Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202132
„Þetta er alveg ótrúlega
skemmtilegt. Ég fann það strax
og ég byrjaði að fást við að búa
til vörur úr geitamjólk að það ætti
mjög vel við mig,“ segir Þorbjörg
Ásbjörnsdóttir, bóndi á Lynghóli
í Skriðdal. Hún er þroskaþjálfi að
mennt og NLP markþjálfi einnig.
Þorbjörg hefur undanfarin ár
búið til salatost, sem heitir Moli,
og fleira úr geitamjólk en hyggst
auka við framboðið og ætlar í
sumar að framleiða gríska jógúrt
og skyr. Þá stendur til að koma upp
vinnsluaðstöðu heima við bæinn
og verður unnið við það í haust og
fram eftir næsta vetri. Á Lynghóli
eru um 30 geitur og ætlunin að fjölga
í hópnum eftir því sem framleiðslan
vex.
Þorbjörg er Húnvetningur, ólst
upp á Auðkúlu í Húnavatnshreppi
en flutti 16 ára að heiman til að
vinna og stunda framhaldsnám.
Hún er búfræðingur frá Hvanneyri
en á meðan hún dvaldi þar við nám
kynntist hún eiginmanni sínum,
Guðna Þórðarsyni frá Syðstu-
Görðum í Kolbeinsstaðahreppi, sem
þar var einnig í búfræðinámi. Þau
settust þar að eftir skólann. Enginn
búskapur var á jörðinni á þeim tíma
og stunduðu þau vinnu utan bús í
fyrstu.
Byrjuðu þau á að stunda alls kyns
störf utan bús, m.a. í fiskvinnu sem
þau sóttu víða um Snæfellsnes.
Þau reyndu fyrir sér með kálfaeldi
sem aldrei varð þó mjög gæfulegt
að sögn Þorbjargar, illa fór að ára
í þeirri grein, löng bið var jafnan
eftir slátrun og svo kom gríðarlegt
verðfall sem gerði að verkum að
fótunum var kippt undan þeim
búskap.
Hross og ungmenni
eiga vel saman
„Við settum þá á fót tamningastöð
og hún gekk glimrandi vel,“ segir
Þorbjörg, en einnig tóku þau börn
og ungmenni í fóstur, byrjuðu á
því árið 1995 og hafa á þeim rúma
aldarfjórðungi sem liðinn er dvalið
hjá þeim um lengri eða skemmri
tíma yfir 50 börn. Þau eiga eina
dóttur, Láru, en telja nokkur af
fósturbörnunum til sinna barna enda
samskiptin mikil og þau sinna afa-
og ömmuskyldum við börn þeirra.
Þorbjörg segir það fara einkar
vel saman að vera með hross og
ungmenni, krakkarnir hefðu næg
verkefni í kringum hestana allan
daginn og hefðu flest yndi af því að
hugsa um þá og fara í útreiðartúra.
„Það eru alltaf næg verkefni í
kringum hestana, alls konar verk
sem þarf að sinna og það hélt krökk-
unum uppteknum heilu dagana,
en eins eru líka margar og flottar
reiðleiðir á þessu svæði. Þannig að
þetta smellpassaði alveg saman,“
segir hún.
Austfirðingar tekið okkur
fáránlega vel
Þorbjörg og Guðni höfðu alltaf
nokkrar kindur og langaði að hefja
sauðfjárbúskap en jörðin hentaði
ekki fyrir slíkan búskap.
„Við hefðum getað sett á fót
kúabú þar en áhugi húsbóndans lá
ekki þar, þannig að við höfðum um
skeið verið að skima eftir hentugri
jörð fyrir sauðfjárbúskap,“ segir
Þorbjörg.
Snemma árs 1999 sáu þau aug-
lýsta jörðina Lynghól í Skriðdal
og gerðu sér ferð frá Snæfellsnesi
og þvert yfir landið. Komu þar um
miðjan mars og allt á kafi í snjó.
„Við sáum örugglega ekki alveg
hvernig landið lá en gerðum tilboð
og því var tekið. Þetta gekk allt
frekar hratt fyrir sig og við vorum
tekin við 300 kinda búi í byrjun
maí. Guðni fór þá beint austur í
sauðburð og ég sá um sauðburðinn
á Syðstu-Görðum en flutti svo austur
að honum loknum,“ segir Þorbjörg
og bætir við að þeim hafi alla tíð
liðið vel fyrir austan þó engar eigi
þau rætur þangað og hafi ekki þekkt
nokkurn mann þegar þau komu.
„Austfirðingar hafa í raun tekið
okkur fáránlega vel, það er virkilega
gott að búa hér og aldrei hvarflað að
okkur að fara neitt annað.“
Þorbjörg og Guðni hófu að
byggja upp sauðfjárbúið, stækkuðu
fljótt við sig og voru innan fárra ára
komin með um 450 kindur. Árið
2011 reistu þau stórt stálgrindarhús
á jörðinni og höfðu þá aðstöðu til að
vera með um 700 kindur þegar mest
var. Undanfarin ár hefur fækkað í
bústofninum og eru nú um 400
kindur á búinu.
Geitur í fyrstu sem gæludýr
Geitabúskapurinn á Lynghóli
hófst árið 2014 þegar mæðgurnar
ákváðu að fá sér örfáar geitur til
að hafa sem eins konar gæludýr.
Þær fengu 3 huðnur frá Möðrudal á
Fjöllum og hafur frá Fjallalækjarseli
í Þistilfirði. Hópurinn hefur vaxið
og eru nú um 30 huðnur í hópnum,
18 sem bera og 12 veturgamlar.
„Geitur eru óskaplega skemmtileg
dýr og gaman að umgangast þær,“
LÍF&STARF
skyr
gríska jógúrt
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Þorbjörg Ásbjörnsdóttir, bóndi á
Lynghóli í Skriðdal, hefur verið að
fikra sig áfram í vinnslu á geitamjólk
og hyggst í sumar hefja framleiðslu
á skyri og grískri jógúrt úr þeirri
afurð. Um 30 geitur eru á bænum
og stendur til að fjölga í hópnum.
Myndir / Þorbjörg Ásbjörnsdóttir
og Lára Guðnadóttir
Lára Guðnadóttir.
Geithafurinn Fjalli á rætur sínar að
rekja að Fjallalækjarseli í Þistilfirði.
Hann hefur búið á Lynghóli frá ár-
inu 2014 þegar þangað komu fyrst
geitur. Þó aldurinn hafi færst yfir er
hann ansi lipur og æfir fimi sína með
því að hoppa um uppi á heyrúllu-
stæðunni.
Guðni Þórðarson er upprunninn frá Syðstu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi.
Þorbjörg og Lára, dóttir hennar, fengu sér fyrst geitur árið 2014 og þá sem gæludýr.