Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 55
55
Sæþór og Ágúst
Þeir hittust á netinu árið 2006. Sæþór er
bandarískur, upprunalega frá Virginíu og
bjó í Los Angeles á þeim tíma en Ágúst
var nýlega kominn heim til Íslands frá
Þýskalandi. Þeir byrjuðu að tala saman á
MSN, í tölvupósti og á Skype. Sæþór kom
svo í heimsókn á gamlársdag 2006 og
þeir hafa verið saman síðan. Þeir keyptu
sér hús í Reykjavík árið 2010 og fóru
fljótlega að hugsa um barneignir.
S: Vinir okkar voru allir að eignast börn
og það er líka svo mikið af börnum í
fjölskyldunni hans Ágústar svo við fórum
snemma að skoða leiðir til þess að eignast
börn.
Eina raunhæfa leiðin fyrir tvo karlmenn til
að eignast barn á þessum tíma var að fara
í gegnum fósturkerfið eða eignast barn
með vinkonu. Þeir völdu fyrri kostinn.
Fósturkerfið
Það gekk eins og í sögu að fá heimilið
samþykkt og fljótlega var hringt í þá og
þeir fengu til sín börn. Fyrst fengu þeir
5 og 7 ára bræður sem þeir höfðu í þrjá
mánuði. Þá fóru bræðurnir til baka til
fjölskyldu sinnar en lentu fljótlega aftur í
fósturkerfinu.
S: Kynforeldrar fá endalausa sénsa.
Það er ekki verið að hugsa um hvað er
börnunum fyrir bestu. Ef það er það besta
fyrir börnin að alast upp annars staðar en
hjá kynforeldrum sínum þá verður kerfið
að sjá til þess en ekki vera endalaust að
fara fram og til baka með þau. Við gátum
ekki tekið við þeim aftur og aftur. Við
vorum komnir með svefnplön, reglur
og komnir með þá í rútínu en svo fóru
þeir aftur á heimili þar sem var enginn
grunnur og allt sem við vorum búnir að
vinna að var eyðilagt.
Á: Svo var þetta sárt og erfitt fyrir okkur
að vita ekki hvort hugsað var um þá eða
hvað væri að gerast. Maður þarf sem
fósturforeldri að kunna að halda og
sleppa. Elska börnin en vera viðbúinn
að þau fari frá manni. Það er skorið á öll
tengsl við börnin sem maður hefur verið
að sjá um.
S: Þetta er ekki gott fyrir börnin, þau eiga
rétt á að viðhalda tengslum við þá sem
hafa verið að sjá um þau.
Ágúst og Sæþór urðu í framhaldinu
stuðningsforeldrar eins árs drengs og
fósturforeldrar hans í framhaldi af því.
Þeir héldu að þetta yrði varanlegt fóstur
og að þeir ættu loksins barn. Móðirin
skipti svo um skoðun og lét strákinn til
ömmu hans.
S: Amman sagðist geta tekið hann svo að
við áttum allt í einu að pakka niður dótinu
hans og hann átti að flytja til hennar.
Á: Við hefðum örugglega ekki farið út í
þetta ef við hefðum vitað að þetta væri
svona óljóst. Móðirin var greinilega
búin að vera að tala við bæði okkur og
ömmuna um að taka drenginn í varanlegt
fóstur. Hún var örugglega að gera það
sem hún taldi barninu fyrir bestu en það
hefði verið sanngjarnara ef við hefðum
haft allar upplýsingarnar.
Þeir eru sammála um að bakgrunnur
barna sé gríðarlega mikilvægur. Börnin
sem eru í fósturkerfinu koma úr erfiðum
aðstæðum og hafa átt erfitt og þau
vantar oft grunnþætti úr uppeldinu.
S: Það hjálpar allt en ég hef oft hugsað
hvort það sé nóg að koma inn þegar
börnin eru orðin stór. Komast þau yfir allt
sem þau hafa að baki?
Á: Örugglega ekki alveg en auðvitað
hjálpar allt. Ég hef einungis góða reynslu
af barnaverndarkerfinu sem slíku. Það
hefur verið erfitt og sárt að láta börnin frá
sér en mér hefur alltaf fundist fólkið sem
hefur unnið við þetta vera með okkur í
liði.
S: Það hefur stutt okkur mikið með
börnin, hjálpað okkur þegar það hefur
verið erfitt og sagt okkur að við séum að
gera rétt.
Ágúst og Sæþór skoðuðu möguleika
á ættleiðingu frá Bandaríkjunum,
heimalandi Sæþórs, en gáfust fljótlega
upp á því vegna gríðarlegs kostnaðar
og lagalegra erfiðleika við að skrásetja
barnið á Íslandi.
S: 100.000 börn í Bandaríkjunum
bíða ættleiðingar en kostnaðurinn er
gríðarlegur. Bandaríkjamenn fá hluta
af kostnaðinum greiddan til baka í
skattaafslætti en við borgum náttúrulega
skatta á Íslandi þannig að það hefði aldrei
komið til baka til okkar.
Ótrúleg heppni
Sæþór bjó til aðgang að breskri
heimasíðu þar sem fólk getur annars
vegar fundið eggja- og sæðisgjafa og
hins vegar komist í samband við annað
fólk sem er einnig að reyna að eignast
börn. Hann var að leita að íslenskri konu
á síðunni í þeirri von að þeir gætu kynnst
konu sem vildi eignast með þeim börn.
Því miður fundu þeir eingöngu konur
sem voru að gefa egg en vildu ekki ganga
með barn. Hins vegar hafði áströlsk
kona að nafni Lauren samband við þá í
gegnum heimasíðuna. Hún var búin að
eiga þau börn sem hana langaði til að
eiga en vildi ganga með annað barn. Þau
áttu upphaflega í samskiptum í tölvupósti
og á Skype en að lokum kom hún í
heimsókn til Íslands til að sjá hvort það
væri góð tenging þeirra á milli og hvort
þau vildu gera þetta saman.
S: Þetta var eins og að hitta gamlan vin frá
fyrsta degi. Við erum með líkan bakgrunn
úr kirkjusamfélagi, hún frá Ástralíu og
ég frá Virginíu, og bæði vorum við með
vonda reynslu af því.
Á: Þetta var gert með öllum fyrirvörum til
að byrja með en svo kom hún í heimsókn
og það var frábært.
S: Þetta var alvöru samband. Ég vildi ekki
eignast barn með staðgöngumóður þar
sem við myndum borga henni peninga
og svo yrði ekkert meir. Við erum að gera
þetta saman.
Lauren vildi aldrei skrifa undir neina
pappíra eða tala um peninga. Hún vildi
að það væri mjög skýrt að þetta snérist
um tengsl þeirra á milli og hlakkaði til að
fjölskyldurnar þeirra tengdust.
Hún átti fyrir fjórar stelpur í Ástralíu og
vildi að Sæþór og Ágúst tækju að sér
forsjá þeirra ef eitthvað myndi klikka í
fæðingunni. Það voru einu pappírarnir
sem voru undirritaðir um þessa tengingu.
Þegar Lauren var á Íslandi hefði hún átt
að vera á réttum stað í tíðahringnum
en langar flugferðir og álag á líkamann
snéri öllu við þannig að svo fór ekki. Næst
ákváðu þau að hittast í Ástralíu. Þau áttu
saman jól á ströndinni en ekki gekk að
geta barn í þeirri tilraun. Næst fór Ágúst
einn út til Ástralíu og þá gekk það. Fyrstu
sex mánuði meðgöngunnar var Lauren í
Ástralíu en Sæþór og Ágúst voru heima á
Íslandi. Síðustu þrjá mánuðina fór Lauren
svo í ferðalag um Evrópu með það að
markmiði að enda hjá þeim á Íslandi
seinasta mánuðinn.
S: Í þrjár vikur á ferðalaginu var hún
netlaus og við heyrðum ekkert í henni.
Það var mjög stressandi.
Á: Hún er mjög áhyggjulaus týpa og vissi
ekki að við værum skíthræddir um hana.
Lauren valdi heimafæðingu svo
að Sæþór og Ágúst fóru og fundu
heimafæðingarljósmóður fyrir hana sem
reyndist þeim mikill stuðningur. Lauren
átti Daníel Val í stofunni heima hjá þeim
og þeir eignuðust son.
Viðtökur í kerfinu
Á: Þetta er í raun meðhöndlað í kerfinu
sem framhjáhald. Við vorum giftir og ég
eignaðist barn með konu. Lauren fékk
forræði yfir Daníel og við þurftum að
sanna að hún væri ekki gift. Hefði hún
verið gift hefði maðurinn hennar haft
helmingsforsjá yfir Daníel þrátt fyrir að
hann ætti ekkert í honum. Við fórum til
sýslumanns og sóttum um breytingu á
forsjá og Lauren fór daginn eftir heim til
Ástralíu. Þetta hafði örugglega ekki gerst
áður því að það er mjög óvenjulegt að
kona gefi eftir forsjá barns. Venjulega er
þessu öfugt farið.
S: Mér fannst þetta hómófóbískt ferli.
Þegar þau komu til að breyta forsjánni