Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 30
Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is Heiðrún Birna Rúnarsdóttir hár­ snyrtimeistari segir að undanfarin misseri hafi tískustraumar frá átt unda áratugnum verið ríkjandi í hártískunni og svo verði áfram í sumar. „Það er móðins að vera með mullet, en þá er hárið sítt að aftan og styttra að framan með miklum styttum. Þessi klipping gerir hárið bæði villt og lifandi. Margir kann­ ast við þessa hárgreiðslu frá fyrri tíð en núna er hún fágaðri en áður og kemur mjög vel út,“ segir Heiðrún, en hún er eigandi Grænu stofunnar, sem er umhverfisvæn hárgreiðslu­ stofa. Hún nefnir að einnig sé vinsælt að vera með lyftingu í hársrótinni. „Fólk notar hársprey eða hárkrem sem gefa hárinu meira loft og þann­ ig fæst þessi lyfting. Sumir túbera hárið líka aðeins í rótina.“ Þá eru toppar meira áberandi en oft áður, bæði þvertoppar og það sem kallast curtain bangs, eða gardínu­ toppur. „Þá er toppurinn með frekar síðum, mjúkum lokkum sem eru teknir aðeins til beggja hliða, líkt og gluggatjöld,“ segir Heiðrún og bætir við að fólk sé almennt til í að prófa nýjar klippingar, nú þegar sér loks fyrir endann á kóróna­ veirufaraldrinum. Litasprengjur, toppar og sítt að aftan Heiðrún segir að tískustraumar frá áttunda áratugnum setji svip sinn á hár- tískuna í sumar. MYND/AÐSEND Fjólubláir litir í hárið eru vinsælir og fara ekki fram hjá neinum. Beinar línur í hárinu eru áberandi þessa dagana. Hártískan í sumar er með allra líflegasta móti. Hára- litirnir eru í fjólubláum og appelsínugulum tónum og villtir toppar koma sterkir inn. Sítt að aftan er aftur orðið móðins. „Margir hafa til dæmis látið klippa á sig topp í fyrsta sinn. Hárið er almennt að styttast og sumar skarta jafnvel drengjakolli. Mikið er um beinar, skarpar línur í hárinu en líka tjásulegar klippingar. Við hjá Grænu stofunni erum í aðeins öðruvísi verkefnum en oft áður. Fólk var greinilega orðið þreytt á hárinu á sér í samkomubanninu og margir prófuðu að klippa sig og lita sjálfir, sem stundum fór aðeins úrskeiðis,“ segir Heiðrún og brosir. „Þetta eru skemmtileg verkefni og við viljum að öllum líði vel með sitt hár.“ Litadýrðin blómstrar Þegar kemur að háralitum er lita­ gleðin við völd. „Litadýrðin kemur með vorinu og blómstrar yfir sum­ artímann. Fjólubláir tónar hafa verið geysivinsælir og það er einnig mikið beðið um bláa og bleika liti, ekki síst hjá ungu kynslóðinni. Hefðbundnu litirnir eru að færast yfir í gylltari tóna, ferskjuliti, appelsínugula liti og hlýja, rauða tóna. Síðan er meira um gulan háralit en ég hef séð áður. Svo er í tísku að vera með kalda öskutóna í hárinu. Það er í raun hægt að leika sér með hvaða háraliti sem er þessa dagana því allt litahjólið er í gangi,“ segir Heiðrún. Varðandi umhirðu hársins yfir sumarið segir hún að mikilvægt sé að veita því góðan raka. „Ef fólk er mikið í sundi og sól er gott að passa upp á rakann í hárinu og nota góða djúpnæringu og maska. Það má til dæmis nota rakamaska einu sinni í viku til að byrja með og síðan á 2­3 vikna fresti. Ef fólk vill fá loft í rótina er hægt að nota ýmsar hárvörur, sem gefa þykkt og lyftingu. Þurrsjampó er líka gott. Ég mæli með að þvo hárið eins sjaldan og fólk kemst upp með og nota heldur þurrsjampó oftar. Ég nota reglulega eplaedikblöndu í hárið. Ég kaupi lífrænt eplaedik og blanda í vatn, einn hluta af ediki á móti þremur hlutum af vatni. Blöndunni helli ég yfir nýþvegið hár, læt hana bíða aðeins, skola svo úr og set þá næringuna í hárið. Með þessu móti verður hárið glansandi og heilbrigt í útliti,“ segir Heiðrún. n Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Fylgdu okkur á Facebook Skoðið laxdal.is SUMARKJÓLAR 6 kynningarblað A L LT 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.