Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 55 Stundum skammast maður sín fyrir að búa í Reykjavík, ástæðan er sóðaskapur, rusl, hundaskítur og ósópaðar götur, sama hvert litið er. Í flestum öðrum bæjarfélögum og sveitum er snyrtilegra en í Reykjavík, þar virðist fólk vera meira meðvitað um snyrtilegt umhverfi sitt. Sárasjaldan sér maður fólk vera að tína rusl í Reykjavík, en mjög oft má sjá fólk vera að tína rusl í nágrannasveitarfélögunum (oftast í Garðabæ og Kópavogi). Vinnu minnar vegna þá þvælist ég í allar áttir út frá Reykjavík (um 50–100 km í allar áttir). Í þessum ferðum sé ég vel ruslið í vegköntunum þar sem ég er að vinna og eftir því sem ég fer lengra frá Reykjavík er ruslið minna. Stóri plokkdagurinn Síðastliðinn laugardag var „Stóri plokkdagurinn“, víða mátti sjá fólk tína rusl meðfram vegum með mismikið í pokunum. Á köflum mátti sjá tugi poka fulla af rusli meðfram vegum sem biðu þess að vera sóttir af þeim sem fylltu þá. Um kvöldið kíkti ég aðeins inn á „Facebook-síðu plokkara“ til að forvitnast um afrakstur dagsins. Flestir virtust ánægðir með afrakstur dagsins, en það voru ummæli Hildar Hreinsdóttur sem slógu mig aðeins, en hún sagði m.a.: „... farin að telja grímurnar sem ég tek, mér fannst það vera áskorun eftir að hafa lesið um manninn sem var búinn að tína 4.600 grímur, að við gætum öll gert það sama. Er komin upp í 66 grímur og farin að líta á þetta sem keppni ...“ – Það hlýtur að vera hægt að setja notaðar grímur í ruslið eins og annað rusl. Afar slæmt ástand í Skeifunni Það eru sum hverfi í bænum þar sem er áberandi minna rusl meðfram vegum en annars staðar og svo eru aðrir staðir sem eru afgerandi verri. Einhvern veginn virðist vera meira rusl nálægt stöðum sem eru með langan opnunartíma samanber bensínstöðvar, en þar er víða mjög slæm umgengni. Svo eru það sólarhrings versl- anirnar, en af þeim finnst mér að næsta nágrenni Hagkaups í Skeifunni standi upp úr. Á bílastæðinu bæði fyrir framan og aftan það hús og á bílastæðum og í trjárunnum í Skeifunni er svo mikið rusl að það sker sig úr í ósóma miðað við aðra bæjarhluta. Eru eitthvað fáir götusópar í Reykjavík? Síðasta sumar ferðaðist ég mikið um landið (fór hringveginn um mánaðamótin maí-júní, annan mánuði seinna og þann þriðja í ágúst). Á þessum ferðum mínum sá ég að verið var að vélsópa götur og vegkanta í að minnsta kosti þrem bæjarfélögum (Egilsstöðum, Húsavík og Akureyri), en miðað við stærð Reykjavíkur og fjölda íbúa sér maður of sjaldan vélsópun í gangi. Minnist þess að hafa verið staddur í Birmingham í Englandi fyrir um tveim árum. Gisti í miðborginni í mjög hárri byggingu þar sem útsýni var gott yfir miðbæinn, um kl. 10 á kvöldin og fram undir morgun mátti sjá tugi vélsópa allar nætur sópa götur, gangstéttir og með kantsteinum. Borgin er (að ég held) næststærsta borg Englands og hvergi sá maður rusl og drasl og ekkert svifryk. Kvartað undan umgengni við gosið í Geldingadölum Eins og svo margir Íslendingar gekk ég að gosinu í Geldingadölum með mitt nesti í bakpoka og kakó á brúsa. Fín heilsubótarganga og ferðin toppuð með nestistíma sitjandi við hlýjuna frá heitu hrauninu. Eitthvað hefur verið um að kvartað væri undan því að fólk taki ekki með sér umbúðirnar af nestinu, en ef fólk getur borið nestið á staðinn (og á aðra staði) þá er það ekki íþyngjandi burður að taka með sér umbúðirnar til baka heim. Sama á við um aðra staði þar sem maður tekur með sér nesti. Ekki skilja umbúðirnar eftir, það geta allir tekið ruslið með sér til baka heim og sett það í sína ruslatunnu, landið og náttúran er ekki ruslatunna. Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is st’ al og L or em ipsum Stál og stansar stalogstansar.is 2012 2020 Varahlutir í kerrur ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Bænda Smáauglýsingar 56-30-300 OFANÍ- BURÐUR VALDA G FEIKNA G BÖGGLA SÁR K BURSTA-ÞAK SHARM-RÆNN O R G L E G U R FJAS TDYGGURBÖLVA R Ú R ÁVARPAR Y R Ð I R UF S S INNLIMAFUGL S Ö L S A A GÁMATJURT S K I M A SPOTTI U ELDSNEYTI STRITAR LOFTFAR B A K S A R AUGNA-RÁÐ TVEIR EINSSKAMMA S S KRYDDADÆS NÁTTDANGL A V O F A TVEIR EINSKROPPA A A TALA Á T J Á N FALL-BEINT SVÍFA TIL- FUNDINN A L I N N RENNSLI L E K I GAULLANGAR V Æ LV N Í S K A BLÖSKRA A RÍKI Í AFRÍKU ÚTVEGAR A L S Í R Ó SÉRGÆÐI UPP- HRÓPUN H A GRÍPA RUSLAKK NAFN R Ó T A FÁTTGRÍÐAR L Í T I ÐA I BJÓLADREITILL F A T A SEFAÁFALL F R I Ð A STIG R R L A G A LINNASTAMPUR S L O T A STAFURHRÓPA S ÉÖ T Ö N N UNGUN K L A K ÁSTUNDUNTVÍHLJÓÐI R Æ K TTINDUR U R G G G A A R SKYNFÆRA Í RÖÐ E R Y S R VESÆLAR N A A U ÝTING M P A O R TKVÍÐAÆPIR A HLUT- SKIPTA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET M Y N D : G O O FU P ( CC B Y -S A 2 .0 ) 149 TÓMT FLAK FREKAR SJÁVAR- DÝR BOLMAGN PLÁSS FYNDINN FJAS KVABB UMKRINGDI HÁLFAPI HÖKTA TUNGUMÁL HLJÓÐFÆRI ÞRAUT- SEIGJU VISTAR- VERA FJAR- STÆÐA DEKK TÁLKNBLAÐ TITTIR TVEIR EINS HYLJA BUGASVIÐI ÁTT ERFIÐ HEYGÐU Í RÖÐ SKÍMA RÓSEMD FYLKI KÍLL SLIT HNJÓTA KLÍPA TÓNN MÓTMÆLA VEFJA SVEIM ALDIN FLUTT FOKVONDUR TAFAR- LAUST UPP HINDRA BATA LENGJA ÚTBÍA VARP VELGJA TILBÚIÐ HANDÆÐI KALLORÐ HEILL ÞRÖNGVA BYLTA MÆLI- EINING Í RÖÐ ÆTA EIN- HVERJIR MEÐ TVEIR EINS SKYNFÆRA SVIFDÝR FLOKKA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 150 Ruslaborgin Reykjavík Í Skeifunni er svo mikið rusl að það sker sig úr í ósóma miðað við aðra bæjarhluta. Á þessum ferðum mínum sá ég að verið var að vélsópa götur og vegkanta á að minnsta kosti þrem bæjarfélögum (Egilsstöðum, Húsavík og Akureyri), en miðað við stærð Reykjavíkur og fjölda íbúa sér maður of sjaldan vélsópun í gangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.