Bændablaðið - 29.04.2021, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021
ULLARFRAMLEIÐSLA&NÝTING
Vandaðar samlokueiningar í miklu úrvali.
Fást bæði með PIR og steinullar einangrun.
GRÓÐURHÚS
Tryggðu þér vandað gróðurhús fyrir sumarið!
YLEININGAR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Margar gerðir gróðurhúsa - fást í ál lit, svörtu og
grænu. 4 mm hert gler eða 10 mm ylplast
Kristinn Sigurbjörnsson
Löggiltur fasteignasali og byggingafræðingur.
Sími: 560-5502
Netfang: kristinn@allt.is
Sérsniðin þjónusta
að þínum þörfum
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
bæði Íslendingum og erlendum
borgurum sem hafa áhuga á að
dvelja á stað þar sem falleg náttúra
og saga fortíðar umvefur fólk og
blæs því í brjóst hugmyndum til að
skapa og hanna sín eigin listaverk.
Við Textílmiðstöðina eru 2
starfsmenn í fullri stöðu og 2 í
hlutastarfi og stöðugt er unnið að
því að auka þekkingu og efla starf
í kringum textíl og textíliðnað með
áherslu á að nýta íslenska ull í
verkefnin eins og kostur er.
Ístex – Mosfellsbæ
og Blönduósi
Íslenskur textíliðnaður hf. (Ístex hf.)
hefur unnið að því í um þrjá áratugi
að skapa verðmæti úr íslenskri ull,
en þann 15. október næstkomandi
eru þrjátíu ár frá skráningu félagsins.
Íslenskir bændur eiga 80 prósenta
hlut í félaginu.
Ístex hefur verið leiðandi
í framleiðslu á ullarbandi úr
íslenskri ull. Hér mætti nefna
handprjónabandstegundir líkt og
Léttlopi, Álafosslopi, Einband,
Jöklalopi, Plötulopi og Hosuband.
Loðband og Léttlopi á kónum hafa
verið mikilvægar fyrir íslenskar
prjónaverksmiðjur í gegnum tíðina.
Ístex gefur út á hverju ári
fjölbreytta hönnun í Lopabókunum,
en nú sem fyrr leita prjónarar eftir
spennandi munstrum. Eitt stærsta
safn í heimi af Lopauppskriftum má
finna að stórum hluta á Lopidesign.
is. Ístex lætur vefa yfir 20 gerðir af
ullarteppum úr Loðbandi og Léttlopa.
Meðal nýjunga hjá Ístex er vélþæg
íslensk ull, en félagið framleiðir
sængur og einangrunarefni úr þessari
íslensku nýjung.
Rekin er ullarþvottastöð á
Blönduósi en spuna- og bandverk-
smiðja í Mosfellsbæ.
Umfjöllunin var unnin í sam-
vinnu við Huldu Brynjólfsdóttur í
Uppspuna og ullarvinnsluaðilana
sjálfa. /smh
Lopi í framleiðslu hjá Ístex.