Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2018, Qupperneq 38
Gleðigangan
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin
daga. Í henni sameinast lesbíur,
hommar, tví- og pankynhneigðir, trans
fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin
einstaklingar í einum hópi ásamt
fjölskyldum sínum og vinum til að
staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði,
ásamt því að minna á þau baráttumál
sem skipta hvað mestu máli hverju
sinni. Hinsegin dagar skipuleggja
gleðigönguna og stýra hvaða atriði fá
aðgang að henni en atriðin sjálf eru
sprottin úr grasrótinni. Einstaklingar
og hópar geta skipulagt atriði og sótt
um þátttöku í göngunni en Hinsegin
dagar setja sem skilyrði að öll atriði miðli
skýrum skilaboðum sem varða veruleika
hinsegin fólks á einn eða annan hátt.
Uppstilling og gönguleið
Uppstilling göngunnar verður frá
kl. 12 á Sæbraut, austan Faxagötu,
í nágrenni tónlistarhússins Hörpu.
Gangan leggur af stað frá gatnamótum
Sæbrautar og Faxagötu stundvíslega kl.
14 og bíður ekki eftir neinum. Gengið
verður eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu,
Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu.
Þá taka við glæsilegir útitónleikar í
Hljómskálagarðinum (sjá kort bls. 40–41).
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera með atriði
í gleðigöngunni skulu sækja um það
til Hinsegin daga eigi síðar en 1. ágúst.
Nauðsynlegt er að skrá atriði með því
að fylla út rafrænt umsóknareyðublað
sem finna má á www.hinsegindagar.is/
gledigangan. Nánari upplýsingar veita
göngustjórarnir Eva Jóa, Steina, Lilja,
Anna og Þórhallur, en hægt er að senda
þeim póst á gongustjorn@hinsegindagar.
is. Öryggisstjóri er Eva Jóa og hægt er að
senda henni spurningar varðandi öryggi
í göngunni í pósti á netfangið evajoa@
hinsegindagar.is.
Athugið að ekki er hægt að veita fólki
með atriði aðgang að göngunni nema
rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og
send og skilmálar samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir
sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt
um þátttöku og eru ekki með sérstakt
atriði, bíði með að slást í hópinn þar til
síðasti vagninn hefur farið framhjá.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því að
gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum
sambærilegum göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu
eru óheimilar. Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur taka
þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn
en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki.
The Pride Parade
Frá tónlistarhúsinu Hörpu,
laugardaginn 11. ágúst kl. 14:00.
From Harpa Concert Hall,
Saturday 11 August at 2 p.m.
38