Bændablaðið - 29.04.2021, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 29.apríl 2021 41
um, hvort sem þeir sem stjórna eru
á staðnum eða víðs fjarri.
Það verða engin aukaefni í okkar
afurðum eða skordýraeitur, þetta
verður bara gott og ferskt íslenskt
grænmeti sneisafullt af næringu,“
segir Daníel.
Afurðir úr kálverinu verða í aðal-
hlutverki í þeim mat sem framreiddur
verður á hótelinu eftir að það verð-
ur tekið í gagnið. Að auki verður
íslenskt gæðahráefni í öndvegi, skyr,
ostar, hangikjöt, hráskinka, reyktur
silungur, svo dæmi séu tekin. Daníel
segir synd að berjum og öðru íslensku
góðgæti sé ekki í meira mæli haldið
að erlendum ferðamönnum.
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið styrkti verkefnið og þá
er Hótel Akureyri í samstarfi við
Landbúnaðarháskóla Íslands og
Eim, sem sinnir þróun og nýsköpun
á sviði sjálfbærni, grænnar orku og
betri nýtingu auðlinda.
Starfsemi hótelsins
verður sjálfbærari
Daníel segir að ástand sem skapaðist
í kjölfar kórónuveirufaraldursins hafi
reynst afar krefjandi, en einnig gefið
ráðrúm til að yfirfara alla starfsemi
félagins og skýra sýn á það hvert
skuli stefna og fyrir hvað Hótel
Akureyri standi.
„Hugmynd okkar snýst um að
gera starfsemi hótelsins sjálfbær-
ari og að þjónusta samfélag okkar
betur. Stærsta áskorun hótela nú
fyrir utan allt sem viðkemur tækni-
framförum, er að vera gildandi hluti
í samfélagi sínu og ferðalagi gesta
okkar. Það er mikilvægt að geta
boðið þjónustu og upplifun sem er
viðeigandi fyrir stað og stund og
skilur eitthvað sérstakt eftir sig í
hugum viðskiptavina. Flestir okkar
gesta nefna náttúru, friðsæld, litríkt
samfélag og menningu sem helstu
ástæðu þess að þeir ferðist að norð-
urhjara veraldar,“ segir hann.
Í námunda við heimsskautsbaug
Að vera aðeins 95 kílómetra frá
heimskautsbaugi setur tilveru gest-
anna í nýstárlegt samhengi.
„Við erum berskjölduð gagnvart
náttúrunni og hennar öflum og erum
þar af leiðandi í kjöraðstæðum til
að fræða gesti um umhverfisvæna
sambúð við náttúruna og hvernig
við getum tekist á við áskoranir
hennar með nýsköpun að vopni,“
segir Daníel. Kappkostað er að hafa
andrúmsloft hótelsins eins heimil-
islegt og hægt er.
„Við reynum að sem flestir þætt-
ir í starfsemi okkar endurspegli
íslenska þjóðhætti og menningu,“
segir hann. /MÞÞ
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420 dreifingarstaði og lögbýli á Íslandi
Verð kr.
13.500.000
án vsk.
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA
G135 ACTIVE
Ve
rð
m
iða
st
við
ge
ng
i E
UR
15
0
Helsti búnaður:
• Valtra Powershift: 6PS 24+24
• Rafskiptur með 4 gírum og 6 milligírum.
• Vökvavendigír
• 135 hestafla 4.4L mótor, hámarks afl 145 hestöfl
• Sigma Power aflauki
• 3ja hraða aflúrtak 540/540E/1000
• Húsfjöðrun
• Fjaðrandi framhásing
• G5S ámoksturstæki Euro, SMS
• Rafstýrður stýripinni fyrir ámoksturstæki
innbyggður í armhvílu
• Fjöðrun á ámoksturstæki
• Premium vinnuljósapakki - 4 framan, 6 aftan
• Sjálfvirk bakk flóðlýsing
• Auka ökuljós í hústoppi
• 3 vökvasneiðar load sensing að aftan
• Power Beyond vökvatengi fyrir LS tæki
• 2 vökvasneiðar að framan 2ja slöngu
• Vökva vagnbremsuloki
• Miðstöð með loftkælingu og auka miðstöð niðri
• High visability roof, glerþak að hluta fyrir aukið
útsýni
• Loftsæti fyrir ökumann
• Farþegasæti með sætisbelti
• Aflúrtaksrofi á afturbretti
• 600/65 R38 + 480/65 R28 Continental dekk
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum vegna
stuðnings við aðlögun að lífrænum framleiðsluháttum í samræmi við ákvæði
V. kafla reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021
Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. framangreindrar reglugerðar og
hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti faggildrar vottunar-
stofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu og merk-
ingu lífrænna vara, með síðari breytingum, geta sótt um aðlögunarstuðning.
Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi í þeim búgreinum
sem við á hverju sinni.
Nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn eru eftirfarandi:
1. Kostnaðaráætlun unnin af fagaðila.
2. Afrit af áætlun um aðlögun að lífrænni landbúnaðarframleiðslu, staðfest
af faggildri vottunarstofu.
3. Staðfesting faggildrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi undirritað
samning við hana um reglubundið eftirlit með framleiðslunni samkvæmt
reglum um lífræna framleiðslu.
Nánari upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl má finna í framangreindri
reglugerð.
Opið er fyrir rafrænar umsóknir á AFURÐ (afurd.is) greiðslukerfi land
búnaðarins. Umsóknum skal skila inn eigi síðar en 15. maí nk.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Auglýst eftir umsóknum
um stuðning við lífræna
framleiðslu
Eitt af því sem stefnt er að framleiðslu á eru æt blóm.
Ostrusveppir verða framleiddir í kálverinu.
Afurðir úr kálveri verða í öndvegi á
matseðli Hótels Akureyri en einnig
íslenskt gæðahráefni, skyr, ostar og
fleira.