Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Síða 39

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Síða 39
Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum verður til þess að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni. Gleðigöngupotturinn Með samstarfssamningi Hinsegin daga og Landsbankans varð til sérstakur styrktarpottur gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa til þátttöku í gleðigöngunni og þannig m.a. aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja, efniskaup og fleira. Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000–500.000 kr. Dómnefndin hefur heimild til að halda eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar hvatningarverðlauna að hátíð lokinni. Þar með hafa allir styrkir og verðlaun Hinsegin daga verið færð undir einn hatt og því er ekki hægt að sækja um aðra styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga. Auglýst var eftir umsóknum í maí og umsóknarfrestur rann út 11. júní. Áhugasamir þátttakendur eru hvattir til að fylgjast með og sækja um á næsta ári. Sjá nánar á hinsegindagar.is/styrkir. The Pride Parade Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before the 1st of August by filling out a form which can be found on the website, www.reykjavikpride.is. For further information about the parade, please contact the parade managers Eva, Steina, Lilja, Anna and Þórhallur by e-mail at gongustjorn@hinsegindagar.is. The parade staging area is at Sæbraut, near Harpa Concert Hall, from 12 a.m. The parade starts at 2 p.m. sharp and goes from the intersection of Sæbraut and Faxastígur, through Kalkofnsvegur, Lækjargata, and Fríkirkjuvegur. The parade concludes at Sóleyjargata near Hljómskálagarður, where an outdoor concert will then take place. Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga. Við göngum í þágu mannréttinda og mannvirðingar og biðjum gæsa- og steggjapartí vinsamlegast að virða það og finna sér annan vettvang. 39

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.