Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 65

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 65
www.samtokin78.is Sími: 552 7878 netfang: skrifstofa@samtokin78.is Suðurgötu 3, 101 Reykjavík Samtökin '78 eru hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir, eikynhneigðir, pankynhneigðir, intersex fólk, trans fólk og annað hinsegin fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi. Samtökin fara með þjónustuhlutverk við hinsegin fólk á Íslandi og eru allt í senn hagsmuna-, fræðslu- og menningarfélag. Fjörutíu ár eru nú liðin frá stofnun Samtakanna ‘78. Áratugirnir síðan félagið hóf baráttu sína fyrir réttindum hómósexúalfólks, eins og þá var að orði komist, hafa verið viðburðaríkir. Þegar samtökin hófu göngu sína voru viðhorfin í þjóðfélaginu slík að sumir neyddust hreinlega til að flýja land undan ofsóknum, útskúfun og ofbeldi. Langt fram á níunda áratuginn máttu orðin hommi og lesbía ekki heyrast í útsendingum Ríkisútvarpsins og slúðurblöð landsins fluttu æsifréttir af „kynvillingum“ sem „veiddu“ sér fórnarlömb á vínhúsum bæjarins. Þá hefði verið erfitt að ímynda sér að fólk myndi leita hingað um alþjóðlega vernd vegna kynhneigðar eða kynvitundar eða að íslensk ríkisstjórn hefði það yfirlýsta markmið að koma Íslandi í fremstu röð í réttindamálum hinsegin fólks, eins og nú er raunin. Hinsegin samfélagið hefur þróast mikið á undanförnum áratugum hérlendis sem víðar og fjölbreyttir jaðarsettir hópar taka nú höndum saman og berjast gegn óréttlæti og jaðarsetningu. Þessir hópar tengjast á margvíslegan hátt þrátt fyrir að vera ólíkir innbyrðis. Allir hóparnir glíma við sterk samfélagsleg kerfi sem ganga út frá því að eingöngu séu til tvö kyn, þeim sé ætíð rétt úthlutað til einstaklinga við fæðingu og að þessi tvö kyn laðist undantekningalaust að hvort öðru og eignist börn og buru. Oft hafa verið skiptar skoðanir innan hinsegin samfélagsins og stundum örlar á þreytu vegna innbyrðis átaka ólíkra hópa og sjónarmiða. Engu að síður stendur samfélagið sterkt og við megum vera stolt af getu okkar allra til að skilja hvað sameinar okkur meðfram því að krefja fólk ekki um að fórna eigin skoðunum, metnaði og sjálfsmynd. Samtökin ‘78 eru gjarnan í miðju þessa átaka og oft hefur mætt mikið á þeim til skamms tíma. Til lengri tíma hafa þau þó ávallt orðið sterkari fyrir vikið. Frjálslyndi, barátta og velferð allra er stöðugt verkefni. Það felst styrkur í því að viðurkenna það. Þess vegna hafa Samtökin ‘78 og allt hinsegin fólk notið góðs af fjölbreyttum sjónarmiðum og mismunandi upplifun og þess vegna hefur hinsegin samfélagið blómstrað í öllum sínum fjölbreytileika. Á Íslandi er hinsegin samfélagið ekki ýkja stórt og því er mikilvægt að við tökum höndum saman og sýnum samstöðu en töpum okkur ekki í aðgreiningu og tölum ekki hvert úr sínu horninu. Við þurfum að tala saman og setja okkur í spor hvert annars þvert á tíma og aðstæður og umræðan þarf að taka mið af ólíkum sjónarhornum. Við erum sterkari saman en sundruð og öll mannréttindabarátta er okkur viðkomandi enda er hinsegin fólk af öllum stærðum og gerðum. Þessa jafnvægislist hafa Samtökin ‘78 og allt hinsegin fólk leikið undanfarna áratugi. Þar liggur stolt okkar, saga og framtíð. Þannig erum við öðrum til eftirbreytni og þess vegna skilum við árangri og munum saman halda áfram að auka lífsgæði allra. Gleðilega hátíð. Samtökin ‘78

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.