Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s 1 0 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 1 gar@frettabladid.is IÐNAÐUR Lög sem Alþingi samþykkti sumarið 2019 og brot Skipulagsstofn­ unar á lögum í meðferð á umsókn sjókvíaeldisfélagsins Hábrúnar, mis­ munuðu fyrirtækinu og gerðu út um framtíðarvöxt þess. Þessu er haldið fram í greinargerð Hábrúnar. „Árið 2018 þótti ljóst að önnur fyrirtæki voru farin að horfa til þess að koma sér upp aðstöðu í Ísa­ fjarðardjúpi og nánast „teppalögðu“ Djúpið með umsóknum. Þá var ljóst að svo illa yrði þrengt að starfsemi Hábrúnar að vaxtarmöguleikar yrðu engir ef fram héldi sem horfði. Var því ákveðið að hefja undirbúning að umsókn um 11.500 tonna eldi á regnbogasilungi í Djúpinu,“ er rakið um upphaf málsins, í greinargerð Hábrúnar. Rifjað er upp að 20. júní 2019 hafi Alþingi samþykkt frumvarp Kristj­ áns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs­ ráðherra um fiskeldi. Áfram segir að Skipulagsstofnun hafi brotið lög með því að afgreiða ekki umsókn fyrirtækisins um til­ lögu að matsáætlun vorið 2019. Atvinnuveganefnd Alþingis hafi á síðustu stundu breytt markalínu þess hvaða umsóknir skyldu fylgja úr gömlu lögunum yfir í nýju lögin. „Nefndin hafði upplýsingar um það að Hábrún, Arnarlax og f leiri félög væru úti með sínar umsóknir samkvæmt þessari breytingu, en lét það sig engu skipta,“ er fullyrt í greinargerðinni. Birtingu laganna hafi verið frestað að beiðni sjávar­ útvegsráðuneytisins til 18. júlí 2019, í þeim tilgangi að hjálpa fyrirtækj­ um að koma inn frummatsskýrslu. „Hábrún, eitt fyrirtækja, var ekki upplýst um þennan frest, kannski vegna þess að umsókn þeirra var ekki afgreidd. Þetta er alvarleg mis­ munun af hálfu stjórnsýslunnar sem óheimilt er að hygla tilteknum aðilum á kostnað annarra,“ segir í greinargerðinni. Af leiðingin hafi orðið sú að umsókn Hábrúnar um 11.500 tonna eldi á regnbogasilungi fengi ekki afgreiðslu samkvæmt gömlu lögunum „heldur væri félag­ inu gert að bíða eftir útboði nýrra leyfa og bjóða þar í kappi við félög sem flest öll eru nánast alfarið í eigu erlendra eldisrisa“. Segir Hábrún að með þessu hafi Alþingi gert að engu áform um eðli­ legan og nauðsynlegan vöxt félags­ ins og að „lítið alíslenskt, eldis­ fyrirtæki væri skilið eftir eitt úti í kuldanum“. Ábyrgð á lagasetningunni segir Hábrún hvíla á sjávarútvegsráð­ herra og þáverandi meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis. „Þetta hentaði sumum fyrirtækj­ um afar vel, en slátraði möguleikum frumkvöðuls fiskeldis í Ísafjarðar­ djúpi, Hábrún hf., til að geta byggt upp sjálfbæran rekstur.“ n Stjórnvöld hafi mismunað fiskeldisfyrirtækjum Forsvarsmenn fyrirtækisins Hábrúnar segja sjávarútvegs­ ráðherra og meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis hafa „slátrað möguleikum“ Hábrúnar, sem frumkvöðuls í fiskeldi í Ísafjarðardjúpi til að byggja upp sjálfbæran rekstur. Hábrún, eitt fyrirtækja, var ekki upplýst um þennan frest. Úr greinargerð sjókvíaeldisfyrir- tækisins Hábrúnar. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- ráðherra. Kíktu á Snarlid.is Framkvæmdir við Lönguhlíð halda áfram að setja mark sitt á umferðarlífið í Reykjavíkurborg, en ökuþórar sem aka Bústaðaveginn njóta góðs af því, enda umferðarljósin ekki að tefja lengur. Von er á nýjum undirgöngum undir Lönguhlíð, sem ætti að auka verulega öryggi hjólandi og gangandi farþega í Hlíðahverfinu á leið sinni í átt að hjarta borgarinnar í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.