Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Side 66
RYÐUR NÝJAR
BRAUTIR Í HÖFUÐVÍGI
GAGNKYNHNEIGÐRA KARLA
Jón Guðmundsson hefur afrekað meira en búast mætti við miðað við ungan aldur.
Hann er stofnandi og eigandi Nordica Collection sem sérhæfir sig í að flytja inn snyrti-
og heilsuvörur í hæsta gæðaflokki. Við tókum hann tali og ræddum um framtíðina,
viðskiptaheiminn og þann veruleika sem samkynhneigðir frumkvöðlar þurfa að lifa við.
„Nordica Collection er draumur sem ég hef nostrað við í mörg ár,“ segir Jón. „Ég
er alltaf með stórar hugmyndir, kannski of stórar stundum, en mér tekst alltaf að
koma þeim í verk með því að finna rétta fólkið. Það skiptir ekkert meira máli en
hvernig fólki þú vinnur með, stórar hugmyndir verða ekki að veruleika með harki
einnar manneskju, þú þarft lið og stundum fjölskyldu.
Frumkvöðlar á Íslandi eiga alltaf á brattann að sækja en Jón hefur bætt fyrir
það með því að tengja sig við sterk og þekkt vörumerki sem hafa hlotið góðan
hljómgrunn á Íslandi.
„Ég bjó í Evrópu í átta ár og aflaði mér góðrar reynslu af sölumennsku.
Tengingarnar sem maður myndar í þannig störfum eru ómetanlegar. Þar lærði
ég að það er best að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Þú tapar
á því að taka ekki hástökkið. Viðskipti eru ekkert nema þær tengingar sem þú
skapar. Og þær verða aðeins til með því að þora.“
Jón er aðeins 28 ára en hefur þó marga fjöruna sopið. „Ég bjó á Möltu og vann
við að selja alþjóðlega heilbrigðisþjónustu. Þar myndaði ég viðskiptatengsl
víðs vegar um Miðjarðarhafslöndin. Malta er merkilegt land, þar er svipaður
fólksfjöldi og á Íslandi en eyjan er á stærð við Reykjavík. Ég hafði verið þar í
nokkurn tíma þegar ég ákvað að slá til og láta Nordica verða að veruleika.
Við byrjuðum um síðustu áramót í raun og veru. Ég skrifaði undir samning
við fyrstu vörumerkin 18. desember og þremur vikum síðar var ég fluttur til
Íslands. Viðbrögðin hafa verið með ólíkindum. Við erum með 190 vörur frá níu
vörumerkjum og erum komin í yfir 45 búðir á landinu.“
En hvernig velur hann hvaða vörur hann flytur inn?
„Ég fer eftir gæðum fyrst og fremst. Það er aðeins ein leið til að skapa tryggð og
það er með því að gera það sem þú segist ætla að gera vel. Alltaf. Við flytjum inn
snyrtivörur og heilsuvörur frá framleiðendum sem við getum treyst.“
Smokkar eru nýjasta vara Jóns en hann hóf sölu á SKYN í júní. „SKYN er
krúnudjásnið okkar þessa dagana. Smokkarnir þeirra eru ótrúlegir, það er ekki
hægt að segja annað. Þeir eru sérhannaðir til að líkja eftir húðinni og þeir eru
sterkari, skemmtilegri og næmari en aðrir smokkar. Þetta er upplifun sem þú
verður eiginlega að prófa til að trúa.“
En Jón hefur þurft að bregðast við mörgum hindrunum, ekki bara sem
nýr aðili á hörðum markaði heldur einnig sem samkynhneigður maður í
viðskiptalífinu.
„Staðreyndin er sú að viðskiptaheimurinn er karllægur en líka
gagnkynhneigður. Það getur reynst vandamál þegar maður er að ferðast um
heiminn í leit að nýjum vörum, sú leit getur leitt mann á staði sem ekki eru jafn
opnir og Ísland. Og jafnvel á Íslandi þarf maður að hafa varann á, sumir taka
vöruna ekki alvarlega ef samkynhneigður maður flytur hana inn og hún getur
jafnvel fengið á sig stimpil. Ég er ekki að flytja inn förðunarbursta og smokka
bara fyrir samkynhneigða, ég er að flytja þá inn fyrir alla sem hafa áhuga á að
líta vel út og stunda geðveikt kynlíf. Og með því að vera sýnilegur og opinn,
bæði í viðskiptum og mínu persónulega lífi, get ég kannski reynt að brjóta
upp þessa staðalímynd sem er í viðskiptaheiminum í dag.“
KYNNING