Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 13
Ágæti útvarpsstjóri!
Þær lúmsku hræringar sem hóf-
ust fyrir rúmu ári síðan hafa nú
magnast upp í meiri háttar ham-
farir í geldingadölum íslenskunnar.
Geldingadalir eru það sannarlega,
því markvisst er unnið að því í fjöl-
miðlum að svipta tungumálið okkar
fegurð sinni og þokka. Aldrei hefði
mig órað fyrir að Ríkisútvarpið færi
þar fremst í f lokki – sú stofnun sem
ég hef frá blautu barnsbeini borið
mikla virðingu fyrir og tekið mér
til fyrirmyndar hvað málfar snertir.
Upp á síðkastið hafa æ f leiri
fréttamenn stofnunarinnar tekið
sér í munn þá nýlensku sem öðru
hverju heyrðist í fyrra, en sem nú
virðist hafa verið fyrirskipuð að
ofan. Þar á ég við orðbragð á borð
við stuðningsfólk, hestafólk, björg-
unarfólk, lögreglufólk og aðila í alls
kyns samsetningum, í stað stuðn-
ings-, hesta-, björgunarsveitar- og
lögreglumanna, o.s.frv. Frá aldaöðli
hefur verið hefð fyrir því í íslensku
að vísa til óskilgreindra hópa með
töluorðum og fornöfnum í karlkyni,
en talsmenn nýlenskunnar eru
þessu andsnúnir, svo ekki er lengur
talað um að þrír hafi verið hand-
teknir, heldur þrjú, ekki minnst
á þá sem brutu af sér, heldur þau,
o.s.frv. Þessi talsmáti er ekki aðeins
afkáralegur, heldur krefst hann þess
af fréttamönnum að þeir hafi kom-
ist að því fyrir fréttalesturinn hvort
umræddir voru karlar eða konur.
Það sem virðist hafa gleymst er að
konur eru og verða alltaf menn. „Það
á ekki að kjósa mig af því að ég er
kona, það á að kjósa mig af því að ég
er maður, og innan orðsins maður
er bæði karl og kona,“ sagði Vigdís
Finnbogadóttir árið 1980. Þetta
hefur lýðum verið ljóst fram að
þessu, en nú er allt gert af ákveðn-
um þrýstihópum til að véfengja það.
Á vefsíðu RÚV stendur: „Ríkisút-
varpið er útvarp allra landsmanna.“
(Seinasta orðið hefur greinilega
gleymst að strika út í takt við
nýlenskustefnuna.) Þar af leiðandi
er stofnunin í leiðtogahlutverki.
Þar stendur einnig: „Við leggjum
sérstaka rækt við íslenska tungu,“
en í þeirri rækt hefur Ríkisútvarpið
algerlega brugðist, einmitt þegar
þetta hlutverk þess hefur aldrei
verið mikilvægara. Ungt fólk í dag
les takmarkaðan fjölda bóka og
sækir sér alla sína af þreyingu og
upplýsingar ýmist á netið, í hlað-
varp eða útvarp. Málvitund þess
veltur því nær eingöngu á þeim
fyrirmyndum sem það fær á slíkum
miðlum. Þar af leiðandi eru áhrif
RÚV gífurleg. Eins og fram kemur á
vefsíðu ykkar nýta meira en 70 pró-
sent þjóðarinnar sér þjónustu Rík-
isútvarpsins daglega. Nýlenskunni
er því þvingað upp á stóran hluta
þjóðarinnar á degi hverjum.
Stuðningur við nýlenskuna er á
misskilningi byggður. Hún hefur
Í geldingadölum íslenskunnar: opið bréf til útvarpsstjóra
Vala Hafstað
þýðandi, blaða-
maður og skáld
nefnilega ekkert með frjálslyndi eða
kvenréttindi að gera, heldur ber hún
einfaldlega vott um einstrengings-
legan hugsunarhátt og algeran skort
á máltilfinningu. Hún snýst ekki um
jafnréttisbaráttu heldur ýmist um
ofstæki, sýndarmennsku eða ótta
við álit þrýstihópa. Það er hrein
fásinna að líta á þessa af bökun
tungumálsins sem mikilvægt vopn
í baráttunni fyrir jafnrétti. Það er
sömuleiðis út í hött að vinna mark-
visst að því að útrýma orðum sem
eru fjarri því að kasta rýrð á nokk-
urn hóp. Þeir sem nýlenskunni
beita afmynda tungumálið undir
yfirskini tiltekinnar hugmynda-
fræði, en um leið rýra þeir og raska
hefðbundinni merkingu fjölmargra
orða.
A f leiðing in verðu r a nna r s
vegar sú að þeir sem ekki aðhyll-
ast nýlenskuna eru brennimerktir
sem karlrembur eða íhaldspakk,
og hins vegar sú að nýja kynslóðin
fær brenglaðan skilning á öllu sem
áður var ritað. Hún fer t.d. að trúa
því að hesta-, björgunarsveitar- og
starfsmenn hafi aldrei verið annað
en karlkyns. Af lestri gamalla frétta
mun hún ímynda sér að allir sem
nokkurn tíma hafi verið hand-
teknir, f luttir á sjúkrahús, eða verið
með óspektir í miðbænum hafi
verið karlmenn. Hún mun álykta
að mannamót hafi verið karlasam-
komur, mannamatur hafi verið
ætlaður körlum einum, mann-
gengir hellar verið lokaðir konum,
að mannýg naut hafi aðeins ráðist á
karla, o.s.frv.
Ef fram fer sem horfir mun verða
brýn þörf á að fá andlausa skrif-
finna, sérhæfða í tungu geldleikans,
til að endurrita allar okkar bók-
menntir og aðrar ritaðar heimildir
sem fylgt hafa þjóðinni um aldir.
Þar mun manndrápsveður trú-
lega verða kallað fólksdauðaveður,
mannafælur einstaklingafælur,
manngangur stykkjahreyfingar,
mannamál fólksmál, mannbroddar
einstaklingsbroddar, landsmenn
landsfólk, manntal manneskjutal,
mannamót aðilahittingar, og skess-
ur munu ekki lengur finna manna-
þef í helli sínum, heldur aðilafýlu.
Sjálfri f innst mér aðilafýlan
óbærileg og ég hvet þig, ágæti
útvarpsstjóri, eindregið til þess að
gera allt sem í þínu valdi stendur til
þess að eyða henni og forða íslensk-
unni frá þeirri ógn sem yfir henni
vofir í geldingadölum.
Kveðja,
Vala Hafstað n
Á vefsíðu RÚV stendur:
„Ríkisútvarpið er útvarp
allra landsmanna.“ (Sein-
asta orðið hefur greini-
lega gleymst að strika út
í takt við nýlenskustefn-
una.) Þar af leiðandi er
stofnunin í leiðtogahlut-
verki. Þar stendur einnig:
„Við leggjum sérstaka
rækt við íslenska tungu.“
Það er hrein fásinna
að líta á þessa afbökun
tungumálsins sem mikil-
vægt vopn í baráttunni
fyrir jafnrétti.
Frumvarp
forsætisráðherra
um breytingar á stjórnarskrá
færir útgerðunum ótímabundinn
ráðstöfunarrétt á fiskimiðunum.
Einföld breyting á frumvarpinu
um að greiða eigi fullt gjald fyrir
tímabundin afnot af auðlindunum
tryggir greiðslu til þjóðarinnar.
HVAÐ ÆTLAR FLOKKURINN ÞINN AÐ GERA?
Skoðun 13ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 2021