Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 62
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tónlistarkonan Rakel Sig-
urðardóttir gaf út á dögunum
stuttskífuna Nothing ever
changes. Hún hefur mikið
spilað með öðrum í gegnum
tíðina en segist hafa verið
örlítið smeyk við að gefa út
eigið efni.
steingerdur@frettabladid.is
Síðastliðinn föstudag kom út fyrsta
stuttskífa söngkonunnar Rak-
elar Sigurðardóttur, Nothing ever
chang es. Platan inniheldur fjögur
lög, en lagið Ég var að spá sem hún
tekur með JóaPé og CeaseTone hefur
hlotið mikið lof. Hún gerði á dögun-
um samning við Sony í Danmörku
um dreifingu á tónlist sinni. Rakel
segir erfitt að koma því nákvæmlega
í orð hvernig tónlist þetta er.
„Mér finnst þetta erfið spurning.
Indí eða elektróník. En svo er stund-
um líka bara klassískur kassagítar.“
Smeyk við að flytja eigið efni
Rakel byrjaði að læra á fiðlu þegar
hún var sex ára og hélt náminu
áfram til átján ára aldurs.
„Svo byrjaði ég að læra djass og
söng þegar ég var fjórtán ára á Akur-
eyri, en ég er þaðan. Ég útskrifaðist
af nokkurs konar poppdeild, eða
skapandi línu, frá MÍT, síðasta vor.
Tíminn líður svo hratt. Ég hef alltaf
verið að gera tónlist en í gegnum
tíðina hef ég meira verið að koma
fram með öðrum, frekar en að
gefa út mitt eigið efni. Ég var frekar
smeyk við það.“
Rakel hefur komið fram með
tónlistarmanninum Axel Flóvent í
mörg ár.
„En hann er einmitt frá Húsavík.
Ég túraði svolítið með honum. Svo
hef ég komið fram með mörgum
öðrum vinum mínum, eins og til
dæmis Salóme Katrínu Magnús-
dóttur.“
Hún segist fyrst og fremst vera
söngkona, þegar kemur að því að
semja.
„Laglínurnar koma yfirleitt til
mín fyrst, svo finn ég út úr restinni.
Ég vinn mikið með strák sem heitir
Hafsteinn Þráinsson. Hans sóló-
verkefni kallast CeaseTone. Við
erum mjög gott teymi.“
Hlakkar til að halda tónleika
Henni finnst gaman að koma fram
þótt hún hafi ekki gert það mikið
með eigið efni.
„Við Salóme og Sara Flindt héld-
um streymistónleika frá Mengi.
Það var mjög gaman og í raun eina
skiptið sem ég hef komið fram með
mína eigin tónlist. Platan var var til-
búin þegar Covid-19 skall á. Þannig
að ég hef ekkert náð að fylgja henni
eftir. Heimsfaraldurinn hafði ekki
áhrif á gerð plötunnar sjálfrar, held-
ur frekar útgáfuna. Allt var frekar
óskýrt, hvað væri sniðugast og best
að gera,“ segir hún.
Rakel hefur nú þegar gefið út tvö
lög af plötunni.
„Það er alveg spennandi að geta
haldið bráðum tónleika og f lutt
efnið.“
Rakel segist ekki eiga sér neitt
draumasamstarf en alltaf hafa notið
þess að vinna með vinum sínum líkt
og Salóme.
„Það er fullt af tónlistarfólki sem
væri gaman að vinna með. Verkefn-
ið með Salóme er líka mjög spenn-
andi og við gefum út plötu í haust.
En mér finnst erfitt að segja upphátt
hvert draumasamstarfið væri, því
þá myndi ég kannski „jinxa“ það.“
Hugsað í lausnum
Hún segist strax vera farin að vinna
að annarri plötu.
„Sumarið fer sem sagt bara í það
að vinna í tónlist.“
Heimsfaraldurinn gerði það að
verkum að Rakel fór að prufa sig
áfram með öðruvísi tónlist og fleiri
hljóðfæri.
„Ég er búin að vera að semja til
dæmis á rafmagnsgítar sem ég fékk
lánaðan hjá vini mínum, sem ég hef
ekki gert áður. Þannig að maður var
oftar að grípa í eitthvað bara úr nær-
umhverfinu, hugsa í lausnum.“ ■
Laglínurnar koma fyrst
Platan var tilbúin áður en heimsfaraldurinn skall á en kom út síðastliðinn föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nothing ever changes er hægt að nálgast á öllum helstu streymisveitum.
Ég hef alltaf verið að
gera tónlist en í gegn-
um tíðina hef ég meira
verið að koma fram
með öðrum, frekar en
að gefa út mitt eigið
efni. Ég var frekar
smeyk við það.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
26 Lífið 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGUR