Bændablaðið - 29.04.2021, Blaðsíða 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. apríl 202158
Graslendi eða gresjur eru yngstu
gróðurbelti jarðar. Elstu minjar
(steingervingar) um grösin
(Poaceae), sem eru lykilplöntur
graslenda, eru einungis um 50
milljón ára gamlar en útbreiðsla
graslendis hefst fyrst fyrir um 20
milljónum ára.
Það sem er sérstakt við grös og
skyldar plöntur er að þær þróuðust
samhliða sérhæfðum grasbítum,
eins og jórturdýrunum, aðlöguð
beitinni og þrífast betur með
beitardýrum en án. Þessi aðlögun
felst meðal annars í því að aðal
vaxtarbroddur plantnanna er
staðsettur svo neðarlega að hann
skemmist ekki við beit og plantan
heldur ekki einungis áfram að vaxa
þó hún sé bitin heldur bætir einnig
við nýjum sprotum. Þannig þéttir
beit svörðinn jafnframt því að auka
uppskeru. Með beitinni styrkja
líka beitadýrin sinn fæðugrunn og
er því hið fornkveðna „að beit sé
hagabót“ alls ekki úr lausu lofti
gripið. Viðhald eða ræktun úthagans
fylgir því í megindráttum sömu
lögmálum og ræktun túna – beit
ásamt þeim skít/áburði sem henni
fylgir er lykillinn að viðhaldi
beitargróðurs í úthaga – eins og
sláttur og áburður er ræktuðu túni.
Við friðun gisnar svörðurinn, mosi,
fléttur eða kjarrgróður koma inn.
Þessar breytingar má greinilega
sjá víða um land, bæði í gömlum
túnum sem ekki eru lengur slegin
og á svæðum sem hafa verið friðuð
fyrir beit. Bæði mosi og fléttur
eru mjög hægvaxta sem segir
líka að framleiðslan, og þar með
kolefnisupptakan, minnkar til muna.
Þar sem hvorki mosi né fléttur hafa
eiginlegar rætur þá veikist einnig
svörðurinn sem verður viðkvæmari
fyrir rofi af völdum vatns og vinda.
Til að grösin standist álag
beitarinnar og nái að halda uppi
framleiðslu lífmassa ofnajarðar
er nauðsynlegt fyrir plöntuna að
hafa sterkar rætur. Stærri hluti
grasplöntunnar, eða 60-90%, er
neðanjarðar í rótarmassa sem
er umfangsmikill og nær djúpt
í jarðveginn. Rætur grasa eru
mjög fíngerðar og reyndist lengi
vel erfitt að rannsaka þær. Það
er ekki fyrr en á síðustu árum
að tæknin gerir mönnum kleift
að rannsaka neðanjarðarhluta og
áætla hversu stór rótarmassi grasa
er. Grasræturnar vaxa fram þar
sem vatn og næringu er að finna á
hverjum tíma, eru skammlífar og er
því umsetning og velta rótarmassans
mikil. Dauðar rætur verða eftir sem
fæða fyrir niðurbrotsörverur og
mynda jarðveginn. Ekki er óalgengt
að rætur grasa nái niður á 1-2 m
dýpi, jafnvel 3 m á þurrum stöðum
á jörðinni. Vegna þess að virkni
rótarmassans fer eftir vatni og
næringu á hverjum stað og tíma, eru
ræturnar ekki bara virkar og lifandi
efst í jarðveginum heldur í öllu
jarðvegssniðinu. Kolefni sem tekið
er upp af plöntunni úr andrúmslofti
getur verið komið niður á 2 m
dýpi í jarðveginum eftir nokkra
klukkutíma. Graslendisjarðvegur
er því einstakur þar sem hann
er mjög lítið lagskiptur og með
með hátt hlutfall kolefnis í
öllu jarðvegssniðinu. Ástæðan
fyrir því að meira og minna allt
akurlendi jarðar er staðsett á fyrrum
náttúrulegu graslendi (praire,
steppe, grassland) er einmitt sú að
þar var langbesti jarðvegurinn til
ræktunar; djúpur og næringarríkur
með hátt hlutfall lífræns efnis
(kolefnis) sem grös höfðu byggt
upp á milljónum ára.
Hin mikla útbreiðsla graslendis
á Íslandi er án efa til komin vegna
beitarinnar. Eins og fram hefur
komið færir beitin vistkerfið í átt
að graslendi – á kostnað fléttna,
mosa og kjarrlendis jafnframt því
að þétta rótarmassann. Sú hugmynd
hefur komið fram og er lífseig að
ekki sé æskilegt að beita í halla þar
sem beitin valdi rofi – að brekkur og
halla þurfi að friða. Við friðun slíkra
svæða minnkar hlutdeild grasa en
mosi og fléttur koma inn í staðinn.
Þar sem mosi og fléttur hafa ekki
eiginlegar rætur gisnar svörðurinn,
jarðvegurinn verður lausari og fer
að síga niður hallann. Mikilvægi
beitar til að viðhalda þéttum sverði
í brekkum og miklum halla sést
best í Svissnesku Ölpunum þar sem
seljabúskapur hefur verið stundaður
í hundruð – ef ekki þúsundir ára.
Brattar brekkur Svissnesku alpanna
eru víðast grasi grónar – og þar er
þéttur og sterkur svörður sem er
viðhaldið af beitardýrum sem ganga
þar sumarlangt.
Oft er því haldið fram að plöntur
á norðurslóðum, eins og á Íslandi,
séu mjög viðkvæmar fyrir beit,
sérstaklega vegna hins stutta sumars
og lágs hitastigs. Það má færa rök
fyrir því að þessu sé í raun þveröfugt
farið. Hið stutta og breytilega
sumar á norðurslóðum hefur kallað
fram aðlögun plantna sem felst
m.a. í því að norðurslóðaplöntur
(og fjallaplöntur) treysta lítið á
kynæxlun en fjölga sér aðalega með
neðanjarðarenglum og –sprotum sem
tengir ofanjarðarsprota á stóru svæði
saman. Í mörgum gróðurlendum
á norðurslóðum er mjög virkt
neðanjarðaframfærslukerfi milli
plöntusprota fjölmargra tegunda
sem flytur næringu á milli, ef þarf.
Ef einn sproti (eða fleiri) eru bitnir
þá fá þeir aðstoð við að koma sér
aftur af stað frá tengdum sprotum
(systrasprotum) sem ekki voru
bitnir. Þá skiptir líka miklu máli
að ljóstillífun á norðurslóðum er
möguleg nær allan sólarhringinn
stóran hluta vaxtartímabilsins, sem
getur gefið mikla uppskeru í stuttan
tíma. Þetta eru allir þeir farfuglar
sem hingað koma á hverju vori að
sækjast eftir – kostnaðurinn við
farflugið borgar sig og vel það.
Því mætti heldur halda því fram
að íslenskur úthagi sé sérlega vel
aðlagaður nýtingu og standist
beitina vel þann stutta tíma sem
vaxtartímabilið er.
Það sem skilur grös og skyldar
plöntur sérstakleg frá trjám og
trjákenndum plöntum er hvar
inneignin er lögð; þ.e. hvar plantan
geymir mest af sínu kolefni.
Trjáplöntur afsetja sitt kolefni
hlutfallslega mest ofanjarðar, í í
greinum, laufi og trjástofni, meðan
grös og skyldar tegundir afsetja
það aðallega neðanjarðar, í rætur
og jarðvegsrenglur. Í graslendi
getur allt að 98% af heildarkolefni
vistkerfisins verið bundið í
lífrænu efni í jarðveginum (öllu
jarðvegssniðinu) meðan hlutfallið
er öfugt í skógi þar sem meginforði
kolefnisins er ofanjarðar og í efstu
lögum jarðvegsins. Í rannsóknum á
kolefnisforða í jarðvegi er algengast
að taka sýni úr efstu 30 sm. Það gefur
auga leið að þessi aðferðarfræði
gefur villandi niðurstöðu þegar bera
á saman kolefnisforða í graslendi
annarsvegar og skóglendi hinsvegar.
Samanburður á kolefnisforða í
jarðvegi í skógi og graslendi, m.a. á
Íslandi, sýndi greinilega að kolefnið
í skógarjarðvegi var aðalega í efstu
10 cm ólíkt graslendinu þar kolefnið
var í mun meira mæli dreift niður í
dýpri jarðvegslög (sjá Bársena o.fl.
2014 – Global Change Biology).
Samanburðurinn sýndi einnig að
kolefni í jarðvegi tapaðist við að
planta skógi í graslendi – og þó náði
sýnatakan aðeins niður á 30 cm dýpi
í þessu tilviki. Nýbirtar rannsóknir
frá Skotlandi gáfu sambærilegar
niðurstöður fyrir grasríkt mólendi
þar sem plantað hafði verið m.a
birki (Betula pubescens) og
Skógarfuru (Pinus sylvestris) fyrir
12 og 39 árum. Mælingar sýndu að í
skógarreitunum var kolefnisforðinn
í jarðveginum minni en í óröskuðum
samanburðarreitum –þ.e. kolefni
hafði tapast úr jarðveginum við
skógarplöntunina og ávinningur
við kolefnisuppsöfnun í trjábolum
ofanjarðar vann ekki upp
heildartapið (sjá Friggens o.fl.
2020 – Global Change Biology).
Fjölmargar rannsóknaniðurstöður
sem fram hafa komið nú síðustu
ár benda til að graslendi sé ekki
síður – og jafnvel enn betur - til þess
fallið að binda kolefni en ræktaður
skógur. Það er því mikilvægt að
afla gagna um kolefnisupptöku
og kolefnisbindingu í mismunandi
graslendisvistkerfum sem finnast
á Íslandi.
Í frumathugun, sem gerð
var í graslendi á þremur
bæjum á Vesturlandi 2015 var
kolefnisupptaka borin saman á
sambærilegu friðuðu, léttbeittu og
þungbeittu graslendi auk þess sem
mælt var magn lífræns kolefnis í
jarðvegi við þessa beitarþunga.
Valin voru þrjú svæði svæði á
hverjum bæ við reiti sem girtir
höfðu verið af fyrir áratugum í
þeim tilgangi að planta trjám, með
beitt svæði hinu megin girðingar.
Voru það annars vegar minni
þungbeitt hólf þar sem skepnum
var haldið til haga og hins vegar
léttbeittar mun stærri girðingar með
hóflegum beitarþunga. Niðurstaða
þessarar frumrannsóknar sýndi
að langtíma friðuðu hólfin voru
minnst virk í CO2 upptöku og með
minnstan lífrænan kolefnisforða í
jarðveginum. Vaxandi beit sýndi
aukna virkni í CO2 upptöku og hafði
meira lífrænt kolefni í jarðveginum.
Þar sem frumathugunin gaf nokkuð
skýra niðurstöðu er mikilvægt að
afla frekari gagna um áhrif beitar
á kolefnisbúskap úthaga á Íslandi.
Stendur til að gera þá rannsókn á
næstu þremur árum með aðstoð
fjárveitinga úr Rannsóknarsjóði
í samstarfi innlendra og erlendra
stofnana. Þá mun RML aðstoða
við að finna hentug svæði til
mælinganna og verður leitað til
bænda um aðstoð við þá leit – sjá
nánar á öðrum stað í þessu tölublaði.
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
prófessor
Háskólinn á Hólum
551 Sauðárkrókur
Sími: 8435337
HÁSKÓLINN Á HÓLUM
Aðstoð við að kortleggja möguleg rannsóknasvæði
Í janúar síðastliðinn hlaut rann
sóknarverkefnið ExGraze
Áhrif langtíma beitarfriðunar
á kolefnis upptöku og kolefni í
gras lendisjarðvegi styrk úr Rann
sóknarsjóði til þriggja ára.
Verkefnastjóri er Anna Guðrún
Þórhallsdóttir, Háskólanum á
Hólum, en samstarfsmenn eru m.a.
Rene van der Wal, prófessor frá
Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð,
Richard Bardgett, prófessor frá
Háskólanum í Manchester, og
Áslaug Geirsdóttir, prófessor
við Háskóla Íslands, auk annarra
innlendra aðila.
Í verkefninu er ætlunin að mæla
og bera saman kolefnisbúskap – þ.e.
upptöku og uppsöfnun kolefnis í
jarðvegi á beittu og óbeittu/friðuðu
landi á 40 stöðum víða um land.
Óbeitt, þ.e. afgirt friðuð hólf, er víða
að finna um landið og fjöldi slíkra
svæða henta vel í rannsóknina.
Mörg þessara hólfa voru girt af frá
beitilandi á sínum tíma til að þessi
planta þar trjágróðri og á mörgum
stöðum hefur beitin haldist utan
girðingarinnar. Annars staðar hafa
girðingar verið settar upp til að
friða fyrir beit af öðrum ástæðum
en svæðið umhverfis áfram með
beit. Við höfum sérstakan áhuga
á fá upplýsingar um öll hólf sem
hafa þekkta friðunarsögu – þ.e. vitað
um tímalengd friðunar og að hólfin
hafi verið friðuð allan þann tíma en
beitin haldist utan girðingarinnar.
Heimamenn þekkja sitt land og er
því leitað til bænda og landeigenda
sem vita um slík svæði að senda
okkur upplýsingar
Rannsóknaaðilar eru í samstarfi
við RLM um öflun þessara
upplýsinga. Á heimasíðu RML er
eyðublað þar sem upplýsingum er
komið á framfæri en einnig má hafa
samband við ráðgjafa RML beint
og koma upplýsingum á framfæri.
Upplýsingum verður safnað saman í
gagnagrunn og völd svæði heimsótt
og skoðuð í sumar. Á næsta sumri
hefjast síðan mælingar á þeim
svæðum sem verða valin.
Við þurfum að fá upplýsingar um
staðsetningu girðinganna, bæjarheiti
og sveitarfélag/póstnúmer ásamt
tengiliði. Þá þurfa að koma fram
upplýsingar um aldur girðinganna
– hvenær þær voru settar upp og,
ef plantað hefur verið - hvort trjám
hafi verið plantað í alla girðinguna
eða hluti hennar einungis friðaður.
Þar sem við erum að sækjast eftir
samanburði sitt hvoru megin
girðingar þá þarf að vera beit utan
girðingarinnar og æskilegt að fá
upplýsingar um hvort mismunandi
beitt hólf (meiri beit eða minni) liggi
að friðaða hólfinu. Þá væri gott að
láta fylgja nálægð við veg og/eða
aðgengi að rannsóknasvæðunum.
Ráðgjafarþjónusta landbún-
aðarins tekur við ábendingum um
möguleg rannsóknasvæði. Eyðublöð
koma inn á heimasíðu RML á næstu
dögum og má þar fylla út eyðublöðin
og senda RML. Þá má einnig senda
póst á. annagudrun@holar.is með
sömu upplýsingum
Með góðum kveðjum,
Anna Guðrún Þórhallsdóttir,
Háskólanum á Hólum
Sigtryggur Veigar Herbertsson,
Rannsóknarmiðstöð
landbúnaðarins
Upplýsingar sem óskað er eftir að
fylgi með ábendingu:
Bæjarheiti og póstnúmer:
Tengiliður:
Aldur girðingar/friðunar:
Áætluð stærð girðingar:
Áætlaður hluti án trjáplantna:
Fjöldi mismunandi beittra
hólfa sem liggja að friðaðri
girðingu:
Aðgengi – fjarlægð frá vegi:
Graslendi, kolefni og loftslag – eru tengsl þar á milli?
Hólar í Hjaltadal. Mynd / HKr.
Kýr á beit í Senfinental, Berner Oberland í Sviss – í yfir 1.000 m hæð.
Anna Guðrún Þórhallsdóttir.