Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Síða 47
nýtt og ólíkt þeirra eigin persónuleika.
Fólk prufar sig áfram með eiginleika
og persónutýpur sem annars fá
ekki að líta dagsins ljós og brýtur
niður staðalímyndir um kyngervi og
kynhlutverk í leiðinni. „Ég áttaði mig ekki
á því alveg í byrjun en Gógó Starr varð til
sem algjör framlenging af mér sjálfum,
ég var að leyfa mér að vera ég allur og
meira til,“ segir Sigurður. „Þegar ég lít til
baka sé ég að ég lærði mjög mikið um
sjálfan mig og af sjálfum mér í gegnum
dragið og af því að vera Gógó, vera með
sjálfsöryggi through the roof, koma fram
og hafa gaman og leyfa mér að njóta
mín í mínum líkama. Að taka þetta allt
yfir í mitt daglega líf gerði mjög mikið
fyrir mig, í dag er Gógó aðeins dempaðri
karakter en hún var fyrst og Siggi í sínu
daglega lífi er miklu ýktari karakter
heldur en áður, þannig að bilið á milli er
orðið miklu styttra.“
Stórar hugsjónir
Sigurður hefur talsvert komið fram í
Bandaríkjunum og segir dragsenuna
þar geta verið einsleita á hverjum stað
fyrir sig, til dæmis sé afar sjaldgæft að
kóngar og drottningar komi fram á sömu
sýningunum, en hér á Íslandi mætist
alls konar á sama stað. Dragsýning hér
sé bara „sjúklega góð fjöllistasýning“ og
framleiðslan á mjög faglegum nótum.
„Við viljum gera stór atriði, ef við höfum
stórt svið viljum við bakgrunnsdansara,
leikmuni, konfetti-sprengjur og að
allt sé mjög stórt. Við hugsum stórt,
enda auðvitað stærst í heimi,“ útskýrir
hann kankvís. „Drag er bara enn eitt
sviðslistaformið, og það er svo mikið sem
fer í drag. Þetta er ekki bara að skella á
sig hárkollu og hoppa upp á svið. Á bak
við hvert atriði liggja miklar pælingar og
hellingur af vinnu, æfingum og fleiru.
Tími fer auk þess í förðun, búninga,
sviðsetningu, ljós og ég veit ekki hvað og
hvað.“
Framtíð íslensku dragsenunnar er án
efa björt og litrík. Sigurður segir áberandi
í dragsögunni að gluggar opnist og lokist
með vissu millibili en í hvert sinn sem nýr
gluggi opnist sé allt stærra og kraftmeira
en fyrr. „Ég sé fyrir mér að senan muni
halda áfram að vaxa, opnast og verða
fjölbreyttari. Síðan mun mögulega bólan
springa og koma aftur í enn stærra
formi.“ Hann sjálfur hefur nú starfað
sem dragdrottning í fullu starfi í rúmt ár
en slíkt hefði sennilega verið erfitt eða
ómögulegt fyrir tíu árum síðan. „Það gerir
mann gjörsamlega örmagna, að gefa sig
allan í eitthvað í langan tíma, það tekur
mikla orku og ekki er hægt að endast
að eilífu. Þess vegna er svo frábært að
geta gefið öðru fólki innblástur og rétt
kyndilinn áfram,“ segir hann að lokum.
Dragviðburðir í dag:
Drag-Súgur og Drag-Lab eru
mánaðarlegir viðburðir á Gauknum.
Draghópurinn House of Strike heldur
reglulega sýningar á Húrra. Lip-Sync
Karaoke fer fram alla sunnudaga á
Kiki Queer Bar. Einnig kemur erlent
draglistafólk reglulega fram á Loft
Hosteli, drag kemur oft við sögu í
sýningum Reykjavík Kabarett og
sjálfstæðir viðburðir skjóta upp kollinum
víðs vegar um bæinn.
afar jákvæða þróun. Drag sé orðið frekar
viðurkennt í íslensku samfélagi og fólk
þurfi ekki að vera hinsegin til þess að
mæta á dragsýningar eða koma fram
í dragi. Hann segir þó meiri líkur á því
að fólk velji þetta listform ef það er
hinsegin, þetta sé að miklu leyti spurning
um tengingu við eigin kyngervi, vilja til
að leika með það og gera skemmtun
úr því, fyrir aðra til að njóta. Drag
sé því fullkomlega opið fyrir öllum
kynjum, kynhlutverkum, ímyndum og
kynhneigðum.
Litríkt listafólk og
fjölbreytt nálgun
Í dragsenu dagsins í dag lifir og hrærist
fólk af ýmsu tagi; dragdrottningar
og dragkóngar af hvaða kyni sem er
ásamt öðru hinsegin listafólki, til dæmis
tónlistarfólki sem blandar kynusla eða
dragi inn í tónlist sína og sviðsframkomu.
Mörkin eru fljótandi og senan er í sífelldri
þróun. Sigurður lýsir mismunandi nálgun
listafólks að forminu: „Í dragheiminum
einbeita sumir sér aðallega að útlitinu
og glamúrnum, aðrir að því að gera gott
grín. Flest erum við þó að leika okkur
einhvers staðar þarna á milli. Fólk leikur
sér með karaktertýpu, tekur hana langt
eða stutt og setur hana í mismunandi
samhengi. Sumir syngja, aðrir lipsync-a,
sumir dansa og aðrir ekki, sumir gera
líkamlegt grín, aðrir eru bara ótrúlega
„gordjöss“. Fólk nýtir aðrar tengingar,
reynslu eða hæfileika, til dæmis
hljóðfæraleik, dans eða bara að kunna
mjög vel að spila bingó!“
Dragpersónur listafólksins eru
í sumum tilvikum framlengingar af
þeim sjálfum og í öðrum eitthvað alveg
Myndir af sýningum Drag-Súgs, eftir Kaspars Bekeris
47