Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 18
Kæru Valsmenn.
Í dag erum við léttir í lund og
fögnum 110 ára afmæli Knatt-
spyrnufélagsins Vals. Upp-
hafið má rekja til þess að nokkrir
piltar stofnuðu fótboltafélag þann
11. maí 1911, dyggilega hvattir
áfram af séra Friðriki Friðrikssyni.
Saga Vals er ævintýri líkust og
samofin íþróttasögu landsins.
Okkar mesta gæfa var að festa
kaup á jörðinni Hlíðarenda við
Öskjuhlíð árið 1939. Þannig
eignaðist Valur sitt eigið land og
hefur byggt upp sína starfsemi lið
fyrir lið. Þökk sé dugnaði og hug-
sjónum forystumanna félagsins
sem höfðu háleitar hugmyndir um
uppbyggingu að Hlíðarenda. Þeir
lögðu traustan grunn. Grunn sem
við byggjum á enn þann dag í dag
og ekki sér fyrir endann á.
Á tímamótum sem þessum er
ánægjulegt að líta um öxl, rifja upp
góðar stundir, sigrana og ekki síst;
minnast fallinna félaga. En það
er ekki síður mikilvægt að horfa
fram á veginn og reyna að spá fyrir
um framtíðina vegna þess að á
hverjum degi erum við öll að skrifa
sögu félagsins.
Í dag, rúmri öld frá stofnun
Vals, erum við enn að vinna að
uppbyggingu á svæðinu okkar,
Hlíðarenda, til hagsbóta fyrir
iðkendur félagsins. Mörg stór
mál brenna á okkur varðandi þá
aðstöðu sem við viljum búa þeim
sem iðka íþróttir sínar hjá Val.
Þar best hæst byggingu knatthúss
sem mörgum hefur verið tíðrætt
um. Viðræður hafa staðið yfir við
Reykjavíkurborg í allnokkurn
tíma og við trúum því að það hilli
undir lausn á því máli. Saga okkar
sýnir að þegar við höfum náð fram
úrbótum á aðstæðum iðkenda
okkar, s.s. íþróttahúsið 1958 eða
grasvöllurinn 1971, þá hefur það
verið mikil lyftistöng fyrir íþrótta-
starf Valsmanna. Við erum komin
að þeim tímamótum að þörf er á
aukinni aðstöðu. Fjölgun yngri
iðkenda í fótbolta, handbolta og
körfubolta er slík að til þess að geta
sinnt þessari miklu ásókn verðum
við að bæta aðstöðuna.
Á hverjum einasta degi er eitt-
hvað spennandi og skemmtilegt
að gerast að Hlíðarenda og oftar en
ekki er sjón sögu ríkari. Mikið líf
og fjör er innan húss og utan þegar
ólíkir aldurshópar mæta á svæðið.
Gleðin og eftirvæntingin endur-
speglast í andlitum krakkanna.
Einvalalið stýrir æfingum, starfs-
fólk félagsins er sífellt á tánum og
fjöldi sjálfboðaliða leggur nótt við
dag til að halda íþróttastarfinu í
réttum skorðum.
Við hjá Val höfum orðið þeirrar
gæfu aðnjótandi að vera sigursælt
íþróttafélag en meira þykir mér
vert um þá áherslu sem félag-
ið leggur á; að heilbrigð sál búi í
hraustum líkama. Íþróttaiðkun er
besti undirbúningurinn til árang-
urs í lífinu, ekki síst vegna þess að
mótlætið er þroskandi; að þurfa
að hafa fyrir hlutunum. Við upp-
skerum eins og við sáum. Agi og
ánægja eru lykilorð í velgengni, því
þeir sem leggja sig fram ná góðum
árangri. Við leggjum áherslu á að
allir séu jafnir og njóti virðingar að
Hlíðarenda, líka mótherjar okkar.
Valur er metnaðarfullt íþrótta-
félag sem hefur það að markmiði
að vera í fremstu röð í fótbolta,
handbolta og körfubolta, karla og
kvenna og gefa öllum jöfn tæki-
færi. Árið 2019 uppskárum við
ríkulega þegar meistaraflokkar
kvenna urðu Íslandsmeistarar í
handbolta, fótbolta og körfubolta.
Og enn fremur bikarmeistarar í
handbolta og körfubolta. Ólíklegt
er að þetta verði endurtekið í bráð.
Það að standa uppi sem Íslands-
meistari er mikilvægt fyrir kom-
andi kynslóðir en við leggjum enn
meiri áherslu á að öllum líði vel
að Hlíðarenda, fái útrás. Við erum
öll að glíma við eitthvað og besta
leiðin til að takast á við sjálfan sig
er að stunda íþróttir, fá útrás, sýna
félagsþroska og vera hluti af öflugri
liðsheild. Þá skapast gott jafnvægi
til að takast á við verkefni hvers
dags. Við fögnum hverjum einasta
iðkanda og þeim fer fjölgandi dag
frá degi. Hverfið okkar er í hraðri
uppbyggingu, íbúum fjölgar hratt
og það setur aukna pressu á okkur
Valsmenn. Við viljum fá allar fjöl-
skyldur að Hlíðarenda.
Einkunnarorð Vals, orð séra
Friðriks, verða ætíð í hávegum
höfð meðal Valsmanna: „Látið
aldrei kappið bera fegurðina ofur-
liði.“ Færa má sterk rök fyrir því
að þau eigi jafnvel meira erindi til
okkar í dag en áður fyrr, nú þegar
hraðinn og kappið í þjóðfélaginu
er orðið þannig að fegurðin fer
stundum halloka. Það er fátt meira
gefandi en að sjá sanna vináttu hjá
ungum iðkendur sem hlaupa um
glaðlegir og kappsamir. Framtíðin
er þeirra og ábyrgðin er að hluta
til okkar í Val. Við þurfum öll að
hjálpast að.
Sökum þess ástands sem nú
ríkir í þjóðfélaginu, tengt þeirri
óværu sem hefur raskað svo mörgu
hjá okkur, þá erum við tilneydd
til þess að fresta hátíðarhöldum
okkar. Við stefnum hins vegar að
því að slá upp veglegri afmælis-
veislu með haustinu. Nánar verður
greint frá því þegar línur fara að
skýrast.
En í dag, 11. maí, er afmælis-
dagurinn og við kætumst yfir
því. Kæru Valsmenn – innilega til
hamingju með afmælið.
Árni Pétur Jónsson,
formaður Knattspyrnufélagsins
Vals
Viljum fá allar fjölskyldur að Hlíðarenda
Árni Pétur Jónsson er formaður Knattspyrnufélagsins Vals og forstjóri Skeljungs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hver var þessi maður? Hvaðan
kom hann? Hvert var markmið
hans í lífinu?
Á lífsgöngunni er okkur hollt
að staldra við um stund, horfa
til baka, rifja upp sögu og minn-
ingar. Góðar minningar geyma
í sér töframátt. Þær hlýja okkur
um hjartarætur og kalla fram
jákvæða hormóna í heilanum.
Minningar virka eins og keðja sem
tengir saman nútíð og fortíð, tengir
saman kynslóðir.
Hverfum í huganum til aldamót-
anna 1900 í Reykjavík sem var að
breytast úr sveit í bæ. Íbúafjöldinn
var um 6.000 og æska Reykjavíkur
átti sér ekki fjölbreyttar tóm-
stundir. Beljur baula við nokkur
hús, kindur jarma, vagnskrölt í
fjarska og hlátrasköll leikandi
barna. Hænsnakofar standa hér og
þar, hundar gelta og kettir mjálma
og á götum bæjarins má sjá ungan
mann ganga hressilega og heilsa
öllum drengjum sem hann hittir á
leið sinni.
Hann er léttur í spori, glað-
legur og hlýlegur með alskegg.
Hann býður þeim að koma á fund
þar sem margir strákar safnast
saman. Hann segir þeim að hann
hafi stofnað Kristilegt félag ungra
manna og að allir drengir séu vel-
komnir. Þar sé sungið við raust,
sögur sagðar og hlustað á Guðs orð.
Margir drengjanna eru stilltir og
prúðir en einstaka óróaseggir og
uppivöðslusamir. Hver er hann,
þessi einkennilegi maður? spurði
fólk. Hvaðan kemur hann? Hvað
vill hann?
Hann var ungur stúdent sem
hafði stundað háskólanám í Kaup-
mannahöfn en var nú í guðfræði-
námi við Prestaskólann í Reykja-
vík. Friðrik Friðriksson hét hann
og var ættaður úr Svarfaðardal.
Hann var hugsjónamaður og trú-
maður. Hann var hugdjarfur með
óvenju ríkt ímyndunarafl. Hann
var menntaður vel og hafði sér-
staklega góða nærveru. Hlýlegur
og alúðlegur. Hann átti sér marga
drauma, meðal annars að íslensk
æska gæti sungið við raust í trú,
von og kærleika: „Áfram, Krists-
menn, krossmenn.“ Og honum
tókst að fá drengina til að syngja
svo sterkt, að rúðurnar titruðu í
samkomusalnum. Hann gekk með
þeim í skrúðgöngu um bæinn og
söngurinn ómaði um götur borgar-
innar. Hann var mikill hlustari,
var hljóður meðan strákarnir
sögðu honum frá áhugamálum
sínum. Hann las andlit þeirra og
tjáningar og geymdi þá sér í minni.
Skapandi, hvetjandi, brosmildur
frumkvöðull og húmoristi. Hann
tók mark á æskunni og stofnaði
með þeim Knattspyrnufélagið Val
1911 þó að hann hefði aldrei leikið
knattspyrnu sjálfur og kynni ekki
reglurnar. Hann skrifaði fyrstu
skáldsöguna á Íslandi um knatt-
spyrnu árið 1931 til styrktar Val,
Keppinauta, sem gerist vestan hafs
í borginni Watertown (sem minnir
á Vatna-skóg) – þar segir m.a.:
„Þegar þú nærð knettinum, þá
vertu fljótur að hugsa þig um, hvað
þú ætlar að gera við hann. Haltu
knettinum aldrei mjög lengi sjálf-
ur, en vertu snar að skjóta honum
til þess af samherja þínum sem
hefur besta afstöðu til að koma
honum áleiðis. Vertu djarfur að
skjóta á mark, þegar þú ert í færi …
Æfðu þig vel í að stökkva til hliðar
og skjótast útundan þér; vertu snar
eins og elding að snúa þér á hæli og
æfðu þig vel í krókahlaupi …
Hreyfingar hans voru svo fagrar
og mjúkar, allar stellingar eitthvað
hnitmiðaðar, vöðvar og limir í svo
miklu samræmi, að það var sem
einhver yndisþokki hvíldi yfir
hverri hreyfingu.“
Markmið hans með leikjunum
var að efla félagsþroska, sjálfsvit-
und og einingu félagsliða, vera með
einum huga, einlægir og áhuga-
samir, en láta samt aldrei „kappið
bera fegurðina ofurliði“. Hann
lagði áherslu á vináttu og samhug,
að í allri keppni værum við keppi-
nautar en aldrei óvinir.
Reykjavík hefur þróast úr bæ
í borg. Dirrindí lóunnar ómar í
fegurð sköpunarverksins. Kyn-
slóðir koma og fara. Árið 2021, vor
í lofti og Valur á 110 ára afmæli.
Keppinautar komu út fyrir 95
árum og Haukar eiga 95 ára afmæli
í ár (til hamingju, Haukar) og í
sumar verða 70 ár síðan Þróttur
vann fyrsta Haustmót Reykjavíkur
í 4. f lokki í knattspyrnu í úrslita-
leik við Val. (Þróttur var þá tveggja
ára gamalt félag.)
Í mars voru liðin 60 ár frá
andláti sr. Friðriks, sem hafði
áhuga á öllum krossgátum lífsins.
Sumar voru honum spennandi
og skemmtilegar, aðrar erfiðar
og jafnvel sárar og sorglegar, en
allar áhugaverðar. Andblær hans
fylgir okkur á lífsgöngunni. Fyrir
fáeinum vikum var ég staddur á
yndislegri samverustund við skírn
í sr. Friðriks kapellu og innan tíðar
munu svellandi æskulýðssöngvar
hljóma í sumarbúðum KFUM og
K í Vatnaskógi, Vindáshlíð, Ölveri,
Kaldárseli og Hólavatni – og Valur
heldur áfram á vegferð sinni.
Við kveðjum minningu um
þennan einstaka hugsjóna- og
trúarleiðtoga með dulmagnaða
lífsgleði, manneskjulega innsýn og
hlýju með orðum hans sjálfs:
Fram á lýsandi leið
skal þér litið í trú
þar sem ljómandi takmark þér
skín.
Þórir S. Guðbergsson
Hugsjónamaður og trúmaður
Séra Friðrik
með knött 1947
en myndina tók
Óskar Thorberg
Traustason í
sumarbúðum
KFUM í Vatna-
skógi. Þúsundir
drengja hafa
dvalist þar við
íþróttir, söng og
leiki. „Ljómandi
Lindarrjóður,
liggur í fjalladal
… Minningar
hlýjar, hugur nú
sér.“
Séra Friðrik
Friðriksson
vígir Valsvöllinn
3. september
1949.
Með honum
á myndinni er
Úlfar Þórðarson
læknir, for-
maður Vals.
Árið 1949 var
Þórir, höfundur
greinarinnar,
leikmaður 4.
flokks Vals.
Myndina tók
Pétur Thomsen.
2 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVALUR 110 ÁR A