Bændablaðið - 29.04.2021, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202128
LÍF&STARF
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir er
bókmenntafræðingur og grafískur
hönnuður og starfar við að aðstoða
fyrirtæki í vörumerkjaþróun og
heildarímynd undir merkjum
fyrirtækis síns, Kúper Blakk. Hún
segir mikilvægt að fólk átti sig á
því hvaða sögu það vilji segja og að
margt sé hægt að gera í dag fyrir
lítinn pening. Lykillinn sé alltaf að
fólk hafi trú á því sem það er að
gera, því þá verði eftirleikurinn
svo auðveldur.
„Ég nýti reynslu mína úr bók
menntafræðinni og hönnunargeir
anum við að leiðbeina smáum og
stórum fyrirtækjum ásamt einyrkjum
við hvað þurfi að hafa í huga þegar
vörumerki eru byggð upp. Það er
að mörgu að huga í þessum efnum
og á þessum sjálfbæru tímum sem
við lifum á, árið 2021, þá getur
fólk í rauninni gert margt sjálft
þegar kemur að þessu,“ útskýrir
Þórhildur, sem stofnaði Kúper Blakk
upprunalega þegar hún var búsett á
Egilsstöðum fyrir 15 árum.
Fjölbreyttur og góður skóli
Eftir nám í grafískri hönnun í
Kaupmannahöfn flutti Þórhildur
heim með fjölskylduna, fyrst um
sinn til Egilsstaða þar sem maður
hennar, Gunnar Örn Guðmundsson,
fékk starf hjá Alcoa á Reyðarfirði,
en síðar fluttu þau í Kópavoginn þar
sem þau eru búsett enn.
„Það var í rauninni lítið að gera
fyrir mig á Egilsstöðum þannig að ég
ákvað að stofna mitt eigið fyrirtæki
árið 2007. Við vorum með þrjú lítil
börn og ég tiltölulega nýskriðin úr
fæðingarorlofi og námi, þannig að
það var ekki mikið fyrir grafíska
hönnuði og bókmenntafræðinga að
gera á Austurlandi,“ segir Þórhildur
og bætir við:
„Síðan leið á og ég fékk fjölbreytt
verkefni upp í hendurnar fyrir austan,
þau fyrstu fyrir Alcoa. Síðan, eins og
gerist, þá er auðveldara að vera í
smærri stæðum ef maður er duglegur
og ef maður nær að sanna sig þá
spyrst það út. Þetta var góður skóli
og eitt og annað að finna úr enda var
þetta fjölbreytt, allt frá því að búa til
vörumerki og merki yfir í bæklinga
og að skapa heildarsýn, eins og til
dæmis fyrir Náttúrugripasafnið í
Neskaupstað.“
Allir dagar stórmerkilegir
Þórhildur segir þau síðan hafa tekið
þá ákvörðun korter í hrun að flytja
í bæinn og þá hófst ný vegferð í að
sanna sig á ný.
„Þarna var ég í rauninni að
reyna að halda mínum eigin rekstri
gangandi á einhverjum tíma en það
var erfitt. Fyrirtæki fóru á hausinn
í kringum mig sem ég vann fyrir
og þá tók ég ákvörðun að fara í
mastersnám í bókmenntafræði. Það
gaf mér rými til að skoða hvernig
ég gæti nýtt mér bókmenntafræðina
og grafíska hönnun, sem var góður
tími,“ útskýrir Þórhildur og segir
jafnframt:
„Ég fór að skoða auglýsingar
og umbúðir og að greina hlutina
hinum megin frá sem femínisti
og menningarrýnir, það er rusl
menningar eins og ég kýs að kalla
það. Það er ekkert endilega tekið
eftir því sem við grafískir hönnuðir
erum að gera dagsdaglega eins og
umbúðir, mjólkurfernur, bílaskilti
og fleira. Ég fór að vinna hálfan dag
hjá Myndstef og þá opnaði það fyrir
mér að vera ekki hrædd við að fara
í allt aðrar áttir en ég ætlaði mér.
Ég var búin að vera í grúskinu í
náminu, með börnin og líka einyrki
og langaði þá að fara á vinnustað
þannig að ég var svo heppin að ég
fékk vinnu sem yfirhönnuður hjá
Íslandsbanka árið 2012. Þarna datt ég
inn í markaðsteymið á þessum stóra
vinnustað sem var mjög fjölbreytt
og fjölmennt. Þetta var rosalega
góður skóli því ég lærði allt um
markaðsmál, innri markaðsmál og
samskipti ásamt því hvernig það er
að þjónusta alls konar starfsfólk. Það
er svo gott að komast inn í gott mengi
af flottu fólki varðandi tengslanet
og fleira. Ég var eins og svampur
og fannst allir dagar stórmerkilegir.“
Úr banka í verslun
og orkufyrirtæki
Eftir fimm ára reynslumikil og góð
ár hætti Þórhildur hjá Íslandsbanka
og fór yfir til Festis sem á og rekur
meðal annars Krónuverslanirnar. Þar
opnuðust nýjar og spennandi dyr.
„Ég fer í ótrúlega skemmtilegt
verkefni með umbyltingu að sjón
armiði. Ég byrjaði sem hönnuður í
markaðsteymi með yfirumsjón með
framleiðslu á alls konar efni fyrir
Festi. Við fórum í að byggja upp
vörumerkjavirði Krónunnar og þá
fór að mótast sýn hjá mér, það er að
nýta þessa tvo þræði í mér; sögu
manninn sem bókmenntafræðingur
og grafíska hönnuðinn til að miðla
sjónrænt. Ég fékk að skipta mér af
öllu, staðsetningu á verslunum og
fleira og lánaði „hönnunarheilann“
minn í ýmislegt eins og stefnumót
andi ákvarðanir og fleira. Vörumerki
er allt sem er gert undir nafni og
hatti vörumerkisins sem er ótrúlega
spennandi, það er að hafa þessa yfir
sýn,“ segir Þórhildur og bætir við:
„Eftir þennan góða tíma fer ég
til Orku náttúrunnar. Þar var aðal
áherslan á að byggja upp vöru
merkið og persónuleika þess. Því
mun skýrari sýn og framsetning á
stefnu fyrirtækjanna er fyrir við
skiptavininum og að vörumerkið sé
sem heilsteyptast, þannig myndast
traust. Viðskipti eru ekkert annað en
traust. Grunnformúlan sem ég var að
vinna með Orku náttúrunnar í var að
við vorum að móta nýja stefnu þar
og samhengi út frá viðskiptavinin
um númer 1, 2 og 3 og vefa síðan
vörumerkið utan um stefnuna. Ég
hef sterkar skoðanir á að við sem
samfélag eigum að nýta betur alla
þessa „hönnunarheila“ í samfélaginu
í stefnumótandi ákvarðanir, þá gerast
töfrar.“
Vörumerki þarf
að segja sína sögu
Eftir að hafa fyllt bakpokann af
reynslu hjá banka, smásölu og
orkufyrirtæki fann Þórhildur þá
köllun hjá sér að hún yrði að
endurvekja Kúper Blakk og gera
hlutina aftur upp á eigin spýtur svo
úr varð að hún byrjaði með það á
afmælisdeginum sínum í fyrra, 21.
október.
„Það er búið að vera ótrúlega
mikill áhugi síðan ég byrjaði aftur
með Kúper Blakk. Það að byggja
upp vörumerki er langhlaup, rétt eins
og stefnumótun og eða að umbreyta
eða bylta einhverju. Fyrir utan þau
ráðgjafar og hönnunarverkefni sem
ég geri fyrir hin ýmsu fyrirtæki stelst
ég líka stundum til að búa til bækur.
Það er mikil handavinna að búa til
bókverk og ég hef takmarkaðan tíma
í það en ég elska að búa til bækur
og er þá í samstarfi við höfunda og
útgáfufélög,“ segir Þórhildur og
bætir við:
„Mér finnst mikilvægast að
flakka á milli ólíkra heima og máta
hvernig ólík reynsla geti nýst í ólík
um verkefnum. Sú þekking að búa
til bækur nýtist til dæmis ótrúlega
vel þegar byggja á upp vörumerki,
af hverju ertu að segja þessa sögu
og af hverju er hún merkileg? Þetta
er grunnurinn sem ég er að nýta í
mínu starfi. Í fyrirlestrum sem ég
held er ég að sannfæra einyrkja
ásamt smærri og stærri fyrirtæki um
hversu mikilvægt sé að vörumerk
ið eigi heima í fyrirtækinu, það sé
ekki úti í bæ hjá verktaka eða t.d.
hjá einhverri auglýsingastofu. Það
eru ákveðnar eignir sem fyrirtækið
þarf að hafa hjá sér. Ekki endilega
bara textar heldur líka hljóð og tal,
ljósmyndir, hönnunarskjöl – því það
er alls konar sem endurspeglast í
vörumerkinu.“
Borgar sig að vinna
heimavinnuna
„Ástríða mín er að aðstoða fyrirtæki
að fá yfirsýn og öðlast vald yfir
vörumerkinu sínu og geta þannig
orðið sem mest sjálfbær. Eitt sem
ég er oft spurð að og mér finnst
mikil þörf á er hvaða leið fyrirtæki
eigi að taka til að deila meiru frá
sínum miðlum. Hvað þarf að hafa í
huga við að byggja upp vörumerki?
Það er margt sem maður getur gert
sjálfur og það þarf ekki að gera eins
og allir aðrir, heldur fyrst og fremst
að vita hvað fyrirtækið ætlar að gera
við sitt vörumerki. Öll fyrirtæki eru
sprottin upp úr þörfum sem það þarf
að leysa, fyrirtæki þurfa t.d. ekkert
endilega að vera með heimasíðu eða
Facebook heldur það sem virkar fyrir
hóp þess,“ útskýrir Þórhildur og segir
jafnframt:
„Vörumerki er ekki fólk heldur
byggt upp af fólki. En fólk kemur
og fer og maður sér í stóru, flottu
og stöðugu vörumerkjunum eins
og Apple, Coca Cola og Bónus að
það geta í rauninni allir gengið út
og nýtt fólk tekið við án þess að
vörumerkið beri skaða af – því það
er skýrt fyrir hvað þau standa og
hvernig þau haga sér. Ég hvet alltaf
alla til að gera heimavinnuna sem
mest sjálfir, ef það er að fara að gera
vöru eða eitthvað nýtt. Það er árið
2021 og það er mjög mikið sem fólk
getur gert sjálft fyrir lítinn pening.
Það þarf að vekja áhuga einhvers og
þá vilja þeir vita meira. Ef þú hefur
trú á því sem þú ert að gera þá er
eftirleikurinn svo auðveldur og mun
ódýrari en ella. Það er svo dýrt að
vera alltaf að byrja upp á nýtt með
autt blað. Það þarf alltaf að spyrja
hvaða þarfir erum við að leysa, fyrir
hverja og hvernig tala ég við þau.
Vörumerki þurfa að þroskast og
þróast í takt við tíðarandann rétt
eins og allt annað.“
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
Þórhildur Laufey Sigurðardóttir er bókmenntafræðingur og grafískur hönnuður og starfar við að aðstoða fyrirtæki í vörumerkjaþróun og heildarímynd
undir merkjum fyrirtækis síns, Kúper Blakk. Hún hélt erindi á dögunum fyrir Samtök smáframleiðenda sem var mjög áhugavert. Mynd / Camilla Ósk Hákonardóttir
Sterk vörumerki eru heilsteypt og með skýran tilgang, úr bókinni Designing
Brand Identity eftir Alina Wheeler.