Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 18
Íslendingar eru mjög hrifnir af fiski
og frönskum en fyrir Covid voru
það þó erlendu ferðamennirnir
sem streymdu að vagninum. Árni
segist finna fyrir auknum áhuga
ferðamanna á ný. Það sé ekki
síst að þakka góðum umsögnum
á erlendum vefjum, til dæmis
YouTube. „Sumir ferðamenn sem
koma eru með lista yfir matsölu-
staði sem þeir verða að heimsækja
í Íslandsheimsókninni og við
erum þar ofarlega á blaði,“ segir
Árni og bætir við að Íslendingarnir
komi frekar akandi og taki fisk og
franskar með sér heim. „Við erum
með mjög góðar umhverfisvænar
umbúðir sem henta vel til að grípa
með sér heim. Maturinn helst
vel heitur á leiðinni,“ segir hann.
„Allar umbúðir eru sérmerktar
okkur. Við leggjum áherslu á
umhverfisvernd og flokkum allt
sorp sem fer frá okkur.“
Áhuginn alltaf að aukast
Áhugi Íslendinga hefur verið að
aukast mjög mikið á svokölluðu
„street food“, að versla beint við
matarbíla- eða vagna. „Fish and
Chips-vagninn hefur fast aðsetur
við Vesturbugt og þar er hægt að
ganga að okkur vísum allt frá apríl
til septemberloka.“
Þetta er sjöunda árið sem Árni
og fjölskylda hans reka Fish and
Chips-vagninn. „Það hefur alltaf
gengið vel hjá okkur, enda leggjum
við metnað okkar í ferskt gæðahrá-
efni. Fjölskylda konu minnar rekur
fyrirtækið Fiskkaup, sem gerir út
þrjá báta. Fiskurinn kemur alltaf
til okkar nýveiddur og getur ekki
verið ferskari,“ segir Árni.
Hann viðurkennir að Covid hafi
vissulega haft áhrif á reksturinn
þar sem stór hluti viðskiptavina sé
ferðamenn. „Sem betur fer eigum
við mjög stóran hóp af Íslending-
um sem koma reglulega til okkar.
Þess vegna höfum við séð okkur
fært að hafa opið. Íslendingar eru
hrifnir af þessum rétti, sérstaklega
fólk á miðjum aldri. Unglingarnir
eru hrifnari af pítsum. Það er mjög
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Árni ásamt
starfs-
stúlkum sínum
bíður eftir að
erlendum ferða-
mönnum fjölgi
í Reykjavík.
Fish and Chips-
vagninn bar
sigur úr býtum í
fyrstu götu-
bitakeppninni á
Íslandi 2019.
Namm, girnilegt. Ferskur fiskur með frönskum og val um góðar sósur. Umbúðirnar eru umhverfisvænar og þægilegt að grípa mat með sér heim.
merkilegt að yngri Íslendingar
koma lítið til okkar, en það gera
hins vegar ungir ferðamenn sem
eru mjög hrifnir af fiskinum
okkar. Það eru einmitt þeir sem
koma með lista yfir matsölu-
staði sem þeir vilja prófa og hafa
séð umfjöllun um á netinu. Við
höfum fengið mjög góða umsögn
á TripAdvisor á hverju ári. Það er
gaman að sjá að það er að lifna yfir
bæjarlífinu og ferðamönnum að
fjölga þessa dagana,“ segir Árni,
hress í bragði.
Eins og allir vita er fish and chips
breskur þjóðarréttur og afar vin-
sæll. Í Bretlandi er löng hefð fyrir
því að fá sér fish and chips á næsta
pöbb eða veitingastað. „Við hjónin
kynntumst þessum áhuga í Bret-
landi en við höfum átt mikil við-
skipti þar. Hins vegar get ég nefnt
að fish and chips var mjög vinsælt
í Reykjavík á stríðsárunum. Ætli
sá áhugi hafi ekki komið með
bresku hermönnunum. Það voru
allnokkrir staðir sem buðu upp
á þennan rétt. Síðan lagðist þessi
áhugi af og Íslendingar borðuðu
soðna ýsu. Á undanförnum árum
hefur áhuginn kviknað aftur. Fólki
finnst það ómissandi að fá djúp-
steiktan fisk og franskar,“ segir
Árni.
Sérsmíðaður í Bretlandi
„Við hjónin fengum okkur oft
þennan rétt á ferðum okkar um
Bretland og því datt okkur í hug
að gaman væri að setja upp svona
söluvagn hér á landi. Við sendum
matreiðslumann á námskeið hjá
National Federation of Fish Friers,
en við erum aðili að þeim sam-
tökum sem stofnuð voru árið 1913.
Samtökin eru með stöðluð vinnu-
brögð og við förum eftir þeim.
Vagninn sjálfur er smíðaður í
Bretlandi og sérstaklega hannaður
fyrir þennan rekstur, með stálinn-
réttingum.
Þorskurinn er sérskorinn fyrir
okkur og sósurnar eru gerðar sér-
staklega eftir okkar uppskriftum.
Sósunum er pakkað inn í litlar og
handhægar dollur. Fólk getur síðan
valið um bragð. Flestir vilja tartar-
sósu en það hefur færst í aukana
að beðið sé um remúlaði. Íslenska
kokteilsósan er síðan alltaf vinsæl
með frönskunum þótt hún þekkist
ekki í Bretlandi. Nýlega bættum
við chilli-mæjó sósu við sem
margir eru hrifnir af. Yngra fólkið
vill hafa matinn bragðmikinn,“
segir Árni. „Við bjóðum auk þess
mjög góðar franskar kartöflur sem
eru þykkari en gerist og gengur.“
„Lykilatriði að góðum mat er
ferskt og gott hráefni. Við leggjum
því mikla áherslu á það. Margir
Bretar sem koma til okkar hafa á
orði að maturinn okkar sé betri en
í heimalandi þeirra. Það er frábært
að fá slíkt hrós, en ég hef bent á að
fiskurinn hér sé mun betri en sá
sem fæst í Bretlandi.“
Fiskur úr sjó í maga
Árni segir að Fish and Chips-vagn-
inn sé skemmtileg hliðargrein við
fiskútgerðina. „Það má segja að við
fylgjum vörunni úr hlaði og það er
ánægjulegt að sjá hversu vel henni
er tekið af viðskiptavinum. Það er
ótrúlegt að yfir ein milljón manna
hafi skoðað myndband á YouTube
þar sem fjallað er um vagninn,“
segir hann. „Við erum greinilega
mjög myndræn því vagninn er
mikið myndaður.“
Hjónin standa oft vaktina sjálf
í vagninum, en að auki eru tveir
starfsmenn sem gætu orðið fleiri í
sumar þegar ferðamönnum fjölgar
mikið. „Grandinn hefur verið að
byggjast upp undanfarin ár og oft
er líf og fjör í kringum okkur. Fish
and Chips-vagninn er staðsettur
á frábærum stað þar sem eru næg
bílastæði.“ n
Vagninn er opinn alla daga í há-
deginu og aftur frá kl. 18-20. Hægt
er að fræðast um starfsemina á
heimasíðunni fishandchipsvagn-
inn.is og einnig á Facebook.
Lykilatriði að
góðum mat er
ferskt og gott hráefni.
Við leggjum því mikla
áherslu á það. Margir
Bretar sem koma til
okkar hafa á orði að
maturinn okkar sé
betri en í heimalandi
þeirra.
2 kynningarblað A L LT 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR