Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 62

Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 62
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Tónlistarkonan Rakel Sig- urðardóttir gaf út á dögunum stuttskífuna Nothing ever changes. Hún hefur mikið spilað með öðrum í gegnum tíðina en segist hafa verið örlítið smeyk við að gefa út eigið efni. steingerdur@frettabladid.is Síðastliðinn föstudag kom út fyrsta stuttskífa söngkonunnar Rak- elar Sigurðardóttur, Nothing ever chang es. Platan inniheldur fjögur lög, en lagið Ég var að spá sem hún tekur með JóaPé og CeaseTone hefur hlotið mikið lof. Hún gerði á dögun- um samning við Sony í Danmörku um dreifingu á tónlist sinni. Rakel segir erfitt að koma því nákvæmlega í orð hvernig tónlist þetta er. „Mér finnst þetta erfið spurning. Indí eða elektróník. En svo er stund- um líka bara klassískur kassagítar.“ Smeyk við að flytja eigið efni Rakel byrjaði að læra á fiðlu þegar hún var sex ára og hélt náminu áfram til átján ára aldurs. „Svo byrjaði ég að læra djass og söng þegar ég var fjórtán ára á Akur- eyri, en ég er þaðan. Ég útskrifaðist af nokkurs konar poppdeild, eða skapandi línu, frá MÍT, síðasta vor. Tíminn líður svo hratt. Ég hef alltaf verið að gera tónlist en í gegnum tíðina hef ég meira verið að koma fram með öðrum, frekar en að gefa út mitt eigið efni. Ég var frekar smeyk við það.“ Rakel hefur komið fram með tónlistarmanninum Axel Flóvent í mörg ár. „En hann er einmitt frá Húsavík. Ég túraði svolítið með honum. Svo hef ég komið fram með mörgum öðrum vinum mínum, eins og til dæmis Salóme Katrínu Magnús- dóttur.“ Hún segist fyrst og fremst vera söngkona, þegar kemur að því að semja. „Laglínurnar koma yfirleitt til mín fyrst, svo finn ég út úr restinni. Ég vinn mikið með strák sem heitir Hafsteinn Þráinsson. Hans sóló- verkefni kallast CeaseTone. Við erum mjög gott teymi.“ Hlakkar til að halda tónleika Henni finnst gaman að koma fram þótt hún hafi ekki gert það mikið með eigið efni. „Við Salóme og Sara Flindt héld- um streymistónleika frá Mengi. Það var mjög gaman og í raun eina skiptið sem ég hef komið fram með mína eigin tónlist. Platan var var til- búin þegar Covid-19 skall á. Þannig að ég hef ekkert náð að fylgja henni eftir. Heimsfaraldurinn hafði ekki áhrif á gerð plötunnar sjálfrar, held- ur frekar útgáfuna. Allt var frekar óskýrt, hvað væri sniðugast og best að gera,“ segir hún. Rakel hefur nú þegar gefið út tvö lög af plötunni. „Það er alveg spennandi að geta haldið bráðum tónleika og f lutt efnið.“ Rakel segist ekki eiga sér neitt draumasamstarf en alltaf hafa notið þess að vinna með vinum sínum líkt og Salóme. „Það er fullt af tónlistarfólki sem væri gaman að vinna með. Verkefn- ið með Salóme er líka mjög spenn- andi og við gefum út plötu í haust. En mér finnst erfitt að segja upphátt hvert draumasamstarfið væri, því þá myndi ég kannski „jinxa“ það.“ Hugsað í lausnum Hún segist strax vera farin að vinna að annarri plötu. „Sumarið fer sem sagt bara í það að vinna í tónlist.“ Heimsfaraldurinn gerði það að verkum að Rakel fór að prufa sig áfram með öðruvísi tónlist og fleiri hljóðfæri. „Ég er búin að vera að semja til dæmis á rafmagnsgítar sem ég fékk lánaðan hjá vini mínum, sem ég hef ekki gert áður. Þannig að maður var oftar að grípa í eitthvað bara úr nær- umhverfinu, hugsa í lausnum.“ ■ Laglínurnar koma fyrst Platan var tilbúin áður en heimsfaraldurinn skall á en kom út síðastliðinn föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nothing ever changes er hægt að nálgast á öllum helstu streymisveitum. Ég hef alltaf verið að gera tónlist en í gegn- um tíðina hef ég meira verið að koma fram með öðrum, frekar en að gefa út mitt eigið efni. Ég var frekar smeyk við það. FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 26 Lífið 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.