var því hressilega maltríkt öl í belgískum
klausturstíl með styrkleika upp á heil 10%. Það þýddi að verðið
var hátt, þökk sé íslenska áfengisskattinum, og því var það aðeins
á færi hörðustu bjóráhugamanna að næla sér í einn í Vínbúðinni.
Þannig vildum við færa dálítið brot af gleðigöngunni inn í heim
bjórnördanna.
En tímarnir breytast, áhugi á bjórum sem skera sig úr
meginstraumnum hefur margfaldast hratt og Ástríkur hefur
orðið sífellt stærri hluti af gleðinni á Hinsegin dögum. Þess vegna
óskuðum við eftir því fyrir hátíðina í fyrra að koma formlega að
henni sem styrktaraðili og var því erindi vel tekið.
Í ljósi þess var ákveðið að stíga skrefið til fulls í hina áttina, fyrir alla
þá sem vilja lyfta glasi til að fagna og berjast fyrir réttindum hinsegin
fólks. Ástríkur hefur verið færður í aðgengilegri, budduvænni og
hressari belgískan pale ale-stíl og lést aðeins og mælist nú með
styrkleika upp á 4,6%. Það þýðir að fleiri geta keypt hann og allir
geta drukkið hann langt fram á nótt.
Það er fátt sem gerir vinnuna skemmtilegri en að fá að taka þátt í
einhverju sem raunverulega skiptir máli. Takk fyrir að leyfa okkur að
taka þátt.
Skál,
Strákarnir á Borginni.