Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 12
Skæruliða- deildin sjálf hefur síðan kall- að yfir sig ævarandi skömm með störf- um sínum. ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Halldór n Frá degi til dags Við verðum að draga línu í sandinn og hafna alfarið frek- ari einka- væðingu í heilbrigðis- kerfinu. Rétt eins og íslenska heilbrigðiskerfið varði lands- menn í heimsfaraldrinum sem nú virðist loks á undanhaldi, er almenningur tilbúinn að standa vörð um heilbrigðiskerfið sem hefur reynst okkur svo vel. Ný skoðanakönnun sýnir svo ekki verður um villst að mikill meirihluti landsmanna vill heilbrigðiskerfi sem rekið er af hinu opinbera fyrir skattfé okkar allra og hafnar aukinni einkavæðingu í heilbrigðis- kerfinu. BSRB hefur í gegnum tíðina látið gera reglulegar skoðanakannanir á afstöðu almennings til heil- brigðiskerfisins með Rúnari Vilhjálmssyni pró- fessor. Niðurstöðurnar úr nýjustu könnuninni voru gerðar opinberar fyrir viku og eru afgerandi. Átta af hverjum tíu landsmönnum vilja að það sé fyrst og fremst hið opinbera sem reki sjúkrahúsin, sjö af tíu vilja heilsugæsluna í opinberum rekstri og sex af tíu eru þeirrar skoðunar þegar kemur að hjúkrunar- heimilum. Aðeins örlítið hlutfall, vel innan við fimm prósent, vill að þessi starfsemi sé fyrst og fremst á hendi einkaaðila. Við vitum hvað við höfum í opinberu heilbrigðis- kerfi og sporin hræða hjá þeim þjóðum sem gengið hafa lengra í einkavæðingu. Þrátt fyrir eindreginn þjóðarvilja er mikill þrýstingur á stjórnvöld að einkavæða meira. Síðasta dæmið um slíka einka- væðingu í óþökk almennings er yfirfærsla öldrunar- þjónustu á Akureyri til einkaaðila sem á að spara peninga með einhverjum óskiljanlegum hætti sem enginn hefur getað útskýrt. Við verðum að draga línu í sandinn og hafna alfarið frekari einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Einkaframkvæmd er ekki töfraorð sem lækkar kostnað. Eins og Rúnar Vilhjálmsson prófessor benti á í erindi á opnum fundi BSRB eykur einkafram- kvæmd almennt kostnað vegna kostnaðarliða á borð við stjórnunarkostnað, arðgreiðslur og aukins kostnaðar eftirlitsaðila. Í stað þess að íhuga frekari einkavæðingu í heil- brigðiskerfinu eigum við að hlusta á vilja landsmanna, efla opinbera heilbrigðiskerfið og draga úr þeirri einka- væðingu sem þegar er orðin allt of mikil. n Látum þjóðina ráða Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB Það er heiðarlegt af mönnum að biðjast afsökunar verði þeim á. Slík afsökunar-beiðni þarf þó að vera einlæg, eigi að vera hægt að taka mark á henni. Afsökunar-beiðni sem Samherji sendi frá sér á dög- unum var ekki á þann veg. Þar var enn á ný mjálmað um að umfjöllun fjölmiðla um fyrirtækið hefði verið „einhliða, ósanngjörn og ekki alltaf byggð á stað- reyndum“. Með semingi baðst Samherji þó afsökunar á framgöngu sinni, en tókst að gera það þannig að engrar iðrunar var vart í yfirlýsingunni. Samt segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, að hún hafi fallið í góðan jarðveg. Hann hlýtur að eiga við að innanhúss hafi hún þótt vel lukkuð. Svo að segja engum öðrum finnst það. Ef forsvarsmenn Samherja væru fullir iðrunar vegna framgöngu sinnar gegn fjölmiðlum og fjöl- miðlafólki, hefðu þeir ákveðið að snúa snarlega við blaðinu og svara óhikað öllum þeim mjög svo alvar- legu ásökunum um lögbrot sem bornar hafa verið á fyrirtækið. Einnig hefðu þeir samstundis kastað skæruliðadeildinni á dyr og sent frá sér yfirlýsingu um að alls ómögulegt væri að leggja blessun sína yfir gjörðir sem væru ólíðandi. Í staðinn hafa forsvars- menn fyrirtækisins ákveðið að halda í vinnu fólki sem hefur njósnað blygðunarlaust um einstaklinga og reynt með öllum ráðum að hafa af þeim æruna og hræða þá um leið. Þessi vinna skæruliðadeildarinnar hefur átt sinn þátt í að eyðileggja orðspor Samherja, sem var reyndar stórskaddað fyrir. Skæruliðadeildin sjálf hefur síðan kallað yfir sig ævarandi skömm með störfum sínum. Á nokkurn veginn sama tíma og Samherji sagði „afsakið“ án þess að meina það, var opinberað að lögmaður Samherja hefði sent bréf til menntamála- ráðherra, Lilju Alfreðsdóttur. Þar var þess krafist að hún útskýrði í smáatriðum hvað hún hefði átt við þegar hún sagði á Alþingi að fyrirtækið hefði gengið of langt í viðbrögðum sínum við fréttaflutningi í Namibíumálinu. Þessi bréfasending er ótrúlega óskammfeilin. Hrokinn opinberaðist síðan frekar í því að menntamálaráðherra var gefin vika til að svara bréfinu. Ekki er ljóst hvers vegna Samherji telur sig hafa sérstaka lögsögu yfir menntamálaráðherra. Ætli þar sé ekki bara krónísk frekja og yfirgangssemi á ferð? Hinn mæti stjórnmálafræðiprófessor Ólafur Þ. Harðarson sagði á dögunum „að framganga Sam- herja hafi aukið verulega líkurnar á því að sjávarút- vegsmálin verði eitt af helstu kosningamálunum í haust“. Þetta eru heldur vondar fréttir fyrir Sjálfstæð- isf lokkinn, en þar á bæ hefur lítið borið á gagnrýni á framgöngu Samherja, miklu frekar er eins og menn leggi sig fram um að afsaka hana eða fara þægilegu leiðina og leiða hana hjá sér. Það hlýtur að vera skylda stjórnmálaflokka að setja sjávarútvegsmálin á dagskrá í kosningabarátt- unni. Um leið verður ekki hjá því komist að taka siðferðilega afstöðu til forkastanlegrar framgöngu Samherja, en ekki þegja hana í hel. Nokkrir f lokkar eru líklegri en aðrir til að setja þessi mál á dagskrá, enda eru þau mikilvæg, því þau snúast um það í hvernig samfélagi við viljum lifa. n Afsakið Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Útskriftar- tilboð SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Útskriftar- tilboð kristinnhaukur@frettabladid.is toti@frettabladid.is Maðurinn með kjúklinginn Ný boðflenna hefur rutt sér til rúms í YouTube-dagskrá barna á grunnskólaaldri sem sum hafa í forundran spurt foreldra sína hver „þessi maður með kjúkl- inginn“ er, sem þau hafa rekist á þegar þau reyna í sakleysi sínu að fylgjast með ókunnugum spila Minecraft og mála sig í framan. „Þegar betur er að gáð er þarna á ferð Friðjón Friðjónsson almannatengill og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Nema Friðjón sé að hugsa til langrar framtíðar í pólitík má því ætla að markhópagreiningin hafi eitthvað klikkað að þessu sinni. Jöfnunarsprautur Bólusetningaröfundin hefur fallið í skuggann af öllu víð- tækari og almennari pirringi eftir að bingófyrirkomulag var tekið upp við val á árgöngum til bólusetninga. Skammur fyrirvari og kynjaskipting með bleikum og bláum miðum vekur takmarkaða ánægju. Þessi flumbrugangur vekur jafnvel upp efasemdir um hvort landið sé eitt bólusetningakjördæmi þar sem allt eins má ætla að fólk í Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvestur fái hlutfallslega færri eða jafnvel skerta skammta á meðan jöfnunarsprautur með umframdropum væru á lofti í Norðvesturkjördæmi. n SKOÐUN 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.