Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 38
Mörg dæmi eru um að viðhalds- framkvæmdir hafi farið illa af stað og endað illa. Í flestum tilfellum er um að kenna slælegum undirbúningi og röngu vali á verktökum. Sigurður Helgi Guðjónsson Gluggasmiðjan býður ekki lengur bara upp á glugga og hurðir. Þar er nú fjölbreytt framboð af öllum gerðum af hurðum og gluggum, rúðuglerjum, öryggisglerjum, speglum, glerhýsum, svalahand- riðum, glerlokunum og öðru. Gluggasmiðjan er komin í glæsilegt nýtt húsnæði við Steinhellu 17A í Hafnarfirði þar sem fyrirtækið er með mjög flottan 1.000 fermetra sýningarsal þar sem viðskiptavinir geta skoðað vöruframboðið, sem hefur verið stórbætt. „Hingað til höfum við sérhæft okkur í gluggum og hurðum, en nú er úrvalið mun fjölbreyttara en nokkru sinni áður,“ segir Hafsteinn Hilmarsson sölustjóri. Einstaklega gott úrval „Í fyrsta lagi bjóðum við upp á allar gerðir glugga, úr timbri, plasti, áli og álklædda timburglugga og við erum einnig með timburhurðir, álhurðir og rennihurðir í nokkrum útfærslum,“ segir Hafsteinn. „Þar að auki erum við með svalahandrið, svalalokanir, sturtugler og glerveggi og skilrúm í skrifstofur og í raun má segja að við bjóðum upp á allar gerðir af gleri. Við erum líka með alls kyns spegla í nokkrum litum, með ljósi og án þess, ásamt ýmsu öðru. Að auki seljum við sjálfvirkar hurðir í innganga fyrir verslanir og aðra þjónustu. Við vöndum svo allt- af valið við innkaup til að tryggja að við seljum einungis hágæða vörur. Álklæddir timburgluggar og plastgluggar, ásamt rennihurðum, eru vinsælustu vörurnar okkar, enda bjóðum við upp á þessar vörur á mjög góðu verði,“ segir Haf- steinn. „Það er líka ein nýjung sem við getum boðið upp á núna, en það eru útihurðir úr áli með löngu ryð- fríu handfangi, LED-lýsingu í karmi og til dæmis fingrafaraskanna eða annars konar aðgangskerfi,“ segir Hafsteinn. „Á næstu vikum ætlum við að setja upp eina mjög flotta slíka hurð í sýningaraðstöðunni okkar. Gluggasmiðjan býður upp á sérlega gott og fjölbreytt úrval í þessum vöruflokkum. Það eru önnur fyrirtæki sem selja vörur í sömu flokkum, en það er ekkert annað fyrirtæki með þær allar,“ segir Hafsteinn. „Hér er því hægt að fá megnið af því sem þarf til að byggja húsið á einum stað og við erum alltaf tilbúin til að skoða magn afslátt.“ Tíminn fyrir framkvæmdir alveg að koma „Í gegnum tíðina hefur þjónusta Gluggasmiðjunnar verið meira miðuð við verktaka en almenn- ing, en það hefur breyst og í dag þjónustum við báða hópa til jafns,“ segir Hafsteinn. „Við vinnum líka með mörgum góðum verktökum og ef viðskiptavini okkar vantar verktaka í gluggaskiptin sem dæmi getum við bent fólki í rétta átt og fengið vant fólk í verkin. Nú er öll starfsemi Glugga- smiðjunnar undir einu þaki, bæði söluskrifstofan, lagerinn og sýningarsalurinn, og engar vörur eru geymdar úti í veðri og vindi, allt geymt innanhúss við bestu aðstæður,“ segir Hafsteinn. „Þetta er góður tími til að heimsækja okkur í nýju aðstöðuna til að kynna sér úrvalið þar sem við erum búnir að koma okkur vel fyrir og koma sýningarsalnum í gott horf. Núna þegar sumarið er að koma er góður tími til að panta glugga, svo það sé hægt að nýta góða veðrið í framkvæmdir,“ segir Hafsteinn. „Afhendingartíminn hjá okkur er einn sá stysti á markaðnum. Í maí og júní erum við líka að bjóða upp á 40% afslátt af öllu einangrunargleri, svo það er ekki eftir neinu að bíða.“ Gluggasmiðjan – ekki bara gluggar Gluggasmiðjan er komin í glæsilegt nýtt húsnæði með mjög flottan sýningarsal þar sem hægt er að skoða stórbætt vöruframboðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Hjá Glugga- smiðjunni fást nú líka timbur- hurðir, álhurðir og rennihurðir i nokkrum útfærslum, ásamt svala- handriðum, svalalokunum, sturtugleri og glerveggjum og skilrúmum í skrifstofur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Góður undirbúningur er afar mikilvægur og sömuleiðis að velja ábyrgan verktaka þegar fólk undirbýr viðhaldsframkvæmdir Mörg dæmi eru um að viðhalds- framkvæmdir hafi farið illa af stað og endað illa. Í f lestum tilfellum er um að kenna slælegum undirbún- ingi og röngu vali á verktökum. Það er skammgóður vermir að spara á undirbúningsstiginu. Þar er grunnurinn lagður og ef hann er veikur þá er ekki við góðu að búast, segir Sigurður Helgi Guð- jónsson hrl. og formaður Húseig- endafélagsins. Hvernig á að standa að undir- búningi? „Ekki er til nein einhlít regla um það. Verk eru mismunandi og aðstæður sömuleiðis. Í fjöleignar- húsum þarf að liggja fyrir lögleg ákvörðum. Þegar hún er komin er rétt að fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand hússins og viðgerðarþörf. Í því ástandsmati felst yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt sundurliðuðum verkliðum með áætluðum magntölum. Hús- eigendur eru hvattir til að snúa sér til tæknimanna og fyrirtækja sem framkvæma slíkt mat en framkvæma þau ekki sjálfir eða fá fúskara til þess. Sé um minni verk að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýsingu sam- kvæmt ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðilarnir jafnan fegnir til að fullgera útboðs- og verklýsingu og standa að útboði. Mikilvægt er fyrir eigendur að gæta þess að viðurkenndir meist- arar standi fyrir viðhaldsverkum þar sem slík verk eru oft mjög vandasöm. Þá er ekki síður mikil- vægt að leitað sé til hæfra ráðgjafa er hafi næga þekkingu til úttekta. Því miður eru töluverð brögð að reikningslausum viðskiptum og virðast sumir húseigendur telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt ofmetur verkkaupi hag sinn í þeim viðskiptum. Verkkaupi Góður undirbúningur er lykilatriði Að mörgu er að hyggja þegar farið er út í framkvæmdir eða endurbætur á húsum. stendur eftir án nokkurs eða veik- burða réttar gagnvart verktaka og ábyrgð á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á að virðis- aukaskattur fæst aðeins endur- greiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir á hús- næði, ef reikningar frá verktaka eru fullgildir,“ segir hann. Heilræði til húsfélaga í fram- kvæmdaham: n Fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand eignarinnar og við- gerðaþörf. n Við minni verk er hægt að óska eftir tilboðum frá verktökum byggðum á magntölum og verklýsingu. Við stærri verk fer yfirleitt fram útboð. n Meta þarf tilboðin í samhengi við útboðsgögnin, heildarverð, einingaverð, uppsetningu til- boðsins og verktíma. n Þegar ákveðið hefur verið hvaða tilboði skal taka, er gengið til samninga við viðkomandi verk- taka. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða. n Eftirlit með framkvæmd þarf að vera í vel skilgreindum og föstum farvegi og oft er ráðinn til þess óháður aðili. n Lokauppgjör fer fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en loka- greiðsla fer fram. Smiðjuvegi 11 575-0000 Akrýlkítti með góða viðloðun Yfirmálanlegt eftir 12 klst. Notkun: Þétting meðfram hurðum og gluggum, plötuskil, rifur og fl. Akrýlkítti hvítt 6 kynningarblað 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVIÐHALD FASTEIGNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.