Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 20214
FRÉTTIR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
LS sameinast Bændasamtökum Íslands 1. júlí næstkomandi.
Landssamtök sauðfjárbænda:
Sameinast Bænda-
samtökum Íslands
Á aðalfundi Landssamtaka
sauðfjárbænda (LS), sem haldinn
var með fjarfundarfyrirkomulagi
19.–20. apríl, var samþykkt að
sameinast Bændasamtökum
Íslands og tekur sameiningin
gildi 1. júlí næstkomandi. Var
tillaga um sameiningu samþykkt
með 37 atkvæðum gegn tveimur
mótatkvæðum. Tveir fulltrúar
sátu hjá. LS verður þó ekki slitið.
Á vef LS er markmið
sameiningarinnar sagt vera að ná
fram aukinni skilvirkni og eflingu
hagsmunagæslu fyrir íslenskan
landbúnað. Sjóðir og eignir LS munu
áfram verða í eigu samtakanna en öll
starfsemi færist undir búgreinadeild
sauðfjárbænda innan Bændasamtaka
Íslands.
Almennum aðalfundarstörfum
var frestað
Á fundinum var boðað til
framhaldsaðalfundar með dagskrá
þegar samkomutakmarkanir leyfa
að slíkir fundir verði haldnir.
Þar er ætlunin að ganga frá
breytingum á samþykktum vegna
fyrirhugaðra breytinga og ljúka
almennum aðalfundarstörfum. /smh
Aðalfundur Sambands íslenskra loðdýrabænda:
Samþykkt samhljóða
sameining við BÍ
Aðalfundur Sambands íslenskra
loðdýrabænda (SÍL) var haldinn
19. apríl þar sem sameining við
Bændasamtök Íslands var sam
þykkt samhljóða. SÍL verður því
hluti af nýju félagskerfi bænda um
mitt sumar þegar stefnt er að form
legri sameiningu Bændasamtaka
Íslands og búgreinafélaganna.
Einar Eðvald Einarsson á Syðra-
Skörðugili verður áfram formaður
SÍL og með honum í stjórn þeir Björn
Harðarson, Holti ritari og Þorbjörn
Sigurðsson, Ásgerði meðstjórnandi.
Einar segir að mikil samstaða hafi
verið um málið, en tíu loðdýrabú eru
nú á landinu. „Þeim fjölgaði um eitt
um síðustu áramót eftir stöðuga fækk-
un frá 2018 til 2019. Þau voru áður
rúmlega 20,“ segir hann. /smh
Matvælastofnun leiðbeinir dýraeigendum vegna eldgosa á Reykjanesi:
Flytja þarf búfé ef efna-
mengun eykst mikið
Matvælastofnun hefur gefið út
leiðbeiningar til dýraeigenda
vegna eldgosa á Reykjanesi.
Þar kemur fram að stofnunin
fylgist með niðurstöðum efna
mælinga Jarðvísindastofnunar
og Veðurstofunnar í úrkomu
og stöðuvötnum í nágrenni gos
stöðvanna á Reykjanesi og metur
á grundvelli þeirra hvort grípa
þurfi til ráðstafana vegna nýtingar
beitarhólfa til að tryggja heilsu og
velferð dýra.
Dýraeigendum er bent á að varð-
andi loftmengun hefur hún sam-
bærileg áhrif á dýr og fólk. Þá getur
margvísleg hætta stafað af því að fara
með dýr að gosstöðvunum.
Flutningur búfjár ef
efnamengun eykst mikið
Í leiðbeiningunum kemur fram að
dýraeigendur gætu þurft að flytja
búfé sitt á brott ef efnamengun eykst
mikið. MAST muni meta reglulega
hvort ástæða sé til að takmarka
nýtingu beitarhólfa og gefa út til-
kynningu ef til þess kemur. „Einfalt
ætti að vera fyrir hrossaeigendur að
finna hagabeit á öðrum stöðum en
komi til þess að flytja þurfi sauðfé
af svæðinu þarf að hafa í huga að
vegna riðu má ekki flytja það í
önnur varnarhólf nema með aðkomu
Matvælastofnunar.
Svæðið tilheyrir Landnámshólfi,
sem skiptist í sýkt og ósýkt svæði
hvað varðar riðu. Innan sýkta
svæðisins eru sveitarfélögin Ölfus,
Hveragerði og Grímsnes- og
Grafningshreppur en í ósýkta hlutan-
um eru sveitarfélögin á Suðurnesjum
og á höfuðborgarsvæðinu. Fé má
ekki flytja frá sýktu svæði til ósýkts.
Ef nauðsynlegt reynist að flytja fé
af svæðinu vegna mengunar, þurfa
fjáreigendur á Reykjanesi að leitast
við að finna heppilegan stað í ósýkta
hluta hólfsins, til að flytja það á. Sé
enginn kostur innan ósýkts svæðis
mögulegur, skal hafa samband við
Matvælastofnun sem mun þá meta
þau úrræði sem völ er á. Annar kostur
er að gefa fénu ómengað hey en það
getur ekki talist góð lausn nema í
stuttan tíma.
Loftmengun hefur sambærileg
áhrif á dýr og fólk
Loftmengun hefur sambærileg áhrif
á dýr og fólk. Því er mikilvægt að
dýraeigendur verji dýrin sín fyrir
loftmengun svo sem kostur er eða
haldi álagi í lágmarki að öðrum kosti.
Að lokum er dýraeigendum ein-
dregið ráðið frá að fara með dýrin sín
á gosstöðvarnar. Þar er ýmislegt að
varast, svo sem bruna- og hrunhættu
frá hrauninu, loftmengun, skaðleg
efni sem dýrin geta fengið í sig úr
vatni og snjó, og saltsýru og önnur
efni á jörðinni sem geta sært þófa á
hundum og þeir fengið í sig við að
sleikja feld og þófa,“ segir í leiðbein-
ingum Matvælastofnunar.
/smh
Mynd / Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
FOSSAR EINBÝLISHÚS Viltu lækka byggingar-
kostnað?Fossar einbýlishús eru útfærð í
einingakerfi Landshúsa. Eininga-
kerfið okkar hefur undanfarin ár
fengið afar góðar viðtökur og hafa
húsin okkar risið um allt land með
góðum árangri.
Markmið okkar er að bjóða upp
á lausn sem gerir fólki kleift að
byggja traust hús á einfaldan og
hagkvæman hátt.
Val á gluggum:
Timbur
Ál/timbur
PVC
Hús á mynd er Foss 5 - 211 fm - Verð kr. 28.341.000.-
Efla verkfræðistofa sér um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar
samkvæmt íslenskri byggingarlöggjöf.
STYRKUR - HAGKVÆMNI - HÖNNUN
LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is
Fuglaflensutilvikum fer fækkandi
í Bretlandi og Þýskalandi
Þann 16. apríl síðastliðinn
var ekki vitað um nein ný til
felli fuglaflensusmits af H5N8
stofni (highly pathogenic avian
influenza HPAI) í alifuglum
í Bretlandi. Þá hafði aðeins
verið tilkynnt um eitt nýtt til
felli í villtum fugli í Englandi
samkvæmt upplýsingum
Umhverfisstofnunar sem fer með
málefni matvæla og dreifbýlis
mála. Þykja það trúlega gleðitíð
indi í ljósi aragrúa farfugla sem
nú eru komnir til Íslands.
Frá 3. nóvember til 16. apríl
hafði verið tilkynnt um 19 tilvik
í alifuglum í Bretlandi, þar af
15 í Englandi, eitt í Wales, eitt í
Skotlandi og tvö á Norður-Írlandi.
Þá voru staðfest fimm tilvik í
öðrum tegundum fugla sem haldið
er í búrum.
Tilfellum smita af HPAIV H5
fuglaflensuveiru í villtum fuglum
hefur farið fækkandi á undan-
förnum vikum. Síðasta staðfesta
fuglaflensu smitið í villtum fugli var
af HPAI H5N1 stofni sem getur líka
smitast í menn. Fannst smitið í rán-
fuglstegundinni Mivus milvus sem
líka er kölluð „Red Kite“.
Alls 317 smittilfelli í villtum
fuglum í Bretlandi
Þann 16. apríl síðastliðinn hafði
verið tilkynnt um samtals 317 til-
vik af fuglaflensu í villtum fuglum
í Bretlandi. Þar af voru 11 smit af
HPAI H5N1 stofni, 6 smit af H5N5
stofni, 290 af H5N8, 1 tilfelli af
H5N3 og 9 smittilfelli af H5Nx
stofni.
Á sama tíma hafði verið tilkynnt
um 87 smittilfelli af H5N8 í ali-
fuglum í Þýskalandi. Þar af voru
46 tilfelli vegna hænsna og annarra
alifugla sem fólk er með í sínum
bakgörðum. Þá voru 32 smittil-
vik í alifuglaeldi í Póllandi og 11 í
Tékklandi auk 15 tilvika þar í landi
í fuglum í bakgörðum fólks.
Í villtum fuglum hafði þá verið
tilkynnt um fuglaflensu af HPAI
H5N8 stofni í Tékklandi, Frakklandi,
Grikklandi, Noregi, Póllandi og
í Svíþjóð. Þá hafði verið tilkynnt
umsmit af HPAI H5N5 veirustofni
í Rússlandi og Svíþjóð. Eins hafði
verið tilkynnt um smita af HPAI H5
stofni í villtum fuglum í Úkraínu.
Þar að auki hafi smit af HPAI H7N7
stofni fundist í svani í Litháen.
Smitum í villtum fuglum
fækkar í Þýskalandi
Samkvæmt upplýsingum Friedrich
Loeffler-stofnunarinnar í Þýskalandi
hafði verið tilkynnt um 50 smit í
villtum fuglum í Þýskalandi og þá
aðallega í norðanverðu landinu á
tímabilinu 1. til 12. apríl síðastliðinn.
Á tíu dögum þar á undan hafði verið
tilkynnt um 121 smittilvik. /HKr.