Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2018, Qupperneq 65
www.samtokin78.is Sími: 552 7878 netfang: skrifstofa@samtokin78.is Suðurgötu 3, 101 Reykjavík
Samtökin '78 eru hagsmuna- og
baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi.
Markmið félagsins er að lesbíur, hommar,
tvíkynhneigðir, eikynhneigðir, pankynhneigðir,
intersex fólk, trans fólk og annað hinsegin
fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu
réttinda í íslensku samfélagi. Samtökin fara
með þjónustuhlutverk við hinsegin fólk á
Íslandi og eru allt í senn hagsmuna-, fræðslu-
og menningarfélag.
Fjörutíu ár eru nú liðin frá stofnun Samtakanna
‘78. Áratugirnir síðan félagið hóf baráttu sína
fyrir réttindum hómósexúalfólks, eins og þá
var að orði komist, hafa verið viðburðaríkir.
Þegar samtökin hófu göngu sína voru
viðhorfin í þjóðfélaginu slík að sumir neyddust
hreinlega til að flýja land undan ofsóknum,
útskúfun og ofbeldi. Langt fram á níunda
áratuginn máttu orðin hommi og lesbía
ekki heyrast í útsendingum Ríkisútvarpsins
og slúðurblöð landsins fluttu æsifréttir af
„kynvillingum“ sem „veiddu“ sér fórnarlömb á
vínhúsum bæjarins.
Þá hefði verið erfitt að ímynda sér að fólk
myndi leita hingað um alþjóðlega vernd
vegna kynhneigðar eða kynvitundar eða að
íslensk ríkisstjórn hefði það yfirlýsta markmið
að koma Íslandi í fremstu röð í réttindamálum
hinsegin fólks, eins og nú er raunin.
Hinsegin samfélagið hefur þróast mikið
á undanförnum áratugum hérlendis sem
víðar og fjölbreyttir jaðarsettir hópar taka nú
höndum saman og berjast gegn óréttlæti
og jaðarsetningu. Þessir hópar tengjast á
margvíslegan hátt þrátt fyrir að vera ólíkir
innbyrðis. Allir hóparnir glíma við sterk
samfélagsleg kerfi sem ganga út frá því að
eingöngu séu til tvö kyn, þeim sé ætíð rétt
úthlutað til einstaklinga við fæðingu og að
þessi tvö kyn laðist undantekningalaust að
hvort öðru og eignist börn og buru.
Oft hafa verið skiptar skoðanir innan
hinsegin samfélagsins og stundum örlar á
þreytu vegna innbyrðis átaka ólíkra hópa
og sjónarmiða. Engu að síður stendur
samfélagið sterkt og við megum vera stolt
af getu okkar allra til að skilja hvað sameinar
okkur meðfram því að krefja fólk ekki um að
fórna eigin skoðunum, metnaði og sjálfsmynd.
Samtökin ‘78 eru gjarnan í miðju þessa átaka
og oft hefur mætt mikið á þeim til skamms
tíma. Til lengri tíma hafa þau þó ávallt orðið
sterkari fyrir vikið. Frjálslyndi, barátta og
velferð allra er stöðugt verkefni. Það felst
styrkur í því að viðurkenna það. Þess vegna
hafa Samtökin ‘78 og allt hinsegin fólk
notið góðs af fjölbreyttum sjónarmiðum og
mismunandi upplifun og þess vegna hefur
hinsegin samfélagið blómstrað í öllum sínum
fjölbreytileika.
Á Íslandi er hinsegin samfélagið ekki ýkja
stórt og því er mikilvægt að við tökum höndum
saman og sýnum samstöðu en töpum okkur
ekki í aðgreiningu og tölum ekki hvert úr sínu
horninu. Við þurfum að tala saman og setja
okkur í spor hvert annars þvert á tíma og
aðstæður og umræðan þarf að taka mið af
ólíkum sjónarhornum. Við erum sterkari saman
en sundruð og öll mannréttindabarátta er
okkur viðkomandi enda er hinsegin fólk af
öllum stærðum og gerðum.
Þessa jafnvægislist hafa Samtökin ‘78 og allt
hinsegin fólk leikið undanfarna áratugi. Þar
liggur stolt okkar, saga og framtíð. Þannig
erum við öðrum til eftirbreytni og þess vegna
skilum við árangri og munum saman halda
áfram að auka lífsgæði allra.
Gleðilega hátíð.
Samtökin ‘78