Fréttablaðið - 22.05.2021, Page 35
Marel er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki með um 7.000 starfsmenn, þar af um 700 á Íslandi. Fyrirtækið er brautryðjandi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja og hugbúnaðar fyrir matvælaiðnað. Við leggjum ríka áherslu á nýsköpun og
framþróun í öllu okkar starfi. Þess vegna viljum við ráða til okkar öflugt fólk, sem hefur áhuga á að mæta nýjum og
spennandi áskorunum á hverjum degi. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu, skilvirka starfsþjálfun, sveigjanlegan
vinnutíma, glæsilegan matsal, framúrskarandi íþróttaaðstöðu og gott félagslíf.
Ert þú forvitin(n) og hefur áhuga
á framleiðslutækni? Marel leitar
að öflugum aðila til starfa í teymi
framleiðsluþróunar við starfsstöð
fyrirtækisins á Íslandi. Um er að
ræða starf framleiðslusérfræðings
(Manufacturing Engineer) með
sérhæfingu á sviði framleiðslutækni
og fjárfestinga. Starfið krefst þess að
viðkomandi sé drífandi og skipulagður
og brenni fyrir tækninýjungum og
umbótum á vinnsluferlum í framleiðslu.
Sérfræðingur í framleiðslutækni og fjárfestingaverkefnum
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Ágúst Einarsson, Manager Manufacturing Engineering, Sigurdur.Agust@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2021. Sótt er um starfið rafrænt á heimasíðu Marel, www.marel.is/störf
Starfssvið:
• Að leiða fjárfestingaverkefni fyrir nýjan
framleiðslubúnað
• Framkvæmd greininga í öllum framleiðsluferlum
með sérstaka áherslu á vinnsluferli í
íhlutaframleiðslu
• Nýting framleiðslugagna við ákvarðanatöku
• Að hafa yfirsýn yfir framþróun á framleiðslutækni
fyrir framleiðslustarfsemi Marel á Íslandi
• Að viðhalda sérfræðiþekkingu á þeim
tæknibúnaði sem notaður er í starfsemi Marel
• Gerð og eftirfylgni fjárfestingaáætlana fyrir
framleiðsluverksmiðju Marel
• Samstarf við vöruþróun Marel vegna upplýsinga
um getu framleiðslubúnaðar og framtíðarþarfa
við gerð fjárfestingaáætlana
Hæfniskröfur:
• Menntun í verk- eða tæknifræði
• Að lágmarki 3-5 ára starfsreynsla og reynsla af
stýringu verkefna í iðnaði, helst fjárfestingaverkefna
• Áhugi og þekking á eiginleikum
framleiðslubúnaðar
• Skipulags- og samskiptafærni er mikilvæg
• Hæfni á sviði gagnagreininga
• Reynsla af notkun Lean aðferða
• Geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu
og rituðu máli
Fjársýslan leitar að öflugum leiðtoga sem hefur metnað og getu til að leiða
framúrskarandi þjónustu á sviði reikningshalds. Starfið er krefjandi en jafnframt
spennandi stjórnunarstarf þar sem frumkvæði, samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð
fá að njóta sín og heyrir starfið beint undir fjársýslustjóra.
Hlutverk bókhaldssviðs er yfirumsjón með bókhaldi fyrir ríkissjóð og ráðuneyti ásamt
þjónustu við um 300 mismunandi ríkisaðila og verkefni. Fjársýsla ríkisins veitir ríkisaðilum
fjölbreytta þjónustu á sviði opinberra fjármála. Unnið er markvisst að því að þróa verklag
til aukinnar skilvirkni, meðal annars með sjálfvirknivæðingu ferla.
FORSTÖÐUMAÐUR BÓKHALDSSVIÐS
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði reikningshalds er kostur
• Reynsla og þekking á bókhaldsstörfum
• Reynsla í að leiða stafræn umbótaverkefni, breytingastjórnun og endurhönnun ferla
• Öguð og skipulögð vinnubrögð byggð á metnaði og árangri
• Reynsla af stjórnun teyma og að byggja upp sterka liðsheild
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun
á sviði opinberra fjármála sem sinnir
fjölbreyttum krefjandi verkefnum. Gildin
okkar eru þekking, áreiðanleiki og þjónusta.
Við leggjum áherslu á góðan starfsanda,
jákvæð og opin samskipti og framþróun og
metnað í verkefnum okkar.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Sótt er um starfið á starfatorg.is og skal
fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
umsækjanda til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til 7. júní nk. og verður
öllum umsækjendum svarað.
Um 100% starf er að ræða og eru laun
samkvæmt gildandi kjarasamningi
milli fjármála- og efnahagsráðherra og
Félags háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins. Við ráðningu í starfið er farið
eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 22. maí 2021