Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2018, Blaðsíða 39
Í örfáum undantekningartilvikum
eru auglýsingar heimilar en þá þarf
að sækja sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að allar
ósamþykktar auglýsingar á bílum og
fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af
stað. Brot á þessum reglum verður til þess
að atriði er hafnað eða vísað úr göngunni.
Gleðigöngupotturinn
Með samstarfssamningi Hinsegin daga
og Landsbankans varð til sérstakur
styrktarpottur gleðigöngunnar. Pottinum
er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa
til þátttöku í gleðigöngunni og þannig
m.a. aðstoða þátttakendur við að standa
straum af kostnaði við hönnun atriða,
leigu ökutækja, efniskaup og fleira.
Dómnefnd velur styrkþega úr
innsendum umsóknum og úthlutar
styrkjum með það að markmiði að
styðja framúrskarandi hugmyndir til
framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir
styrkja úr Gleðigöngupottinum
séu á bilinu 100.000–500.000 kr.
Dómnefndin hefur heimild til að halda
eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar
hvatningarverðlauna að hátíð lokinni.
Þar með hafa allir styrkir og verðlaun
Hinsegin daga verið færð undir einn hatt
og því er ekki hægt að sækja um aðra
styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna
þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga.
Auglýst var eftir umsóknum í maí
og umsóknarfrestur rann út 11. júní.
Áhugasamir þátttakendur eru hvattir til
að fylgjast með og sækja um á næsta ári.
Sjá nánar á hinsegindagar.is/styrkir.
The Pride Parade
Groups that wish to participate in the
parade must apply to Reykjavik Pride
before the 1st of August by filling out a form
which can be found on the website,
www.reykjavikpride.is. For further
information about the parade, please
contact the parade managers Eva, Steina,
Lilja, Anna and Þórhallur by e-mail at
gongustjorn@hinsegindagar.is. The parade
staging area is at Sæbraut, near Harpa
Concert Hall, from 12 a.m. The parade
starts at 2 p.m. sharp and goes from the
intersection of Sæbraut and Faxastígur,
through Kalkofnsvegur, Lækjargata, and
Fríkirkjuvegur. The parade concludes at
Sóleyjargata near Hljómskálagarður, where
an outdoor concert will then take place.
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir
steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki
velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga.
Við göngum í þágu mannréttinda og
mannvirðingar og biðjum gæsa- og
steggjapartí vinsamlegast að virða það
og finna sér annan vettvang.
39