Skessuhorn


Skessuhorn - 27.01.2021, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 27.01.2021, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 27. jANúAR 202122 Í tilkynningu frá Breiðafjarðar- nefnd kemur fram að hún hefur nú sent umhverfis- og auðlindaráð- herra erindi með tillögum sínum um framtíð verndar, nýtingar og stjórnunar verndarsvæðis Breiða- fjarðar. Markmið nefndarinnar með tillögunum er að varðveita náttúru og menningu svæðisins samhliða því að styrkja enn frekar samfélög- in umhverfis fjörðinn, þar á meðal atvinnulíf. Í tillögum sínum til ráðherra leggur Breiðafjarðarnefnd áherslu á að endurskoða þurfi lög um vernd Breiðafjarðar og það verði gert sem fyrst. Lögin eru orðin ríflega 25 ára gömul og hafa ekki tekið efnis- legum breytingum síðan þau voru sett. Um leið verði horft sérstak- lega til þess möguleika að stækka svæðið svo það nái frá Bjargtöngum að Öndverðarnesi. Nefndin leggur einnig til við ráðherra að hann beiti sér fyrir því að Breiðafjörður verði skráður á lista yfir Ramsarsvæði, en Ramsarsamningurinn er alþjóðleg- ur samningur um verndun votlend- is, þar á meðal strandsvæða niður á 6 metra dýpi. Nefndin óskar að auki eftir því að ráðherra hefji vinnu við að skoða og kynna á næstu misser- um kosti og galla stofnunar þjóð- garðs á Breiðafirði, á hluta svæðis- ins eða í heild, og skráningar svæð- isins á heimsminjaskrá UNESCO. jafnframt segir orðrétt í tilkynn- ingu frá Breiðafjarðarnefnd: „Tillögur nefndarinnar byggja á ítarlegri upplýsingaöflun og sam- ráðsvinnu sem nefndin hefur unnið að á tveggja ára tímabili. Nefndin stóð meðal annars fyrir opnu mál- þingi um framtíð Breiðafjarðar í Tjarnarlundi í Dalabyggð, hélt fjóra opna íbúafundi við fjörðinn og fundaði með fulltrúum hverr- ar sveitarstjórnar fyrir sig. Á þess- um fundum fengu nefndarmenn að heyra mismunandi sjónarmið sveit- arstjórna, hagsmunaaðila og al- mennings, sem skýrði betur hvaða leiðir gætu komið til greina og hvar helstu ágreiningsefnin lægju. Með þessu vildi Breiðafjarðar- nefnd hefja samtalið og stíga fyrsta skrefið í átt að mótun framtíðar Breiðafjarðar. Í nóvember 2020 tók Breiða- fjarðarnefnd niðurstöður samráðs- vinnu sinnar saman og sendi sveit- arfélögum við fjörðinn til formlegr- ar umsagnar. Samantektin var auk þess birt á heimasíðu nefndarinnar og áhugasömum gefinn kostur á að senda inn athugasemdir. Breiða- fjarðarnefnd lagði svo lokahönd á niðurstöður sínar í samræmi við umsagnir, þá sérstaklega umsagnir sveitarfélaga. Samantektin fylgdi erindi nefndarinnar til ráðherra máli hennar til stuðnings. Umsagnir bárust frá öllum sjö sveitarfélögunum við fjörðinn. Umagnirnar voru langflestar já- kvæðar og augljóst er að sveitarfé- lögin eru sammála Breiðafjarðar- nefnd um að mikilvægt sé að ráðast í endurskoðun á lögum um vernd Breiðafjarðar. Hvað varðar aðrar leiðir, sem nefndin leggur til, er al- menn afstaða sveitarfélaganna sú að mikilvægt sé að kanna vel og kynna enn betur kosti og galla þeirra fyrir íbúum og hagsmunaaðilum svo að sem ríkust sátt náist um málið. Þess ber þó að geta að umsögn Stykk- ishólmsbæjar var ólík umsögnum hinna sveitarfélaganna og af henni má ráða að sveitarfélagið sé ekki tilbúið í samstarf um frekari vernd- un. Umsagnir bárust einnig frá fulltrúum félagasamtaka, útgerðar- félaga, landeigenda og frá öðrum áhugasömum um framtíð svæð- isins og voru ýmist jákvæðar eða neikvæðar gagnvart hugmyndum nefndarinnar. Hægt er að kynna sér einstakar umsagnir í viðauka skýrslu nefndarinnar. Breiðafjarðarnefnd leggur, eins og sveitarfélögin, höfuðáherslu á að í áframhaldandi vinnu verði þátt- taka sveitarstjórna, íbúa, landeig- enda, atvinnulífs og annarra hags- munaaðila tryggð. Nefndin telur líka miklu máli skipta að fulltrú- ar svæðisbundinna og landsþekj- andi fagstofnana á sviði náttúru- og menningarminja verði hafðir með í mótun framtíðar Breiðafjarðar og að áfram verði lögð rík áhersla á fræðslu, samtal og samráð. Við frekari mótun á framtíð Breiða- fjarðar þarf að gæta að samræmingu á vernd og nýtingu og að verndar- aðgerðir takmarki ekki sjálfbæra nýtingu á auðlindum. Nefndin er þakklát þeim sem hafa látið sig málið varða, tekið þátt í umræðum á fundum eða sent um- sagnir og athugasemdir til nefndar- innar.“ Skýrsluna og aðrar upplýsingar er varða vinnu Breiðafjarðarnefnd- ar er að finna á heimasíðu hennar, www.breidafjordur.is. mm/tm Ljósm. Róbert A Stefánsson Breiðafjarðarnefnd sendir tillögur til ráðherra varðandi framtíð Breiðafjarðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.