Fréttablaðið - 03.06.2021, Qupperneq 1
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
1 0 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 1
gar@frettabladid.is
IÐNAÐUR Lög sem Alþingi samþykkti
sumarið 2019 og brot Skipulagsstofn
unar á lögum í meðferð á umsókn
sjókvíaeldisfélagsins Hábrúnar, mis
munuðu fyrirtækinu og gerðu út um
framtíðarvöxt þess. Þessu er haldið
fram í greinargerð Hábrúnar.
„Árið 2018 þótti ljóst að önnur
fyrirtæki voru farin að horfa til
þess að koma sér upp aðstöðu í Ísa
fjarðardjúpi og nánast „teppalögðu“
Djúpið með umsóknum. Þá var ljóst
að svo illa yrði þrengt að starfsemi
Hábrúnar að vaxtarmöguleikar yrðu
engir ef fram héldi sem horfði. Var
því ákveðið að hefja undirbúning
að umsókn um 11.500 tonna eldi á
regnbogasilungi í Djúpinu,“ er rakið
um upphaf málsins, í greinargerð
Hábrúnar.
Rifjað er upp að 20. júní 2019 hafi
Alþingi samþykkt frumvarp Kristj
áns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs
ráðherra um fiskeldi.
Áfram segir að Skipulagsstofnun
hafi brotið lög með því að afgreiða
ekki umsókn fyrirtækisins um til
lögu að matsáætlun vorið 2019.
Atvinnuveganefnd Alþingis hafi á
síðustu stundu breytt markalínu
þess hvaða umsóknir skyldu fylgja
úr gömlu lögunum yfir í nýju lögin.
„Nefndin hafði upplýsingar um
það að Hábrún, Arnarlax og f leiri
félög væru úti með sínar umsóknir
samkvæmt þessari breytingu, en
lét það sig engu skipta,“ er fullyrt í
greinargerðinni. Birtingu laganna
hafi verið frestað að beiðni sjávar
útvegsráðuneytisins til 18. júlí 2019,
í þeim tilgangi að hjálpa fyrirtækj
um að koma inn frummatsskýrslu.
„Hábrún, eitt fyrirtækja, var ekki
upplýst um þennan frest, kannski
vegna þess að umsókn þeirra var
ekki afgreidd. Þetta er alvarleg mis
munun af hálfu stjórnsýslunnar
sem óheimilt er að hygla tilteknum
aðilum á kostnað annarra,“ segir í
greinargerðinni. Af leiðingin hafi
orðið sú að umsókn Hábrúnar um
11.500 tonna eldi á regnbogasilungi
fengi ekki afgreiðslu samkvæmt
gömlu lögunum „heldur væri félag
inu gert að bíða eftir útboði nýrra
leyfa og bjóða þar í kappi við félög
sem flest öll eru nánast alfarið í eigu
erlendra eldisrisa“.
Segir Hábrún að með þessu hafi
Alþingi gert að engu áform um eðli
legan og nauðsynlegan vöxt félags
ins og að „lítið alíslenskt, eldis
fyrirtæki væri skilið eftir eitt úti í
kuldanum“.
Ábyrgð á lagasetningunni segir
Hábrún hvíla á sjávarútvegsráð
herra og þáverandi meirihluta
atvinnuveganefndar Alþingis.
„Þetta hentaði sumum fyrirtækj
um afar vel, en slátraði möguleikum
frumkvöðuls fiskeldis í Ísafjarðar
djúpi, Hábrún hf., til að geta byggt
upp sjálfbæran rekstur.“ n
Stjórnvöld hafi mismunað fiskeldisfyrirtækjum
Forsvarsmenn fyrirtækisins
Hábrúnar segja sjávarútvegs
ráðherra og meirihluta
atvinnuveganefndar Alþingis
hafa „slátrað möguleikum“
Hábrúnar, sem frumkvöðuls
í fiskeldi í Ísafjarðardjúpi til
að byggja upp sjálfbæran
rekstur.
Hábrún, eitt fyrirtækja,
var ekki upplýst um
þennan frest.
Úr greinargerð sjókvíaeldisfyrir-
tækisins Hábrúnar.
Kristján Þór
Júlíusson,
sjávarútvegs-
ráðherra.
Kíktu á
Snarlid.is
Framkvæmdir við Lönguhlíð halda áfram að setja mark sitt á umferðarlífið í Reykjavíkurborg, en ökuþórar sem aka Bústaðaveginn njóta góðs af því, enda umferðarljósin ekki að tefja lengur. Von er á
nýjum undirgöngum undir Lönguhlíð, sem ætti að auka verulega öryggi hjólandi og gangandi farþega í Hlíðahverfinu á leið sinni í átt að hjarta borgarinnar í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR