Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 7 LÍF&STARF M eð einlægum óskum um gleðilegt sumar, fylgir þessi snjalla og myndríka vísa Ingólfs Ómars Ármannssonar. Blekið á vísnasendingu Ingólfs er knapplega þornað þegar ég vík henni í vísnaþáttinn: Hlýna ból og birtir til, bugast njólu veldi. Baðast hólar grund og gil gullnum sólareldi. Jú það er vor í lofti, eða í það minnsta keimur af vori. Björn Ingólfsson, fyrrum skólastjóri á Grenivík, er í það minnsta ljóðrænn á morgungöngu sinni fyrir skemmstu: Það finnst gaman gömlum köllum að ganga um á frosnum völlum, þar sem lúra í litlum bollum listaverk í drullupollum. Það er e.t.v. langsótt að birta sem vorvísu þessa stöku Björns Blöndal í Laugarholti: Við skulum ekki tala um tryggð tófan má þér unna. En vorið hlær um víða byggð, vertu hjá mér, Gunna. Jón Pétursson frá Nautabúi orti svo hlýlega til vorkomunnar: Geislinn hlakkar, hlýju fá hlíðar, slakkar, gilin. Lækjarbakka blómin smá brosa og þakka ylinn. Þorsteinn skáld Gíslason orti undir vorhimni: Þú ert fríður, breiður blár og bjartar lindir þínar, þú ert víður, heiður, hár sem hjartans óskir mínar. Eftir Ólaf Sigfússon í Forsæludal er þessi vorvísa: Þrautaleiðir þokast fjær þíða er greið í spori. Myndi seiða svona blær sál til heiða á vori. Stephan G. Stephansson orti á vori í Vestur heimi: Leggur um geð frá logni, blæ ljóð og gleðibragi. Strengir kveða í mér æ undir veðurlagi. Ólína Jónasdóttir var afar hrifnæmur hagyrðingur: Grænkar tangi og heiðin há, hlýtt er fangið beggja. Sól og angan unga þrá undir vangann leggja. Annað skáld og náttúrubarn, Guðmundur Ingi Kristjánsson, kvað: Gróðurangan ilm úr mörk yfir vanga líður. Daginn langan lyng og björk laufgrænt fangið býður. Það er aðeins vor, en ekki síður ást, í hinni kunnu vísu Baldurs á Ófeigsstöðum í Köldukinn: Vísa, sem að verður til um vorið eða fossinn, þarf að veita öllum yl eins og fyrsti kossinn. Eftir veðurfræðinginn Pál Bergþórsson eru næstu tvær vísur. Þær eru frá lengra ljóði er hann nefndi „Veðrabrigði“: Aprílgolan unaðshlý andar í nöktum runni, streymir út um borg og bý beint frá drottins munni. Iðkar böðin Esjan glöð, eyðast fannadílar, greikka spor og gusa for gamlir mjólkurbílar. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 272MÆLT AF MUNNI FRAMMikil gróska í nýsköpun um aukið verðgildi ullarinnar: Tuttugu lausnir keppa til úrslita í Ullarþoni Sextán teymi, sem standa á bak við tutt- ugu lausnum tengdum ull með einum eða öðrum hætti, komust áfram í Ullarþoninu sem haldið var á dögunum, sem er hug- myndasamkeppni Textílmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Markmiðið er að auka verðmæti ullarinnar og sérstaklega verðminnstu ullarflokkana. Þann 17. apríl var tilkynnt um fimm efstu sætin í hverjum keppnisflokkunum fjórum; þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull, blöndun annarra hráefna við ull, ný afurð og stafrænar lausnir og rekjanleiki. Alls bárust 63 gildar umsóknir í alla flokka. Úrslit kynnt á HönnunarMars Teymin á bak við fimm efstu hugmyndirnar í hverjum flokki munu kynna lausnir sínar með stafrænum hætti fyrir dómnefndum dagana 3.–10. maí og verða úrslit gerð kunn á HönnunarMars 20. maí. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun veita verðlaun við hátíðlega athöfn. Eftirtaldar eru þær tuttugu lausnir sem keppa til úrslita í keppnisflokkunum fjórum: Hér eru þær lausnir sem komust áfram í hverjum flokki: Þróun á vinnslu textíls úr óunninni ull • Anna María G. Pétursdóttir: ,,Cool wool box“ • María Dís Ólafsdóttir, Helga Aradóttir, Kristín S. Gunnarsdóttir og Mörður Moli Gunnarsson Ottesen: ,,Snoðbreiðan“ • Jón Gautason og Hrönn Jónsdóttir: ,,Ullarhúsið“ • Marie Legatelois, Júlia Brekkan og Guðni Þór Þrándarson: ,,INSUWOOL“ • Hringanóra, Laufey Kristín Skúladóttir, Hanna Birna Sigurðardóttir: ,,Samvist, samvera, náttúra, tenging“ Blöndun annarra hráefna við ull • María Dís Ólafsdóttir, Helga Aradóttir, Kristín S. Gunnarsdóttir og Mörður Moli Gunnarsson Ottesen: ,,Snoðbreiðan“ • Guðríður Baldvinsdóttir: ,,Urta(g)ull“ • Jens Einarsson, Hlynur Halldórsson: „Heilnæm hljóðvist“ • Guðný Sara Birgisdóttir: ,,Spuni – Studió GÁ“ • & Árni Freyr Jónsson, Philippe Clause: ,,Ullarleður“ Ný afurð • Marie Legatelois, Júlia Brekkan, Guðni Þór Þrándarson: ,,INSUWOOL“ • Hringanóra, Laufey Kristín Skúladóttir og Hanna Birna Sigurðardóttir: ,,Samvist, samvera, náttúra, tenging“ • Þórhallur Markússon: ,,Hagall“ • Anna María G Pétursdóttir: ,,Cool wool box“ • Sigrún Helga Indriðadóttir og Þórir Guðmundsson: ,,Ullarspíra“ Stafrænar lausnir og rekjanleiki • Móbotna - Ágústa Kristín Grétarsdóttir og Kristjana Birna Svansdóttir: ,,Lúxusvörur af forystufé“ • Guðríður Baldvinsdóttir: ,,Rekjanleiki heim í fjárhús“ • Hringanóra, Laufey Kristín Skúladóttir og Hanna Birna Sigurðardóttir: „Unikind” • Jennifer Please:,,Spóla Iceland“ • Þóra Margrét Lúthersdóttir og Hilma Eiðsdóttir Bakken:„QR kóði Ullar- Þóma“ 400 þúsund króna sigurlaun auk gjafa Sigurvegari í hverjum flokki hlýtur 400.000 kr. í verðlaun ásamt því að hver úr teyminu fær gjafir frá Ístex. Hallormsstaðaskóli býður einu teymi 5 vinnudaga dvöl við skólann. Jóhanna Erla Pálmadóttir, verkefnastjóri hjá Textílmiðstöð Íslands, segir að það sé áhugaverð staðreynd að á bak við þær fimm lausnir sem valdar voru úr hverjum keppn- isflokki standi fleiri en 100 þátttakendur. Dómurum hafi reynst mjög erfitt að velja úr þeim glæsilegu hugmyndum sem bárust og magnað sé hversu gróskan sé mikil í nýsköp- un um aukið verðgildi ullarinnar. Hún hvetur þau teymi sem ekki komust á topp fimm listana að leita leiða til að raungera þær, þar sem margar þeirra hafi verið mjög spennandi. Því miður hafi ekki verið pláss fyrir fleiri.Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins. /smh Hulda Birna Baldursdóttir sérfræðingur hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í útsendingu í Stúdíó Sýrlandi þegar á fyrirlestrum á Ullarþoninu stóð. Myndir / JEP Gæðakindin Snotra er í eigu fjölskyldunnar á Akri, tveggja vetra með dásamlega ull sem fer í verðlausan ullarflokk þrátt fyrir að vera „mjúk eins og silki“ – eins og Jóhanna orðar það. Hún segir að Ullarþonið miði meðal annars að því að gera meiri verðmæti úr þess konar ull. Jóhanna Erla Pálmadóttir, verkefnastjóri hjá Textílmiðstöðinni, á garðabandinu við prjóna- skap. Mynd / Svanhildur Pálsdóttir Jóhanna Erla segir að þetta sé ull þar sem snoðið er ekki klippt af í mars, þar sem ærin var of gömul. Snoðið myndar þófasnepla og því er ullin orðin ónothæf til spuna. Á Ullarþoninu var leitað leiða til að finna slíkri ull farveg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.