Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202150 Garðeigendur njóta nú vorverk- anna, sumarblómin og fjölær- ingarnir fara að sýna sínar allra bestu hliðar og runnagróðurinn tekur við sér eftir veturinn. Allt er þetta hið besta mál, en um leið þarf að huga að pottaplöntun- um sem eru oft hálf ræfilslegar eftir dimma vetrarmánuði. Þegar sólarinnar nýtur aftur fá þær endurnýjaðan þokka og er ekki úr vegi að rifja upp hvað hægt er að gera til að þeim líði sem best. Ólík umhirða að sumri og vetri Vor- og sumarumhirða pottaplantna er um margt ólík umhirðu þeirra að vetri, þegar mesta áskorunin er að halda þeim í horfinu, láta þær njóta þeirrar birtu sem völ er á og dregið er úr vökvun og áburðargjöf. Sumartíminn felur í sér aðrar áskoranir. Plönturnar þurfa þá miklu meiri vökvun og þær þurfa aukna næringu til að njóta sín sem best og bæta við vöxtinn. Blómin sem höfð voru á bjartasta stað yfir veturinn getur þurft að færa frá gluggum og hitagjöfum. Margar tegundir geta hreinlega eyðilagst af of mikilli beinni birtu að sumrinu. Blöð geta sviðnað, blómin standa stutt og plöntunum hættir við ofþornun. Suðurglugginn getur verið versti óvinur pottablómanna á sumrin. Umpottun Vorið er rétti tíminn til að huga að umpottun, sé hennar þörf. Rétt er að skoða rótarkerfið og ef það er orðið mjög þétt mun plantan launa fyrir nýja og góða pottamold með auknum vexti og grósku. Nýi potturinn þarf að vera nokkrum sentimetrum víðari en sá fyrri. Ef plantan er mjög stór getur verið erfitt eða ómögulegt að umpotta henni. Þá er reynandi að setja kraftmikla pottamold yfir moldina sem fyrir er og vökva ofan frá fyrstu vikurnar til að næringin seytli úr henni niður til rótanna. Sumar plöntur eins og kaktusar og margir þykkblöðungar þurfa ekki mjög næringarríka mold og þá er gott að blanda dálitlum vikri saman við pottamoldina sem notuð er. Hægt er að stytta greinar sumra tegunda til að fá fram þéttari og meiri greinavöxt. Loftraki Loftraki í híbýlum er oftast mun lægri en plönturnar kjósa helst. Til að draga úr álagi vegna mikillar birtu og aukins lofthita er gott ef hægt er að hækka loftrakann. Úða ætti plönturnar reglulega með fínum vatnsúða. Annað gott ráð er að láta plöntur standa í víðri skál með rökum vikursandi, þannig má hækka loftrakann umhverfis plönturnar. Einnig er hægt að hafa plöntur margar saman, þó þannig að vel fari um þær. Sá raki sem plönturnar gefa sjálfar frá sér er til þess fallinn að hækka rakastigið nokkuð og plönturnar fá líka skugga hver af annarri. Vökvun og næring Þegar kemur að vökvuninni er helsta reglan að þar gildir engin regla önnur en að vökva hvorki of mikið né of lítið. Blómapottar í beinni sól geta þornað mjög hratt. Ræktandinn þarf að fylgjast með jarðrakanum, td. með því að athuga með fingri hvort moldin sé rök í 2 sentimetra dýpt eða svo. Einnig gefur þyngd pottsins til kynna hvernig ástatt er. Plöntur með þykk og leðurkennd lauf og stöngla eru líklegar til að þola meiri þurrk en þær sem hafa þunn og stór lauf. Blómstrandi plöntur mega ekki þorna. Plöntur sem standa í leirpottum þorna mun hraðar en séu þær í plastpottum. Ef ekki eru notaðar skálar undir blómapottana þarf að hafa þær í pottahlíf til að auðvelda vökvun. Dökkleitir pottar og pottahlífar geta tekið til sín mikinn hita frá beinni sól og er hætt við að ræturnar skemmst þess vegna. Pottaplönturnar þurfa ekki á áburðargjöf að halda nema frá vori og fram á haust. Flestir nota fljótandi pottaplöntuáburð. Auðvitað skiptir máli hvaða tegund ræktuð er, en rétt er að varast of mikla áburðargjöf. Farið eftir leiðbeiningum á umbúðunum og notið jafnvel heldur minna af áburði en þar er gefið upp. Plöntur í miklum vexti má vökva með daufri áburðarblöndu við hverja vökvun, aðrar þurfa aðeins næringu í annað eða þriðja hvert sinn sem vökvað er. Sumarleyfið Í sumarfríinu er gott að eiga góðan nágranna til að vökva plönturnar. Að öðrum kosti er hægt að koma þeim fyrir á skuggsælum stað fjarri beinni sólarbirtu, vökva þær hraustlega og hafa hitastigið í lægra lagi. Flestar plöntur þola vel að hafast við vel vökvaðar í gluggalausu herbergi í 1-2 vikur án þess að láta á sjá. Ingólfur Guðnason GARÐYRKJUSKÓLINN Á REYKJUM Pottaplönturnar að loknum vetri SAMFÉLAGSRÝNI Lög um stjórn fiskveiða – Grein 3 Þorskastríðið sem vannst end- anlega 1976 tryggði Íslandi 200 mílna fiskveiðilögsögu. Þjóðin stóð saman sem einn maður og ávinningurinn var hennar. Nokkrum árum síðar stóðum við frammi fyrir öðrum vanda, ofveiði. Of mörg skip, of fáir fiskar. Fiskimiðin voru ekki leng- ur takmarkalaus hít heldur tak- mörkuð auðlind. Við þessu þurfti að bregðast. 1984 voru veiðar takmarkaðar og aðganginn að miðunum fengu virk fiskiskip samkvæmt veiðireynslu sl. þriggja ára. Kvótakerfið varð til og tilgangur þess var að vernda fiskistofna við Ísland. Enn voru samt of margir um hituna og krafan um kvótaframsal kom fram. Frjálsu framsali var ætlað að hagræða í sjáv- arútvegi með því að safna veiðiheim- ildum á færri hendur og árið 1990 samþykkti Alþingi lög þessa efnis. Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag settu þessi lög í andstöðu við Sjálfstæðisflokk. Í þessum lögum segir m.a.: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum. Heimilt er að framselja aflahlut- deild skips að hluta eða öllu leyti og sameina hana aflahlutdeild annars skips.“ Þetta hafði þáverandi sjávarút- vegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, um lögin að segja: „Útvegsmenn sem fá framselda til sín aflahlutdeild af öðrum fiski- skipum vita að þeir eru ekki að fjár- festa í varanlegum réttindum. Það verð sem þeir eru tilbúnir að greiða fyrir slíkar heimildir hlýtur því að taka mið af þeim raunveruleika að Alþingi getur hvenær sem er breytt lögunum um stjórn fiskveiða, kom- ist Alþingi að þeirri niðurstöðu að annað fyrirkomulag tryggi betur lífskjör í landinu.“ Þessi skilaboð sjávar útvegs- ráðherrans náðu greinilega ekki langt því verðlagning aflaheimilda fór fljótlega upp úr öllu valdi. Augljóst var að menn töldu sig vera að kaupa varanlegan veiðirétt en ekki til eins árs í senn. Síðar viðurkenndu Vinstri græn mistök við þessa lagasetningu og settu neðangreint í stefnuskrá sína: „Þrátt fyrir ákvæði laga um að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar hafa aflaheimildir verið markaðsvædd- ar, með þær farið sem ígildi einka- eignarréttar og þær safnast á æ færri hendur. Framhjá því verður heldur ekki litið að markmið núverandi laga um stjórn fiskveiða hafa ekki náðst og þróunin sumpart orðið í þveröf- uga átt.“ En sagan er ekki búin. Í lögum um samningsveð frá 1997 stendur: „Eigi er heimilt að veðsetja réttindi til nýtingar í atvinnurekstri, sem skráð eru opinberri skráningu á tiltekið fjárverðmæti og stjórn- völd úthluta lögum samkvæmt, t.d. aflahlutdeild fiskiskips.“ Þarna er aflahlutdeild fiskiskipa sérstaklega tilgreind og því nokkuð augljóst að veiðiréttur hefur verið veðsettur í trássi við lög. Lögin eru skýr. Af þeim leið- ir að breyting á árlegri úthlutun aflaheimilda er hverri ríkisstjórn fullkomlega heimil og skapar enga skaðabótaskyldu. Uppskrúfuð verð- lagning aflaheimilda gegn um árin er engum að kenna nema útvegs- mönnum sjálfum og samkrulli þeirra við fjármálastofnanir. Þetta samkrull hefur búið til forréttinda- hóp, svo sterkan að veiðiréttur á Íslandsmiðum er orðinn að erfða- góssi. Þessa sjálftöku þarf að stöðva og þó fyrr hefði verið. Nýju stjórnarskránni er ætlað að leysa málið. Næsta grein fjallar um auð- lindaarðinn og skiptingu hans. Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður Ólafur Ólafsson, fyrrv. landlæknir Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor Hversu næg er íslensk þjóð sér um matvæli? Í febrúar kom út rit LbhÍ nr. 139 sem ber heitið Fæðuöryggi á Íslandi. Í ritinu er sjónum beint að matvælaframleiðslu og því hver áhrif yrðu á framleiðslu ef skortur yrði á innfluttum(?)„… aðföngum sem nú eru nýtt til framleiðslu á grunnhráefnum til matvælaframleiðslu“. Greining sem gerð er frá þess- um sjónarhóli lítur augljóslega fram hjá þeirri augljósu staðreynd að verði skortur á þessum aðföngum er í hæsta máta líklegt að truflanir verði á öðrum aðdráttum til lands- ins s.s. tilbúnum matvælum. Þær truflanir gætu orðið mun afdrifa- ríkari en skortur á aðföngum til matvælaframleiðslu. Í greiningu LbhÍ er annars komið víða við. Ekki er hjá því komist að gera fáeinar athugasemdir við þá umfjöllun. Í samantektarkafla skýrslunnar segir að innlend framleiðsla nemi 99% af framboði af mjólkurvör- um. Ég hef hvergi í skýrslunni fundið á þessu nánari skýringu, næst því kemst líklega mynd á bls. 21. Samkvæmt opinberum tölum ársins 2020 nemur innflutningur miðað við próteinefnaþátt mjólkur 5,4% af sölu sem væntanlega er jafnt neyslu innanlands (að matarsóun frádreginni) og 3,5% miðað við fituinnihald. Þar af nema innflutt- ir ostar 645 tonnum sem svarar til 9,7% markaðarins. Þá segir að innlend kjötfram- leiðsla anni 90% af heildarneyslu landsmanna. Hvergi sér þess hins vegar stað að tekið hafi verið tillit til innflutnings á unnum kjötvörum. Samkvæmt íslenskum hagskýrsl- um nam hann t.d. 399 tonnum árið 2019 frá löndum ESB en ef litið er til útflutningsskýrsla ESB nam hann 1.045 tonnum sem er umtals- vert magn og nauðsynlegt að geta um í samantekt sem þessari. Eins er ekki skýrt hvort innflutningur á kjöti er talinn eins og í skýrslum Hagstofunnar eða leiðrétt miðað við að um beinlaust kjöt er oftast um að ræða, svo það sé samanburðarhæft við innlendar tölur. Þá er ósvarað spurningu hvernig skýrsluhöfund- ar komast að þeirri niðurstöðu að 96% af neyslu eggja séu innlend framleiðsla. Engin fersk og ógeril- sneydd egg eru flutt inn til neyslu hér á landi, aðeins egg til útungurn- ar. Ef átt er við innflutning á með- höndluðum eggjum (ekki í skurn) hefði verið gott að það kæmi fram. Í kafla 4 er síðan umfjöllun um fæðuöryggi á heimsvísu. Þar er loks að finna umfjöllun sem hefur að mati undirritaðrar meiri þýðingu, þ.e. um „fæðusjálfstæði“ (e. food independency). Hér er komið nær því viðfangsefni að fjalla beinlínis um hve mikið er framleitt innanlands af þeim matvælum sem við neyt- um. Þessi hlið málsins hefur feng- ið mikla umfjöllun t.d. í Noregi sjá t.d. bæði skýrslu norska umhverfis- ráðuneytisins https://www.milj- odirektoratet.no/globalassets/ publikasjoner/m1625/m1625.pdf og athugasemdir norsku Landbúnaðar- greiningarstofunnar (n. Agri Analyse). https://www. agri analyse. no/getfile.php/135599-1589190983/ Doku menter/Dokumenter%202020/ Arbeidsnotat%202%202020%20 selvforsyning_.pdf. Í þessum norsku skýrslum er notað hugtakið „selvforsyn- ingsgrad“ sem mætti þýða sem „sjálfsnægtahlutfall“. Það segir til um hve hátt hlutfall neyslu kemur frá innlendri (norskri) framleiðslu, sjá bls. 213 í skýr- slu norska umhverfisráðuneytis- ins. Í mynd A 63 á sömu bls. er rakið hvert sjálfsnægtahlutfallið er fyrir helstu afurðir norsks land- búnaðar. Á þeim grunni er síðan í skýrslunni fjallað um áhrif þess að breyta neyslumynstri matvæla, t.d. að draga úr neyslu á rauðu kjöti til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda, á þetta sjálfsnægta- hlutfall. Nú stendur yfir landskönnun á mataræði meðal Íslendinga á vegum Embættis landlæknis. Samkvæmt upplýsingum þaðan er von á að niðurstöður liggi fyrir í haust. Þær verða mikilvægt innlegg í umræðu um hve hátt hlutfall þeirra matvæla sem neytendur innbyrða er komið úr nærumhverfinu (íslenskt) og hve hátt hlutfall er innflutt. Út frá því má skoða t.d. áhrif breyttra neyslu- viðmiða t.d. vegna aðgerða í lofts- lagsmálum á fyrrnefnt sjálfsnægta- hlutfall. Í framhaldinu væri eðlilegt að taka hliðsjón af því í stefnumót- un fyrir íslenskan landbúnað. Erna Bjarnadóttir verkefnastjóri MS Erna Bjarnadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.