Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 21

Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 21
Fjórar fræknar knattspyrnu- systur spila allar fótbolta með Val, þar af þrjár í meistaraflokki kvenna og sú yngsta í 3. flokki. Þær eiga ekki langt að sækja hæfileika sína með fótboltann því móðir þeirra er knattspyrnu- goðsögnin Guðrún Sæmunds- dóttir úr Val. Systurnar eru Eiríksdætur og heita eftir aldursröð: Málfríður Anna, Hlín, Arna og Bryndís. „Við erum allar sammála um að hafa snemma viljað feta í fótsporin hennar mömmu,“ segja systurnar einum rómi, en Guðrún móðir þeirra er fyrrverandi afrekskona í Val, spilaði 104 leiki með meistara- flokki, þar sem hún skoraði 28 mörk fyrir Val, og 36 landsleiki á knattspyrnuferlinum, þar sem hún þrumaði boltanum fjórum sinnum í netið fyrir Íslands hönd. „Það hefur alltaf verið mjög skemmtilegt fyrir okkur að vita af því hvað móðir okkar var góð knattspyrnukona og það hefur klárlega gert okkur að enn betri íþróttakonum að hafa getað leitað í reynslubankann hennar,“ segja systurnar kátar. Málfríður, sem er 23 ára, og Hlín, sem er tvítug, hafa í nokkur ár spilað saman með meistaraflokki Vals og árið 2020 bættist Arna, sem nú er átján ára, í hóp meistara- flokks. „Dýrmætasta veganestið sem mamma gaf okkur út í fótboltann með Val er að gefast aldrei upp og berjast áfram í mótlæti,“ eru systurnar sammála um. Þær segja vitaskuld mikið rætt um fótbolta á heimilinu. „En við erum svo málgefin hvort eð er að við getum talað um ótal margt annað en fótbolta heima, enda eigum við fullt af öðrum áhugamálum,“ segja þær hressar. Gaman að spila leikina saman Samfylgdin með Val er orðin löng. Málfríður og Hlín hafa æft með Val frá því þær byrjuðu barnungar í fótbolta, sex ára gamlar, en Arna skipti úr Víkingi Reykjavík yfir í Val árið 2019 og Bryndís, sú yngsta í systrahópnum, árið 2020, en hún er fimmtán ára. „Þegar við vorum yngri spil- uðum við systurnar endalaust fótbolta saman en það er minna um það í dag. Hins vegar æfum við mikið saman utan hefðbundinna æfingatíma,“ segja þær. Allar hafa Eiríksdætur unnið marga sæta sigra í boltanum, bæði persónulega og með sínum liðum. „Upp úr stendur þó besta minn- ingin úr fótboltanum árið 2019 þegar Valur varð Íslandsmeistari, og svo var auðvitað ótrúlega gaman að vera þrjár systur að spila saman meistaradeildarleiki árið 2020,“ segja meistaraflokkskon- urnar Málfríður, Hlín og Arna. Jafnréttismál í forgangi Systurnar Eiríksdætur eru stoltar af því að vera Valskonur og þeim líður einstaklega vel með liðum sínum á Hlíðarenda. „Valur er risastórt félag sem er gaman að vera partur af. Það að vera Valsari hefur þá merkingu fyrir okkur systur að leggja sig alltaf 100 prósent fram í Vals-treyj- unni, sýna ávallt af okkur íþrótta- mannslega framkomu og umfram allt, að hafa gaman.“ Hlíðarendi, heimavöllur Vals, hefur svo haldið utan um syst- urnar af öryggi, kappsemi og hlýju alla tíð. „Stemningin á Hlíðarenda er oftast gríðarlega góð. Á daginn er þar yfirleitt mikið líf og fjör, og það er mjög hvetjandi að æfa innan um svo margt frábært íþróttafólk.“ Þær Málfríður, Hlín, Arna og Bryndís eru glæsilegir fulltrúar Vals og vilja koma á framfæri hug- heilum árnaðarkveðjum og óskum félaginu sínu til handa á 110 ár afmæli þess. „Við óskum félaginu sem við elskum hjartanlega til hamingju með 110 árin og vonum að Valur muni halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum, og hlúi ætíð vel að jafnréttismálum.“ Mamma gerði okkur allar að enn betri íþróttakonum Valsmæðgurnar knáu: Arna, Bryndís og Málfríður Anna Eiríksdætur með móður sinni Guðrúnu Sæmundsdóttur sem gerði garðinn frægan í Val og með kvennalandsliðinu á árum áður. Á myndina vantar Hlín. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Mæðgurnar saman á Hlíðarenda. Frá vinstri; systurnar Arna og Málfríður Anna, í miðjunni er Guðrún móðir þeirra, svo Bryndís og Hlín. MYND/AÐSEND Mögnuð saga í 110 ár Bókin um sögu Vals kom úr árið 2011. Hún er rúmar 700 blaðsíður og ríkulega myndskreytt. Systurnar segjast alltaf hafa verið stoltar af mömmu sinni í fótboltanum. Knattspyrnufélagið Valur var stofnað 11. maí 1911 og fagnar nú 110 ára afmæli. Saga félagsins byggir á farsæld og göfugt starf á Hlíðarenda hefur veitt fjölda karla og kvenna tækifæri til íþrótta- iðkunar. Fyrir tíu árum kom út vegleg minningabók, Áfram, hærra!, rituð af Þorgrími Þráins- syni. Bókin geymir fjöldann allan af myndum og frásögnum þeirra sem komið hafa að starfinu í gegnum árin. Bókin er rúmar 700 síður og ákaflega áhugaverð fyrir alla þá sem áhuga hafa á íþrótta- starfi í landinu auk þess sem þetta glæsilega afmælisrit er ómiss- andi fyrir alla Valsara. Hægt er að nálgast bókina í Hlíðarenda. Frá því að bókin kom út hefur margt spennandi gerst í sögu félagsins. Guðni Olgeirsson, rit- stjóri Valsblaðsins, tók saman markverða punkta um söguna síðustu tíu árin. 2011 n Útgáfa afmælisritsins Áfram, hærra. n Þrír nýir heiðursfélagar á af- mælisárinu, Jón Gunnar Zoëga, Pétur Sveinbjarnarson og Ægir Ferdinandsson. n Valsorðan veitt 8 félögum. n 2. flokkur kvenna í knattspyrnu Íslandsmeistari þriðja árið í röð. n Sigurbjörn Hreiðarsson kveður eftir 20 ár i meistaraflokki Vals í knattspyrnu. n Anna Úrsúla Guðmundsdóttir íþróttamaður Vals. 2012 n Fyrstu systkinin til að fá Lolla- bikarinn, Gunnar og Ingólfur Sigurðssynir. n Valkyrjur stofnaðar í Val. n Elín Metta Jenssen marka- hæsti leikmaður Pepsi-deildar kvenna, 18 mörk. n Guðný Jenný Ásmundsdóttir íþróttamaður Vals. 2013 n Haukur Páll Sigurðsson íþrótta- maður Vals. n Friðrikskapella, 20 ára vígslu- afmæli. n Hermann Gunnarsson féll frá. n Valskórinn 20 ára. n Ólafur Stefánsson ráðinn þjálfari hjá Val í handknattleik. n Konukvöld Vals endurvakið. n Hattur séra Friðriks veittur í fyrsta sinn, Elías Hergeirsson fékk fyrstur hattinn. 2014 n Kristín Guðmundsdóttir íþróttamaður Vals. n Kynning á Hlíðarendabyggð. n Hemmalundur formlega opn- aður. n Skipulagsbreyting, barna- og unglingaráð verður 4. deildin í Val. 2015 n Bjarni Ólafur Eiríksson íþrótta- maður Vals. n Friðrikssjóður stofnaður. n Íslandsmeistarar Vals 40+. n Vígsla gervigrasvallar á Hlíðar- enda. Aðalvöllurinn. 2016 n Bjarni Ólafur Eiríksson íþrótta- maður Vals. n Nokkrir Valsmenn á EM karla í Frakklandi. n Flokkur karla í handbolta Ís- lands- og bikarmeistari. n Hemmamót Vals í skák, 13 ára sigurvegari. 2017 n Orri Freyr Gíslason íþrótta- maður Vals. n Valur skokk-hlaupahópur Vals 10 ára. n Valskórinn 25 ára. n Friðriksvöllur vígður 11. maí (nýr gervigrasvöllur). n Allir meistaraflokkar félagsins í efstu deild, karla og kvenna, (karfa, fótbolti og handbolti). 2018 n Birkir Már Sævarsson íþrótta- maður Vals. n 70. ágangur Valsblaðsins. n Sérstakt tölublað Valsblaðsins tileinkað séra Friðriki Friðriks- syni 150 ára, afmælisrit. n Skólaleikar Vals haldnir í 10. sinn (Austurbæjarskóli, Há- teigsskóli og Hlíðaskóli). n Valskórinn 25 ára. n Enduropnun Fjóssins eftir endurbætur. n Fyrsta Fálkaorðan veitt á 10 ára afmæli Fálkanna (Benóný Valur Jakobsson). n Valsmenn unnu Scania Cup í körfubolta. n Íslandsmeistarar Vals 40+ í knattspyrnu, í þriðja sinn á fjórum árum. n Hálf öld frá Benfica-leiknum í Evrópukeppni í knattspyrnu. n 25 ára vígsluafmæli Friðriks- kapellu. n Sumarbúðir í borg. Fjörutíu ár frá fyrstu sumarbúðunum 1988. n Hlaðvarpið Vængjum þöndum hóf göngu sína. 2019 n Helena Sverrisdóttir íþrótta- maður Vals. n Valsblaðið 80 ára. n 80 ár frá Kaupum Vals á Hlíðar- enda. n Sögulegt afrek Valskvenna. Ís- landsmeistarar kvenna í hand-, fót- og körfubolta (einstakt af- rek). Forsíðumynd. Fyrstu titlar kvennakörfunnar. n 100 ár frá fyrsta mótsigri Vals, haustmeistarar 1919 í 2. flokki. n 20 ár frá stofnun Valsmanna hf. n 60 ár frá deildaskiptingu í Val. n Fálkarnir 10 ára. n Hjalti Geir Guðmundsson heiðraður. n Pétur Sveinbjarnarson lést. 2020 n Anton Rúnarsson íþróttamaður Vals n Friðrikshatturinn afhentur í 8. sinn, fyrst 2013. Í grein full- trúaráðsins er heildarlisti frá upphafi. n Körfuknattleiksdeild Vals 50 ára. n 6 leikmenn frá Val í liði ársins í knattspyrnu karla mfl. Og auk þess þjálfara. n Þrjár systur í byrjunarliði Vals í mfl. kvenna. n Margrét Lára heiðruð fyrir framlag til kvennaknattspyrnu hjá Val. n Minnisvarði um Pétur Svein- bjarnarson, Sólheimum. n 40 ár frá útslitaleik í Evrópu- keppni karla í handknattleik, mulningsvélin. n Deildar-, bikar- og Íslands- meistarar í handbolta karla 3. flokki. 5ÞRIÐJUDAGUR 11. maí 2021 VALUR 110 ÁR A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.