Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 6
Leiðtogi namibísku stjórnar- andstöðunnar fer hörðum orðum um mútugreiðslurnar sem tengjast Samherja og segir að Jóhannes muni njóta verndar sem uppljóstrari. thorgrimur@frettabladid.is NAMIBÍA McHenry Venaani, leiðtogi namibísku stjórnarandstöðunnar, talaði tæpitungulaust um þróun Samherjamálsins í samtali við Fréttablaðið í gær. Sér í lagi þótti honum lítið koma til hugmynda um að Samherjamálið sé ekki litið alvarlegum augum þar í landi. Íbúa Namibíu segir hann hafa liðið veru- legan efnahagslegan skaða af mútu- greiðslum sem embættismenn þáðu frá Samherja í skiptum fyrir aðgang að fiskimiðum ríkisins. „Það er einfeldningslegt og hrein- lega barnalegt að halda að stærsta hneykslismálið sem hefur dunið á ströndum landsins okkar hafi ekki vakið reiði. Við erum mjög reið, því efnahagsleg tækifæri hafa verið hrifsuð frá namibískum almenn- ingi.“ Venaani er leiðtogi Alþýðulýð- ræðishreyfingarinnar (e. Popular Democratic Movement eða PDM), sem er stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn á namibíska þinginu. Flokkurinn er mið-hægrif lokkur sem á áheyrnaraðild að Alþjóða- sambandi lýðræðisf lokka (IDU), sem Sjálfstæðisflokkurinn er einnig aðili að, eftir því sem fram kemur á vef samtakanna. Venaani var forsetaframbjóðandi PDM í kosningum árið 2019 en lenti í þriðja sæti á eftir sitjandi forsetanum Hage Geingob úr stjórnarflokknum SWAPO og klofningsframbjóðanda úr sama f lokki. Þrátt fyrir lélegt gengi Venaani í forsetakosningunum bætti flokkur hans verulega við sig á namibíska þinginu og hlaut eina bestu kosningu sína frá því landið hlaut sjálfstæði. Flokkurinn er nú með 16 af 104 sætum á þinginu. Í fyrra hvatti Venaani til máls- höfðunar gegn Samherja til þess að sækja bætur fyrir namibíska sjó- menn sem misstu vinnuna þegar fyrirtækið hætti starfsemi í landinu vegna málsins. „Okkur er fúlasta alvara með því máli. Við viljum að fátækum sjómönnum sem misstu vinnuna vegna spillingar Samherja séu greiddar bætur. Við höfum hvatt ríkisstjórnina, sem aðila málsins, til að takast á við fyrirtækið til að rétta hag þeirra sem hafa liðið fyrir þessa taumlausu græðgi og spillingu sem hefur fengið að gerjast í landinu okkar.“ Venaani segir að gætt sé að rétt- indum uppljóstrara samkvæmt namibískum lögum. Ingvar Júlíus- son, f jármálastjóri Samherja á Kýpur, sagði í eiðsvarinni yfirlýsingu til namibískra dómstóla sem birt var á þriðjudaginn að hann teldi engar líkur á að Jóhannes Stefánsson, upp- ljóstrari um mútugreiðslur fyrirtæk- isins í landinu, myndi fara til Nami- bíu til að bera vitni. Gerði hann það ætti hann sjálfur yfir höfði sér hand- töku og kæru þar í landi. Þetta segir Venaani af og frá. „Við höfum hér lög um vernd upp- ljóstrara sem myndu taka til hans. Við, sem stjórnarandstaða, mynd- um styðja það og stuðla að því með öllum ráðum að [Jóhannes] komi og njóti verndar, svo við getum komist til botns í málinu. Ég tel heldur ekki að ríkisstjórnin myndi kæra hann, því án uppljóstrana hans um þetta mál hefði ekkert verið gert í því.“ ■ Segir barnalegt að gera lítið úr Samherjamálinu Venaani og flokkur hans hafa barist fyrir skaðabótum fyrir sjómenn sem misstu vinnuna vegna Samherjamálsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Möguleikar á ferðalögum opnast á ný með aðstoð sýndarveruleika Rannsókn á áhrifum sýndarveruleika á vellíðan eldri borgara hófst með fjarheimsókn í þyngdarleysið á Alþjóðlegu geimstöðina, af elliheimilinu John Knox Village í Flórída. Þetta var fyrsta skrefið í rannsókninni sem er unnin í samstarfi við prófessora í Stanford-háskóla og geta 1.200 íbúar elliheimilisins átt von á hinum ýmsu ferðalögum og upplifunum á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Við viljum að fátækum sjómönnum sem misstu vinnuna vegna spillingar Samherja séu greiddar bætur. McHenry Venaani. kristinnpall@frettabladid.is ÞÝSKALAND Dýraverndunarsam- tökin Rehkitzrettung Brandenburg notuðust við dróna og hitamynda- vélar til að bjarga ungum dádýrum við Berlín í vikunni. Með því er reynt að koma í veg fyrir að ung dádýr sem leita skjóls á ökrum lendi í klóm landbúnaðartækja, sem veldur þeim sársaukafullum dauða. Á heimasíðu samtakanna kemur fram að ung dádýr kunna ekki að bregðast við í tæka tíð þegar slíkar vélar koma, þess í stað krjúpa þau og verða fyrir vélinni. Með notkun hitamyndavéla og dróna tekst að fjarlægja dádýrin í tæka tíð til þess að bóndinn gæti plægt akurinn. ■ Nota dróna til að bjarga dádýrum Dádýrin eru skiljanlega skelkuð en með þessu tekst að bjarga þeim. arnartomas@frettabladid.is BRETLAND Aðildarríki ESB sam- þykktu í gær að bæta Japan við lista af löndum utan sambandsins þaðan sem ónauðsynleg ferðalög verða leyfð. Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss eru undanskilin listanum. Ríkjum ESB hefur verið ráðlagt að af létta smám saman ferðatak- mörkunum á sjö ríkjum sem þegar eru á listanum, Ástralíu, Ísrael, Nýja-Sjálandi, Rúanda, Singapúr, Suður-Kóreu og Taílandi. Þrátt fyrir að Bretland hafi verið innan við- miða fyrir listann, var ákveðið að bíða með að bæta því við, þar sem vaxandi áhyggjur eru af af brigði veirunnar sem fyrst greindist á Ind- landi. Staðan verður metin aftur um miðjan júní til að sjá hvort Bretland eigi heima á listanum. ■ Japan kemst á lista ESB en Bretland ekki Staðan í Bretlandi verður aftur metin í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY kristinnhaukur@frettabladid.is ÍSRAEL Tólf ára valdatíð forsætisráð- herrans Benjamin Netanyahu, for- manns Likud bandalagsins, er lokið eftir að Yair Lapid, leiðtogi miðju- flokksins Yesh Atid náði að mynda nýja stjórn í gærkvöldi. Lapid til- kynnti þetta í gærkvöldi, aðeins nokkrum mínútum áður en frestur rann út til að mynda nýja stjórn. Stjórnin nær frá vinstri til hægri og mun hinn hægri sinnaði Naftali Bennett, leiðtogi Yamina flokksins taka við embætti forsætisráðherra. Lapid mun hins vegar taka við emb- ættinu af Bennett síðar á kjörtíma- bilinu. ■ Stjórn Benjamin Netanyahu fallin 6 Fréttir 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.