Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2021, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 03.06.2021, Qupperneq 48
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Ég hef velt því fyrir mér hvaða þrír mælikvarðar skipta mestu máli í daglegu lífi. Hér eru nokkur dæmi: Karlmenn á mínum aldri þurfa að huga að því að PSA-gildið í blöðruhálskirtlinum sé undir 4, að blóðþrýstingurinn sé ekki yfir 80/120 og að BMI stuðullinn fari ekki yfir 30 þegar staðið er á bað- voginni. Þegar við ökum bíl þurfum við að vita að tankurinn/rafhlaðan dugi til að komast á leiðarenda, hvort ekið sé á löglegum hraða og að allir farþegar séu í bílbeltum. Í heimilisbókhaldi þarf að huga að því að tekjur dugi fyrir útgjöld- um, að sparnaður tryggi áhyggju- lausa framtíð og að tryggingar dekki áhættu af óvæntum atvikum. Stjórnmálamenn þurfa að segja satt, huga að framtíðinni og virða stjórnarskrána og stjórnvöld þurfa að tryggja jafnrétti, almannahag og að innviðir landsins séu í lagi. John F. Kennedy sagði að friður væri mannréttindi á þremur sviðum: að allir fái að lifa án ótta við hamfarir, að allir fái að anda að sér hreinu lofti og að framtíðarkyn- slóðir ættu rétt á heilbrigðu lífi. Í dag er einn mælikvarði sem við verðum að huga að, en það er styrkur koltvísýrings í andrúms- loftinu sem við öll öndum að okkur. Hann var kringum 280 (ppm) síðustu milljón árin og fram að iðnbyltingu. Styrkurinn fór upp fyrir 400 árið 2016 og er í dag 419. Varfærin spá IPCC stofnunar SÞ segir að hann fari í 540 um næstu aldamót. Við 700 ppm leggst allt líf af á jörðinni að mati vísindamanna. Hugum því að þessum mikilvæg- asta mælikvarða á milli þess sem við skoðum töluna á baðvoginni. n Mikilvægir mælikvarðar Thomasar Möller n Bakþankar Þú finnur réttu græjurnar fyrir sumarið hjá Nova. Hvort sem það eru nýjustu stjörnurnar frá Samsung og Apple eða ómissandi ferðafélagar á folfvellina og í grillveisluna. www.nova.is Fjörvörur fyrir sumarið! Nova Folf diskósett 3.992 kr. 4.990 kr. DÍLL NOVA 5G Apple iPhone 12 159.990 kr. Samsung Galaxy A02s 32GB 24.990 kr. 5G Samsung Galaxy S21 149.990 kr. Kaup- auki Austin and Barbeque 14.990 kr. Apple Airpods (2019) 24.291 kr. 26.990 kr. 10% afsl. Galaxy Buds Pro Andvirði 44.990 kr. Xiaomi Rafskúta Pro2 74.990 kr. 30% afsl. 128GB64GB FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.